Morgunblaðið - 31.12.1999, Blaðsíða 43
LISTIR
'Fðs^ÖDXGÚÍÍSl.'bÉ&^ERÍggb 43
Morgunblaðið/Sverrir
Snorri Snorrason útgefandi, Haukur Snorrason ljósmyndari, Guðrún Magnea Rannversdóttir, eiginkona
Snorra, sem vinnur við ijármál og bókhaid og Jón Karl Snorrason flugstjóri.
margir í hinu. Ljósmyndarar hafa
náttúrlega verið fyrst og fremst
portrett-ljósmyndarar. Það er til-
tölulega nýtilkomið að farið var að
titla menn landslagsljósmyndara.
Þetta er kannski ekki nema tíu til
fimmtán ára gamalt orð.“
Hver haldiði svo að framtíðin verði
hvað varðar stafræna ljósmyndun?
„Það endar auðvitað með þvi að
maður kemur til með að taka á staf-
ræna myndavél en hún kemur ör-
ugglega alsíðast inn í náttúruljós-
myndun. Og það er ekkert búið að
slá filmunni við ennþá. Ég efast um
að það verði á næstu þrem til fjórum
árum en það er erfitt að segja fyrir
um þetta.“
Snorri segir þá vera búna að
ganga í gegnum mikla þró-
un í prentiðnaðinum síðan
þeir byi-juðu í þessu og að
ný tækni í ljósmyndun sé á vissan
hátt sambærileg. „Ég efast þó um að
nýja tæknin komi til með að leysa
ijósmyndina af hólmi. Það var lengi
talað um að dagar bókarinnar væru
taldir en hún lifir enn og pappírs-
553
r Fróbærir
Isamkvæmiskjólar
og dragtir
til sölu eða leigu,
í öllum stærðum.
Ath! eitt í nr.
Fataleiga
Garðabæjar
Sími 565 6680
Opið 9-16, lou. 10-12
miðlarnir almennt. Ég held frekar að
þessi tækni verði viðbót við hitt. Það
er staðreynd að þó að dagatöl og al-
manök séu til í tölvutæku formi þá
kemur fólk áfram til með að vilja
hafa þetta á milli handanna."
Eigið þið ykkur lærifeður í ljós-
mynduninni?
Haukur er fljótur til svars: „Ekki
ég. Ég held ég hafi bara einu sinni á
ævinni keypt mér ljósmyndabók. Ég
lærði af pabba það sem ég gat lært af
honum og tæknilegu hliðina betur í
náminu og svo þróast maður og
þroskast sjálfur með reynslunni. Ég
held að ljósmyndarar séu svo sjálfs-
uppteknir að þeir hafi ekki áhuga á
öðrum en sjálfum sér,“ segir hann og
hlær. Þeir Snorri og Jón Karl malda
í móinn. „Jú, menn læra nú töluvert
af því að fletta bókum annarra, það
er staðreynd,“ segir Jón Karl og
Snorri bætir því við að þeir geri það
nú með reglubundnum hætti að
skoða það sem aðrir séu að gera. Það
sé lífsnauðsynlegt að iylgjast með og
að samkeppni sé nauðsynleg þar sem
hún geri vöruna betri fyrir neyt-
andann.
Ég hef heyrt því fleygt að þið séuð
miklir veiðimenn. Er það rétt?
„Ja, hann er nú aðallega í gæsinni,
þessi,“ segir Jón Karl og bendir á
Hauk. „Við höfum svona skotið gæs
og rjúpu, við tveir, en Snorri er nú
ekkert í þessu. Það hefur alltaf verið
farið í rjúpu í gegnum tíðina. Og
reyndar er ég að fara í rjúpu með
föðurbróður mínum upp í Borgar-
fjörð á morgun. Það er hefð fyrir því
í fjölskyldunni að borða ijúpu á jól-
unum. Og við sækjum hana yfirleitt
sjálfir."
Hvað með hreindýr?
Haukur segir þá ekki hafa reynt
það ennþá en að það hljóti að koma
aðþví.
„Það efast ég um,“ gellur í Jóni
Karli. „Það er nú bara eins og að
skjóta belju úti í haga, held ég.“
„Þetta fer allt vel saman, að fara á
skotveiðar, fljúga, ferðast og taka
myndir. Þetta fléttast allt saman.
Þetta eru allt áhugamál og þess
vegna, þó maður ætli sér kannski
ekkert að fara að taka myndir, þá
verða þær bara einhvern veginn til.
Aðstæðurnar verða bara til. Það
kemur alltaf eitthvað upp,“ segir
Haukur.
Rétt áður en ég kveð þessa
myndaglöðu bræður rek
ég augun í ljósmynd sem
hangir uppi á vegg í kaffi-
stofunni þeirra og sýnir gróið vall-
lendi með kyrru stöðuvatni í miðj-
unni. Ég spyr þá hvaðan hún sé.
„Þetta er nú staður sem var
óþekktur áður en er nú orðinn mjög
þekktur," segir Haukur. „Þetta eru
Eyjabakkamir.“ Það verður smá-
þögn og þeir horfa allir á myndina.
Þeir koma nú kannski til með
hverfa aftur, segi ég.
„Það er nú það sem menn eru að
beijast gegn,“ svarar Jón Karl.
„Haukur tók þessa mynd í sumar úr
flugvélinni. Það hefði ekki verið
hægt öðruvísi.“
„Þessi mynd er í nýju bókinni,“
segir Snorri. „Það myndræna er
sterkt. Það kveikir í fólki. Stórar, fal-
legar myndir af náttúru landsins
auglýsa landið mikið. Það eru mikil
auðæfi falin í íslenskri náttúru."
SÝHD í BÍÓBORGINNI
ÓFE Hausverkur2
★ ★★1/2
Kvikmyndír.ís
II Æ
★ ★
Rás 2
Gamlársdagur
Guðsþjónusta á elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund kl. 14.00.
Aftansöngur f kirkjunni kl. 18.00.
Hátíðarsöngvar
sr. Bjarna Þorsteinssonar.
Nýársdagur 2000
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00.
Hátíðarsöngvar
sr. Bjarna Þorsteinssonar.
Jóhann Stefánsson leikur á trompet.
Allir hjartanlega velkomnir.
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson.
y
bs ®s as te és
„Frábær svidsetning,
frábær ieikur,
frábær saga,
frábær mynd.
Sjáið hana!“
★ ★★ ★
Arnaldur indriðason Mbl
EIN STÆRSTA
46.000 é
„The Sixth Sense er þessi
sjaldgæfa tegund Hollywood
kvikmyndar; greindarleg,
blæbrigðarík og full af
göldrum“
Ásgrimur Sverrisson Dv
MYND ÁRSINS