Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Ukioqatigiit

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Qupperneq 21

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Qupperneq 21
23 Kringum svæði þetta eru landnámsmenn nefndir: Kolbeinn Sig- mundsson af Vestfold, nam Kolbeinsdal, og Hjalti Þórðarson, nam Hjaltadal »at ráði Kolbeins«. Menn þekkja nú engan stað, sem Hálsgróf heitir, og vita ekki hvar hún hefur verið. En með athugun má leita þann stað uppi og færa allsterkar líkur fyrir, að rjettur staður sje fundinn. Milli Hjaltadals og Kolbeinsdals myndast tunga, sem endar að norðan við ármót Hjaltadalsár og Kolbeinsdalsár. Tunga þessi hækkar og breikkar, því sunnar sem dregur, og kallast Ástunga yzt, en Ás framar. Ásinn smáhækkar að háum fjallshnjúk, sem kallast Elliði. Þegar suður að Elliða dregur, er Ásinn hár mjög og rjettnefndur Háls, enda er hann kallaður svo af sumum. Milli Brekkukots og Viðiness, næsta bæjar norðan við Hóla, liggur mjög djúp laut þvert yfir Ásinn (= Hálsinn) milli Kolbeins- dals og Hjaltadals. Er hún kölluð Gróf og er skamt utan við Elliða. í jarðaleigureikningi Hólastóls frá árinu 1388 eru allar jarðir í Hjaltadal taldar nema Brekkukot, en sú jörð er næst norðan við áðurnefnda Gróf, vestan undir Ásnum, en austan við Hjaltadalsá. Aftur á móti er með Efra-Ási talin Hálsgróf. Þá er landsskuld af þeirri jörð »tíu lamba eldi og tvævett naut«. (DI. III. B. bls. 410). Jeg tel engan efa á því, að sú jörð er sama jörðin og Brekku- kot nú, því að Hálsgróf er einmitt talin í þeirri röð í brjefinu eins og hún hefði verið milli Víðiness og Efra-Áss, einmitt þar sem Brekku- kot er nú. En seinni tima jarðaskrár sýna, að Brekkukot er bygt úr Efra-Ásslandi. Sje þetta rjett, sem mjer virðist engum vafa bundið, verður frásögn Landnámu skiljanleg. Ásinn hefur í fornöld kallast Háls, enda á það fult svo vel við. Áðurnefnd Gróf er þá Hálsgróf sú, sem getið er um, og hún hefur takmarkað landnám Öndótts að sunnan, austan megin Hjaltadalsár. Bærinn norðan við Grófina hefur heitið eftir henni. Og átti það nafn ágætlega við staðháttu. En seinna á öldum hefur sú jörð lagst í eyði, en bygst aftur, og þá hefur nafnið breyzt. Þekkjast mörg dæmi þess, þótt ekki sjeu þau hjer greind. Land Öndótts, »eystra megin ofan frá Hálsgróf«, er þá aust- an við Hjaltadalsá, að Víðinesslandi, niður með Kolbeinsdalsá til sjávar. En vestan Hjaltadalsár frá Skúfstaðaánni, alla Viðvíkur- sveit og suður að Gljúfrá, sem takmarkaði að norðan landnám Kollsveins1) hins ramma. Fellur hún vestur í Hjeraðsvötn, en þau 1) Kollsveinsstaðir, bær Kollsveins, eru fyrir löngu komnir í eyði, en rúst- irnar sjást enn og halda nafninu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.