Morgunblaðið - 31.12.1999, Blaðsíða 22
22 FOSTUDAGUR 31. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Gagngerar endurbætur
á hótelinu í Stykkishólmi
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
Feðgarnir Þorbergur Bæringsson og Sæþór Þorbergsson í einu her-
bergjanna sera er verið endurgera. Þorbergur hefur umsjón með fram-
kvæmdunum sem ljúka á í mars og Sæþór er hótelstjóri.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Þorskhausar á fjósgafli
Stykkishólmi-Þessa dagana er verið
að endurnýja öll herbergin á hótel-
inu í Stykkishólmi.
Hlutafélagið Þór hf. er eigandi
hótelsins og stendur að endurbótun-
um. Á herbergjum er öllu gömlu
hent út og lagt parket á öll gólf og
veggir málaðir. Öll húsgögn verða
ný. Þá verður skipt um alla glugga
hótelbyggingarinnar og húsið málað
að utan. Lyfta verður sett í húsið. I
haust var veitingasalurinn lagfærð-
ur mikið. Tekin verður í notkun í vor
ný símstöð á hótelinu þar sem hægt
verður að tölvutengja herbergin.
Með því er verið að horfa til ráð-
stefnuhalds. Framkvæmdum á að
vera lokið um miðjan mars.
Rekstur hótelsins í Stykkishólmi
hefur gengið mjög illa síðustu ár.
Því hefur ekki verið hægt að sinna
viðhaldi húsnæðisins og var mjög
aðkallandi að bæta þar úr. Það var í
vor að Foss-hótelkeðjan tók hótelið
á leigu og gerður var 10 ára samn-
ingur þar. Að sögn hótelstjórans,
Sæþórs Þorbergssonar, hefur verið
nóg að gera hjá nýjum rekstraraðil-
um. Aðsókn að hótelinu hefur verið
góð og í fyrsta skipti í mörg ár hefur
ekki komið „dauð“ helgi á haust-
mánuðum. Með þessum miklu end-
urbótum verður auðveldara að afla
fleiri verkefna og segist Sæþór
hlakka til að geta boðið gestum sín-
um upp á fyrsta flokks aðbúnað og
þjónustu.
EINAR Klemensson, bóndi í Prests-
húsum í Reynishverfi, nýtir fjós-
gaflinn til þess að þurrka þorsk-
hausa. Hann fékk fyrir skemmstu
200 hausa að gjöf og taldi hentug-
ast að hengja þá upp á fjósið. Vera
kann að einhver telji að hætt sé við
að fjósalykt verði að hausunum, en
Einar var ekkert að velta því fyrir
sér.
Morgunblaðið/Finnur Pétursson
Unnið að því að flytja skúrinn niður á bryggju.
Olíubirgðastöð á
Tálknafírði minnkuð
Tálknafirði - í sumar og haust hef-
ur verið unnið að því að fjarlægja
olíu- og bensínbirgðatanka af at-
hafnasvæði Esso/Olíudreifingar á
Tálknafirði.
Fyrir skömmu kom Bakkafoss,
strandferðaskip Eimskips, inn á
Tálknafjörð að sækja þann tank
sem var stærstur og geymsluhús
sem ekki voru not fyrir. Nú er að-
eins einn tankur eftir á svæðinu og
mest af eldsneytinu sem notað er á
Tálknafirði er nú flutt frá Patreks-
firði með tankbíl.
Það heyrir til undantekninga að
svo stór skip sem Bakkafoss legg-
ist að bryggju í Tálknafirði þar
sem áætlunarsiglingar til Tálkna-
fjarðar lögðust af fyrir nokkrum
árum.
Vann ferð til
Á AMERÍSKUM dögum sl. haust í
verslunum KA var staðið fyrir leik í
samvinnu við Flugleiðir. Viðskipta-
vinir svöruðu spumingum og gátu
unnið til ferðar fyrir tvo til Minnea-
polis í Bandaríkjunum með Flugleið-
um. Núna rétt fyrir jólin var dreginn
Minneapolis
út vinningshafi og honum afhent
gjafabréf; ferð fyrir tvo til Minnea-
polis. Vinningshafinn var Krisín
Stefánsdóttir frá Selfossi og tók hún
við gjafabréfinu úr hendi Helga Sig-
urðar Haraldssonar, markaðsstjóra
KÁ-verslana.
Salmonella í hrossum í Vetleifsholti
Skipuleg sýnataka
eftir helgina
STAÐFEST er að hrossin þrjú auk
einnar kindur sem drepist hafa á
bænum Vetleifsholti á Suðurlandi
undanfarið drápust úr salmonellu.
Að sögn Katrínar Andrésdóttur hér-
aðsdýralæknis á Suðurlandi fer yfir-
dýralæknisembættið af stað með
skipulega sýnatöku eftir helgina, „til
að við áttum okkur á umfangi og al-
varleika ástandsins".
Fyrsta hrossið drapst í í nóvember
og svo tvö um jólin en ekki hafa fleiri
hross veikst svo vitað sé. Katrín seg-
ir bæinn hafa verið undir ströngu
eftirliti og gengið hafi verið ti-yggi-
lega frá hræjunum enda eigendur
áttað sig fyllilega á alvarleika máls-
ins.
Afkomendur Valgerðar frá Hofí í Vatnsdal
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Ágúst þriðji sonur Valgerðar
þriðju skírður um jólin
FIMMTI ættliðurinn og jafnframt
þriðji Ágústinn frá Ágústi B. Jóns-
syni fyrrum bónda á Hofi í Vatnsdal
var skírður um jólin. Þetta er ef til
vill ekki í frásögur færandi nema að
nöfn þeirra Valgerðar Einarsdótt-
ur (Bólu Einars) er á Hofi bjó á
fyrri hluta þessarar aldar og sonar
hennar Ágústar sem fyrr er getið
hafa ávallt komið fram í hverjum
ættlið Geitaskarðsarms þessarar
ættar.
Valgerður, fyrrverandi húsfreyja
á Geitaskarði, dóttir Ágústar og
Ingunnar Hallgrímsdóttur á Hofi, á
m.a. Ágúst Sigurðsson (Þorbjarnar-
son), bónda á Geitaskarði, og ein
dóttir hans og Ásgerðar Pálsdóttur
heitir Valgerður og á hún þann son
er á jólum var skírður Ágúst,
reyndar Ragnar að fyrsta nafni Ró-
bertssonar Ragnarssonar og búa
þau í Grindavík. Á myndinni eru
Valgerður Ágústsdóttir, Ágúst Sig-
urðsson ogValgerður Ágústsdóttir
með son sinn Ragnar Ágúst Ró-
bertsson.