Morgunblaðið - 31.12.1999, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1999 57
MINNINGAR
GUÐNI
JÓHANNS-
SON
+ Guðni Jóhannsson fæddist á
Leirá í Leirársveit 24. septeni-
ber 1913. Hann lést á Sjúkrahúsi
Akraness 12. desember síðastlið-
inn og fór útför hans fram frá
Akraneskirkju 21. desember.
Ég minnist þess þegar ég var í
Görðum fyrir margt löngu, að von
var á gestum þangað. Það var í
sjálfu sér ekkert nýtt eða markvert,
því þar var mikill gestagangur. Það
sem einkenndi þessa gestakomu var
hlý eftirvænting, sem lá í loftinu,
minnti helst á jólastemmningu.
Rósa og Guðni voru að koma. Ég,
sem þá þekkti þau hjón ekkert, fann
svo glöggt hvað allir hlökkuðu til að
fá þau í heimsókn. Seinna átti ég eft-
ir að njóta þeirra einstæðu gestrisni
og ljúfmennsku. Þegar ég beið eftir
komu frumburðar míns í heiminn
var ég á Akranesi hjá pabba en kom
nánast daglega og sat í eldhúsinu
hjá Rósu og hafi ég þreytt hana,
fann ég aldrei fyrir því, hún tók mér
alltaf með sömu gleðinni og góðvild-
inni. Margt var spjallað, rætt um
menn og málefni en aldrei Iagt mis-
jafnt til nokkurs manns, Rósa var
hafin yfir allt slíkt. Hún var fróð og
lífsreynd, tranaði sér aldrei fram en
var alltaf til staðar, hjálpsöm og
traust. Hún bjó yfir sérstakri hlýju
og kímni, sem veitti svo góða nær-
veru. Og það var hún Rósa mín, sem
var mér til halds og trausts þegar ég
baðaði drenginn minn í fyrsta skipti.
Það var gott að hafa hana hjá sér.
Rósa og Guðni voru eitt í bestu
merkingu þess orðs, hjón, vinir og
félagar, og ævinlega bæði nefnd
þegar annars var getið. Guðni missti
því mikið þegar Rósa dó, en hann
hélt lífinu áfram með dyggum stuðn-
ingi Heiðu og Grétars. Hann var sí-
vinnandi og hóf samvinnu við Ingu,
systur Rósu, þegar bæði voru orðin
harðfullorðin. Hann smíðaði litla
kistla sem hún myndskreytti af list-
fengi og vandvirkni og eru þeir
hreinustu dýrgripir. Guðni var völ-
undur í höndunum, afskaplega
vandvirkur og hafði gott verksvit.
Það var ekki hávaðinn og æsingur-
inn í kringum hann, en honum
vannst vel og sló ekki vindhögg.
Nú, þegar þessi elskulegu hjón
eru bæði farin er ég óumræðilega
þakklát fyrir að hafa kynnst þeim,
fyrir góðvild þeirra og tryggð, sem
aldrei brást. Hafið einlæga þökk
fyrir allt og allt.
Elsku Heiða, Grétar, Stefán
Heiðar og Leifur Guðni, ykkar er
missirinn mestur, en sá fjársjóður
sem þið eigið af góðum minningum
um allt sem þau voru er ómetanleg-
ur.
Kristlaug (Didda).
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt,
að disklingur fylgi útprentuninni. Auð-
veldust er móttaka svokallaðra ASCII-
skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritv-
innslukerfin Word og Wordperfect eru
einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má
greinar til blaðsins í bréfasíma 669 1116,
eða á netfang þess (minning@mbl.is) —
vinsamlegast sendið greinina inni í bréf-
inu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar
má lesa á heimasíðum. Pað eru vinsamleg
tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina
örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega
línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
+
Ástkaer faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HÁKON M. MAGNÚSSON
frá Bæ,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 4. janúar kl. 13.30.
