Morgunblaðið - 31.12.1999, Blaðsíða 92
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREWSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPANGSSTRÆTII
FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið
árið 2000
Margs er
að minnast
Skýrsla erlendra sérfræðinga um áhrif námavinnslu í Mývatni
Ekki hægt að tengja sveifl-
ur beint kísilgúrvinnslu
NUVERANDI rannsóknir á lífríki Mývatns leyfa
ekki að ákveðnar ályktanir séu dregnar um þá
krafta sem stjórna sveiflum í lífríkinu. Hins vegar
er ekki hægt að tengja sveiflurnar kísilgúrnámi í
botni vatnsins með neinum beinum hætti, að mati
þriggja erlendra sérfræðinga í vatnalíffræði, sem
ríkisstjómin fékk til að meta hugsanlega áhættu
af kísilgúrnámi í Syðri-Flóa Mývatns, en sérfræð-
ingarnir hafa skilað af sér skýrslu í þessum efn-
um. Sérfræðingarnir leggjast jafnframt eindregið
gegn kísilgúrvinnslu á svæðum 3 og 4 í Syðri-
Flóa, en telja að vinnsla á svæði 1 í fulla dýpt sé í
lagi og á svæði 2 um tvo metra.
Sérfræðingunum, tveimur norskum og einum
sænskum, auk hollensks sérfræðings í setlaga-
flutningum, var sett það verkefni af iðnaðarráð-
uneytinu að yfirfara rannsóknir á lífríki Mývatns
og að hvaða marki þær skýri sveiflur í lífríki
vatnsins. Þeim var jafnframt falið að meta áhrif
kísilgúrvinnslunnar á lífríkið og að vera ráðgef-
andi um frekari rannsóknir á sveiflum í lífríkinu,
auk þess að meta áhættuna af því að hefja kísil-
gúrvinnslu í Syðri-Flóa.
Sérfræðingamir segja að þó ekki sé hægt að
draga ákveðnar ályktanir af fyrirliggjandi rann-
sóknum um hvað það sé sem stjómi sveiflunum
sé samt nægileg þekking fyrir hendi til þess að
benda á rannsóknir sem geti svarað spumingum í
þessum efnum.
Kísilgúrvinnslu í Ytri-Flóa verði hætt
í niðurstöðum sínum segja sérfræðingarnir
jafnframt að þó ekki hafi verið mögulegt að skilja
til fulls sveiflurnar telji þeir að ekki sé hægt að
tengja þær kísilgúrvinnslunni með neinum bein-
um hætti. Þessi niðurstaða sé einnig studd þeirri
staðreynd að sveiflur í lífríkinu hafi orðið í Syðri-
Flóa og hafi raunar orðið þar mestar í sumum til-
vikum. Það sé ekkd líklegt að rask í Ytri-Flóa hafi
mikil áhrif í Syðri-Flóa um grunnt Teigasundið.
Með þessu segjast sérfræðingamir ekki vera að
halda því fram að kísilgúrvinnslan sé án áhrifa á
lífríkið og kísilgúrvinnsla í Ytri-Flóa kunni að
vera komin á hættulegt stig í ljósi þess að lífríki
bregðist ekki við áreiti með línulegum hætti. Þeir
lýsa jafnframt yfir áhyggjum sínum af því að
frekari vinnsla þar geti haft mikil áhrif á einstaka
tegundir og leggja til af varúðarástæðum að hætt
sé kísilgúrvinnslu í Ytri-Flóa eða að minnsta
kosti að forðast sé að stækka núverandi náma-
svæði.
SÉRSTÖK útgáfa Morgunblaðsins
í tilefni ársins 2000 verður borin út
mánudaginn 3. janúar. I aðfaraorð-
um ritstjóra segir: „Margs er að
minnast þegar ártalið 2000 blasir
við. Morgunblaðið var stofnað 2.
v-'Wivember 1913 og er það gríðarleg
; heimild um þá öld sem við erum nú
að kveðja. Slíkri samtímaheimild
var ekki til að dreifa fyrir þúsund
ámm. Það væri að æra óstöðugan
að fjalla um alla þá atburði sem
blaðið hefur sagt frá á þessari öld
og greina frá hverju því sem at-
hyglisvert er á þessum tímamót-
um. Það verður látið framtíðinni
eftir.
Hér eru aftur á móti rifjaðar upp
nokkrar þær greinar sem birzt
hafa í blaðinu á þessu tímabili, þær
eru valdar af handahófi og sem dá-
lítil vísbending um efni blaðsins á
þessum liðnu áratugum. Þessu er
safnað saman í þeirri trú að les-
^—ijndur hafi áhuga á ýmsu því sem
blaðið hefur birt og því ekki frá-
gangssök að rifja það upp.
En á það skal lögð áherzla að
hér er ekki um úrval að ræða,
langt því frá, einungis stiklað á
stóru og sýnd dæmi sem enn mætti
hafa af nokkra ánægju og fróðleik.
Þessi sýnishorn af efni blaðsins eru
eins og dropi í hafi, svo fjölbreyti-
legt og mikið að vöxtum sem blaðið
er. Tæmandi sýnishorn yrði efni
margra blaða, svo að ekki sé talað
um upprifjun allra þeirra atburða
sem fjallað hefur verið ítarlega um
í Morgunblaðinu." Og síðar: „Þetta
blað kemur út á fyrsta rúmhelgum
degi ársins 2000, mánudeginum 3.
janúar. í því felst engin vísbending
um mánudagsútgáfur Morgun-
blaðsins, þótt að þeim sé unnið.“
Blaðið verður sent til allra
áskrifenda og fæst einnig í lausa-
sölu (verð: 150 krónur).
