Morgunblaðið - 31.12.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
298. TBL. 87. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
iil' fruftM'Étuii
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
(jrlwhl> n yar - 2000
i',ff*:.'T é . j * ^V"
Stærsta
bankarán
ísögu
Noregs?
Ósló. AP.
DAGBLAÐ í Noregi hefur eftir
ónefndum heimildum í gær að
allt að 30 milljónum norskra
króna, jafnvirði um 270 millj-
óna íslenskra króna, hafl verið
stolið í vopnuðu ráni í Osló fyrr
í vikunni. Svo virðist sem
norska lögreglan hafl viljað
halda upplýsingum um ránið
leyndum en það gæti verið hið
stærsta í sögu landsins.
Samkvæmt frásögn blaðsins
Dagbladet voru tveir óvopnaðir
öryggisverðir að flytja reiðufé í
hús í eigu Den norske Bank í
Ósló þegar ránið var framið.
Þrír grímuklæddir menn óku
Chevrolet-bifreið um öryggis-
hlið við bygginguna og skutu
viðvörunarskotum af vélbyss-
um. Enginn slasaðist en ræn-
ingjarnir höfðu féð á brott með
sér í annarri bifreið.
Ránið er áttunda bankaránið
á aðeins 14 mánuðum þar sem
flutningamenn á vegum fyrir-
tækisins Securitas í Noregi
koma við sögu. Ránin eru öll
óupplýst en einn maður hefur
verið handtekinn í tengslum við
rán sem framið var í október
1998. Yllrmenn Securitas í
Noregi hafa ekki viljað tjá sig
um ránin en grunsemdir hafa
vaknað um að vitorðsmenn geti
leynst í hópi starfsmanna fyrir-
tækisins.
Ekkert ríki reiðubúið að
taka við flugræningjunum
Kandahar, Nýju-Delhí. AP, AFP.
LÍKUR voru taldar á því í gærkvöld
að indversk stjómvöld væru reiðu-
búin að koma að einhverju leyti til
móts við kröfur mannanna sem
rændu Airbus-300-farþegaþotu Indi-
an Airlines fyrir viku og láta lausa
nokkra af 36 uppreisnarmönnum frá
Kasmír sem nú eru í indversku fang-
elsi. Utanríkisráðherra Indlands,
Jaswant Singh, sagði að samninga-
viðræðumar væm á „afar viðkvæmu
stigi“ en afganskur starfsbróðir
hans, Wakil Ahmad Mutawakel,
sagðist vera bjartsýnn.
Heimildarmenn sögðu að erfiðasti
vandinn væri að finna rfld sem vildi
taka við ræningjunum, hvorki Afg-
anar né Pakistanar vildu veita þeim
landvist. „Þetta er pattstaða. Ekkert
land vill taka við flugræningjunum
og uppreisnarmönnunum frá Kasmír
sem ætlunin er að láta lausa,“ sagði
einn þeirra. Indverjar em sagðir
reyna að semja við ýmis arabaríki en
þau munu einnig vera lítt fús að taka
við mönnunum.
Javed Jabbar, einn af ráðgjöfum
Pervez Musharrafs hershöfðingja,
sem fer fyrir stjóm herforingjanna í
Pakistan, sagði í gær að leyniþjón-
usta Indíands, RAW, hefði staðið á
bak við flugránið. Hún hefði af ráðn-
um hug dregið málið á langinn til
þess að „skapa frelsishreyfingunni í
Kasmír neikvæða ímynd og sverta
ímynd Pakistans". Markmiðið væri
að fá Bandaríkin til að skipa Pakist-
Pakistanar segja
indversku leyni-
þjónustuna á bak
við flugránið
an í flokk ríkja er styddu hryðjuverk.
Enn em 155 manns um borð í vél-
inni, þar af 44 konur og tvö böm, og
er aðbúnaður þeirra slæmur. Ræn-
ingjamir myrtu einn af farþegunum
þegar hann varð ekki við skipun
þeirra um að horfa ekki á þá.
Sameinuðu þjóðimar hafa sent
flugvél með mat handa gíslunum í
vélinni og bensíni hefur verið dælt í
geyma hennar til að hægt sé að
tryggja hita um borð en kalt er á
þessum slóðum, hitastig um frost-
mark.
25 ára gömlum manni, Simon Ber-
ara, sem mun þjást af magakrabba-
meini, var í gær leyft að fara úr vél-
inni og njóta aðhlynningar á
sjúkrahúsi í hálfa aðra klukkustund
gegn loforði um að hann yrði á ný
fluttur um borð. Sykursjúkur maður
á fimmtugsaldri, Anil Khurana, sem
var um borð, fékk fyrr í vikunni að
fara frjáls ferða sinna og kom hann
til Nýju-Delhí í gær.
Farþegaþotan er á flugvellinum í
borginni Kandahar í Afganistan,
sem er á valdi talebana-stjórnarinn-
ar. Hafa talebanar hótað að hrékja
flugræningjana á brott ef ekki flnn-
ist lausn fljótlega.
Talebanar hafa fordæmt gíslatök-
una. Hafa þeir mikinn viðbúnað her-
liðs á vellinum og juku hann enn í
gær en lögðu áherslu á að eingöngu
væri um að ræða öryggisráðstafanir.
Skriðdreki var til reiðu á hæð við
flugvöllinn.
Ráðist á Harrison
London. AP.
BÍTILLINN fyrrverandi, George
Harrison, var fluttur á sjúkrahús að-
faranótt fimmtudags eftir að hafa
verið stunginn í brjóstið af manni
sem braust inn á heimili hans um
nóttina. Manninum tókst að komast
framhjá öflugu öryggiseftirliti við
sveitasetur Harrisons skammt utan
við Lundúnir. Ekki er vitað um
ástæður árásarinnar en Harrison og
konu hans, Oliviu, tókst að yfirbuga
tilræðismanninn. Harrison hlaut eitt
djúpt stungusár á brjósti en læknar
segja að hann sé ekki í lífshættu.
Kona hans hlaut minniháttar áverka
í árásinni.
■ Mun ekki vera/33
^ islandssimus
MORGUNBLAÐK) 31. DESEMBER1999