Gunnþór Hákonarson, Sigurjón Hákonarson,
Þorgrímur A. Hákonarson, Héðinn Hákonarson,
Jóhanna Hákonardóttir, Kristín I. Hákonardóttir,
Sigríður E. Hákonardóttir,
tengdabörn og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR ÆGIR AÐALSTEINSSON
prentari,
er lést mánudaginn 27. desember, verður
jarðsunginn frá Fossvogskapellu mánudaginn
3. janúar kl. 10.30.
Sigurveig Guðmundsdóttir
Aðalsteinn Guðmundsson Herdís Hrönn Árnadóttir,
Alfreð Ægir Guðmundsson, Sólveig Birna Karlsdóttir,
Pálmi Guðmundsson, Ástríður Elín Ásgeirsdóttir
og barnabörn.
Gunilla Skaptason, Kristján Kristjánsson,
Hallgunnur Skaptason, Andrés B. Sigurðsson,
Gunnar O. Skaptason, Gerður Hannesdóttir,
Björn Skaptason, Hildur Bjarnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
INGIBJARGAR ODDSDÓTTUR,
Öldugötu 34,
Reykjavík.
Þórður Harðarson, Sólrún Jensdóttir,
Anna Harðardóttir, Leifur Dungal,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
ÞÓRARINS GUNNARSSONAR
gullsmiðs,
Tjaldanesi 11,
Garðabæ.
Guð blessi ykkur öll á nýrri öld.
Ásta Engilbertsdóttir,
Sigrún Þórarinsdóttir, Ragnar Pálsson,
Birgir Þórarinsson, Dóra Sigurðardóttir,
Gunnhildur Þórarinsdóttir, Sveinn M. Ottósson,
Guðrún Ragnarsdóttir, Hjörtur Hjartarson,
Björn Ragnarsson, Birna Kolbrún Gísladóttir,
Egill Arnar Birgisson,
Þórarinn Gunnar Birgisson,
Sigríður Dóra Birgisdóttir,
Ásta Rós Snævarsdóttir
og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför eigin-
konu minnar, móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
ÁSGERÐARJÓNSDÓTTUR,
Haukagili,
Hvítársíðu,
og heiðruðu minningu hennar.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilis aldraðra í Borgamesi og
E-deildar Sjúkrahúss Akraness fyrir frábæra umönnun, hjúkrun og
læknishjálp.
Guð blessi ykkur öll og gefi gleði og frið á nýju ári.
Jón Ingimundarson,
Helgi Jónsson,
Hildur Jónsdóttir, Rúnar Gunnarsson,
Jón Ingimundur Jónsson,
Sigurður Jónsson, Jóhanna Friðriksdóttir
og barnabörn.
+
Þökkum af alhug samúð og hlýhug við andlát
sambýlismanns míns, föður okkar, tengda-
föður og afa,
(AGNARS) REYNIS SIGURÐSSONAR.
Sigríður J. Aradóttir,
Sigurður F. Reynisson,
Auðbjörg Reynisdóttir, Einar Gautur Steingrímsson,
Viktor Þór Reynisson, Anna Kristín Kristófersdóttir,
Jóhann Reynisson, Ingibjörg Stefánsdóttir
og barnaböm.
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
RAGÚELS HAGALÍNSSONAR,
Hlíf 1,
ísafirði.
Vinátta ykkar og hjálp var ómetanleg.
Starfsfólki Sjúkrahúss ísafjarðar þökkum við
góða umönnun og einstaka hlýju í okkar garð.
Helga Stígsdóttir
og fjölskylda.
+
Eiginmaður minn,
CARL GEORG KLEIN,
Melabraut 22,
Seltjarnarnesi,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 22. desem-
ber.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför
hans.
Fyrir hönd barna og tengdabarna,
Þóra Klein.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
KJARTANS BERGMANNS
GUÐJÓNSSONAR,
Skúlagötu 20.
Helga Kristinsdóttir,
Guðbjörg Kristín Kjartansdóttir,
Sólveig Kjartansdóttir, Hreinn Guðnason,
Unnur Kjartansdóttir, Ingi G. Ingimundarson,
barnabörn og barnabarnabarn.