Morgunblaðið - 31.12.1999, Blaðsíða 85
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1999 85
SKÍFAN KYNNIR I
FRÁBÆRT , I
KVIKMYNDAAR I
sooo I
The Talented
Mr. Rjpley
THE3EACH
Fyrsta rnynd Leonardo DiCaprio eftir Titanic og sú
stórmynd sem allir hafa beðið hvað spenntastir eftir
því þetta er fyrsta mynd Leo eftir Titanlc. Hann fókk
20 milljónir dollara fyrir vikið! Leikstóri er engirin
annar en Danny Boyle sam gerði hina mögnuöu
mynd Trainspotting.
Væntanleg í mars. ,;a >j.
Nýjasta gamanmynd Farrelly-bræðra sem gerðu
There's Something About Mary með hinum
óborganlega Jim Carrey í aðalhlutverki. Myndin
fjallar um löggu á Rhode Island sem þjáist af
geðklofa. Báðir helmingarnir verða hrifnir af sömu
stúlkunni og upphefst mikið stríð þeirra beggja að
ná ástum hennar!
Væntanleg í júli.
Allt er þegar þrennt er. Hin magnaði spennutryllir
heldur áfram nú betri en nokkru sinni fyrr með David
Arquette, Neve Campbell, Courteney Cox og
Partrick Dempsey f aðalhlutverkum. Leikstjóri er
hinn eini sanni Wes Craven.
Væntanleg í mars.
Nýjasta stórmynd óskarsverðlaunaleikstjórans Anthony
Minghella sem gerði Óskarsverðlaunamyndina The
English Patient. Myndin fjallar um mann sem gerir allt
til þess að lifa sem annar maður með ófyrirséðum
afleiðingum! Myndin hlaut nú á dögunum 5 Golden
Globe útnefningar. Með aðalhlutverk fara Matt Damon,
Gwyneth Paltrow, Jude Law og Cate Blanchett.
Væntanleg í apríl.
Drive Me Crazy
Fantagóð unglingamynd með mörgum vinsælustu
lögunum f dag m.a. You Drive Me Crazy með
Brittany Spears og fl.
Frumsýnd 7. janúar.
The House on the Haunted Hill
Æsilegur spennutryllir sem fór beint á toppinn í USA.
Með aðalhlutverk fara óskarsverðlaunahafinn
Geoffrey Rush (Shakespeare in Love), Famke
Janssen (Goldeneye) og Peter Gallagher.
Frumsýnd 21. jan.
Anywhere But Here
Sannkölluð gæðamynd um mæðgur sem flytjast til
Beverly Hills i von um betri tíma. En ekki er allt sem
sýnist. í aðalhlutverkum eru tvær frábærar leikkonur,
óskarsverðlaunahafinn Susan Saradon (Thelma &
Louise) og Natalie Portman (Star Wars Episode I).
Væntanleg í febrúar.
Anna and the King
Epísk stórmynd sem gerist í Tælandi undir lok 19
aldar og fjallar um sannsögulegt Iff breskrar
kennslukonu og þeim ævintýrum sem hún lendir í.
Jodie Foster vinnur enn einn leiksigurinn með
frábærri túlkun á kennslukonunni.
Væntanleg í febrúar.
Holy Smoke
Þetta er ein umtalaðasta og kyngimagnaðasta mynd
seinni ára. Leikstjóri er Jane Campion (The Piano)
og f aðalhlutverkum eru Kate Winslet og Harvey
Keitel. Sjáiö hina glæsilegu Kate Winslet f sfnu besta
formi til þessa.
Væntanleg í febrúar.
Music of My Heart
Frábær perla með Meryl Streep sem fékk Golden
Glob útnefningu fyrir leik sinn í myndinni. Leikstjóri
er Wes Craven og kemur hann svo sannarlega á
óvart með þessari hjartnæmu mynd um fiðlu-
kennarann óbugandi.
Væntanleg í mars.
Million Dollar Hotel
Nýjasta mynd leikstjórans Wim Wenders (Paris, Texas
og Der Himmel Uber Berlin) með sjálfum Mel Gibson,
Millu Jovovich (The Fifth Element), og Bono söngvara
U2 í aðalhlutverkum. Bono samdi einnig tónlistina (
myndina og handrit myndarinnar.
Væntanleg í mars/aprfl.
Dogma
Hin umdeilda mynd leikstjórans Kevin Smith
(Chasing Amy) um afkomanda Krist sem sendur er
til að bjarga heiminum en lendir í klónum á tveimur
skuggalegum englum. Með aðalhlutverk fara
stórleikararnir Ben Affleck, Salma Hayek, Matt
Damon, Linda Fiorentino og söngkonan Alanis
Morissette.
Væntanleg í maí.
Titan A. E.
Stórkostlega vel gerð teiknimynd fyrir alla
aldurshópa í frábærri talsetningu okkar bestu
leikara. Myndin gerist í framtíðinni eftir eyðingu
jarðar.
Væntanleg í ágúst
X-Men
Leikin stórmynd sem gerð er eftir vinsælustu
teiknimyndasögu í heimi. I aðalhlutverkum eru
Patrick Stewart, lan McKellen, Halle Berry og fl.
Leikstjóri er Bryan Singer, sá hinn sami og gerði The
Ususal Suspects.
Væntanleg í ágúst.
What Lies Beneath
Nýjasta stórmynd Harrison Ford f leikstjóm meistara
Robert Zemeckis (Forrest Gump). Myndin er
sannkallaður spennutryllir með hinni íðilfögru
Michelle Reiffer og fjallar um háskólaprófessor sem
fer að rannsaka kjallarann hjá sér vegna grunsemda
um að þar sé draugagangur.
Væntanleg í september.
The Legend of Bagger Vance
Nýjasta stórmynd hins fræga leikara og leikstjóra
Robert Redfords með Will Smith (Independence
Day, Wild Wild West) og Matt Damon (Good Will
Hunting, Saving Private Ryan) í aðalhlutverkum.
Væntanleg 2000.
Big Momma's House
Nýjasta stómiynd Martin Lawrence (Blue Streak) þar
sem hann fer á kostum sem lögga sem verður að
dulbúast á sprenghlægilegan hátt sem "Stóra
mamma' til þess að leysa erfitt sakamál.
Væntanleg 2000.
Navy Diver
Nýjasta stórmynd Roberts De Niro með Cuba
Gooding Jr. (Jerry Maguire) í aðalhlutverki. Þetta er
hörkuspennandi mynd um fyrsta svarta djúpsjávar-
kafara bandarfska sjóhersins.
Væntanleg 2000.
MDUUX
i
r