Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Ukioqatigiit

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Qupperneq 8

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Qupperneq 8
Holtsvað og Holtavað. Örnefni þessi þekkjast einungis af Njálu (116., 117. og 131. kap.), og ekki nema hið fyrra í mörgum handritum. Nöfn þessi bæði eru tengd við hvíld og áfangastað Flosa, á leið hans til alþingis árið 1011, og Holtsvað líka við liðsafnað Kára eftir Njálsbrennu, sama sumarið. Af því að árnar eru ekki nefndar með vöðunum, hafa afritarar Njáluhandrita að líkindum, annaðhvort mislesið einn staf, eða ætlað að leiðrétta hann, og þannig af ókunnugleika gert eitt nafn úr tveimur. Nokkrir fræðimenn hafa reynt að ráða úr þeirri gátu, hvar vöð þessi hafa verið. En gátan er ekki aðeins um það, hvar vöðin hafa verið á vissu vatnsfalli, heldur ennfremur, á hvaða ám þau hafi verið, og hvort þau voru eitt eða tvö. Sumir telja tvo staði líklegri, og að Holtauað hafi verið yfir Þjórsá. En þar fær þetta vað þrjá staði: Hjá Páli alþm. i Árkvörn (Safn. II. 530) verður vaðið eitt, og sama sem Eyjavað, neðan við Þrándarholt. (Það eyðilagðist af árgrefti við vest- urbakkann rjett fyrir 1900). Kaalund (Hist. Top. I. 193, 227) bendir á Nautavað. Það á þó að vera mikið yngra vað, eftir sögn um stroku- naut frá Skálholti, er fyrst áttu að fara þar yfir ána — annaðhvort að Skarði, naut Páls biskups, eða klausturnautin úr Skaftafellssýslu. En Brynjólfur Jónsson fornfr. telur (Árb. Flf. 1896,30) Holtavað á milli nefndra vaða á Þjórsá, ofantil við Árnesið. Mun það rétt vera, og nafnið kent við Þjórsárholtin — þ. e. Holtasveit og Landmannahrepp að neðanverðu. Það er viðurkent, og auðskilið í Njálu, að Landmenn (og Holta- menn?) eigi fáir voru þingmenn Hjalta i Þjórsárdal, þó áin væri milli þeirra. Hjalti hefur sjálfsagt haft bæði vald til þess og þurft þess oft, að kalla þessa þingmenn sína til vitnis og liðstyrks á þingi Árnesinga, þarna í Árnesinu. Holtavað leiddi ferðamenn, er að austan komu, efst í Árnesið. Get jeg þess nú til, að þessi sje undirrót nafnsins — og hafi vaðið máske verið í fyrstu kallað Holtamannavað. Má og sýnast ekki ólík- legt, að þingstaður Árnesinga hafi verið settur á þennan óvanalega afskekta stað, einmitt vegna Holtamanna, sem þangað urðu að sækja. — Fleiri Árnesingar en Hjalti, og aðrir á undan honum, gátu líka
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.