Banaslys á
Grindavík-
urvegi
KARLMAÐUR á 37. aldursári lést í
bílslysi á Grindavíkurvegi skömmu
fyrir klukkan 11 í gærmorgun. Fólks-
bifreið sem hann ók lenti framan á
jeppabifreið sem kom úr gagnstæðri
átt á veginum, skammt frá Seltjörn
rétt sunnan við Reykjanesbraut, og
var hann úrskurðaður látinn við
komu á sjúkrahús.
Ökumenn beggja bifreiða voru ein-
ir i bifreiðum sínum og var ökumaður
jeppans einnig fluttur á sjúkrahús en
fékk að fara heim að lokinni skoðun.
Talsverð hálka var á Grindavíkurvegi
þegar slysið átti sér stað.
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
Karlarnir streyma
í sund með krakkana
GÓÐ aðsókn hefur verið að Sund-
laug Akureyrar nú um jólin og
sagði Arnar Þór Þorsteinsson sund-
laugarvörður að áberandi niikið
hefði verið um karlmenn og börn í
sundlauginni siðustu daga. „Það er
eins og konurnar hafi sent karlana
með börnin í sund, svo þær hafi frið
heima. Eg veit ekki hvort sú er
raunin, en það hefur að minnsta
kosti verið áberandi mikið af karl-
mönnum og börnum i sundi síðustu
daga. Auðvitað eru konur líka á
meðal gesta okkar nú um jólin, en
þær eru ekki eins margar og karl-
arnir,“ sagði Amar.
Á myndinni eru þeir félagar Arn-
ar og Brynjar sem voru á meðal
þeirra fjölmörgu sem fengu sér
hressandi sundsprett í gær.
Allt kampa-
vín er
uppselt
AÐEINS ein tegund af kampavíni
var eftir í Afengis- og tóbaksverslun
ríkisins í Kringlunni þegar hún var
opnuð í gærmorgun og seldist hún
upp um hádegisbil. Þar með var
kampavín orðið uppselt í öllum versl-
unum ATVR á höfuðborgarsvæðinu.
Þó eru enn til nokkrar flöskur af
kampavíni í sérflokki sem kosta á bil-
inu 8.000 til 120.000 krónur flaskan.
Þorgeir Baldursson, verslunar-
stjóri ATVR í Kringlunni, segir að
sala á kampavíni í verslun ATVR í
Kringlunni nú í desember hafi verið
um 600 til 700% meiri en í desember í
fyrra. Þetta sé enn meiri aukning en
búist var við, en búið var að spá veru-
legri aukningu. Hann segir að marg-
ar kampavínstegundir hafi selst upp
um miðjan mánuðinn og þá hafi sala
á kampavíni og freyðivíni jafnframt
verið orðin jafnmikil og hún var allan
desembermánuð í fyrra.
Þorgeir segir ástæðu þess að
margar kampavínstegundir hafi
klárast meðal annars þá að innflytj-
endur hafi ekki fengið það magn sem
þeir þurftu. Búið var að spá skorti á
kampavíni um áramótin og þess
vegna var því að einhverju leyti
skammtað til dreifenda. Hins vegar
er nóg til af freyðivíni og er talið víst
að það dugi.
Viðskipti með hlutabréf á VÞÍ
215% auknmg' á milli ára
VIÐSKIPTI með hlutabréf á Verð-
bréfaþingi Islands námu alls 40,08
milljörðum króna á árinu en á síð-
asta ári var heildarveltan 12,7 millj-
arðar og er aukningin 215%. Veltan
á árinu er meiri en samanlögð velta
hlutabréfa á VÞÍ frá upphafi. Utan-
þingsviðskipti með bréf félaga á Að-
allista á árinu 1999 voru tæplega
tvöföld viðskiptin á VÞÍ eða 74,74
milljarðar. Mest viðskipti á.VÞI á
árinu voru með bréf íslandsbanka
fyrir 4,8 milljarða, bréf FBA fyrir
3,5 milljarða og bréf Eimskipafélags
íslands fyrir 3,3 milljarða. Mest ut-
anþingsviðskipti voru með bréf
FBA fyrir 8,36 milljarða. Úrvalsvísi-
tala Aðallista hækkaði um 46,36% á
árinu og er nú 1.618, 36 stig sem er
met. Viðskipti með hlutabréf á þing-
inu í gær voru fyrir 620 milljónir
króna og er dagurinn sá annar
stærsti með hlutabréf frá upphafi.
Marel hækkaði mest en
SR-mjöl lækkaði mest
Hlutabréf í Marel hf. hækkuðu
mest allra félaga á Verðbréfaþingi
íslands á árinu 1999 eða um 219,7%.
Lokagengi bréfa í Marel á síðasta
viðskiptadegi Verðbréfaþings fs-
lands á árinu var 44,6 en var 13,95 á
síðasta viðskiptadegi í fyrra. Marel
sýndi neikvæða ávöxtun um 23% á
árinu 1998. SR-mjöl hf. lækkaði
mest allra fyrirtækja á Aðallista eða
um 31,3% á árinu.
■ Marel/26
MORGUNBLAÐIÐ kemur
næst út þriðjudaginn 4. jan-
úar. Fréttaþjónusta verður á
Fréttavef Morgunblaðsins um
áramótin. Slóðin er mbl.is.