Morgunblaðið - 14.09.1997, Blaðsíða 22
B SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
BOLT og Anderson, títelaiiiii að t«aki .twent turiion'
1 AttMY riatiMiii itc ci crt«!|idt|«*i imi 1 111 yiMlhntl
tlN ctf lcllKtiivittÍtiÍlt Juacptiá HcrmcttS í (jeimlii ollú&kjMilflíi
s
•iiinrnÝ 9
■mmB
Tveir Bretar hafa gert geimhroll-
vekju í Hollywood, „Event
Horizon“, sem vakið hefur nokkra
athygli að sögn Arnalds
Indriðasonar. Hún gerist eftir
50 ár og segir af björgunarskipi
sem sent er til Neptúnusar að
aðstoða rannsóknarskip, sem
hvarf sjö árum áður
eftir að hafa komist í kynni við
ókunn öfl í útgeimi.
NÝ geimhrollvekja,
„Event Horizon",
hefur vakið nokkra
athygli í kvik-
myndaheiminum
nú upp á síðkastið
og verið borin saman við móður
allra geimhrollvekja, „Alien". Tveir
ungir breskir kvikmyndagerðar-
menn standa að baki myndarinnar,
leikstjórinn Paul Anderson og
framleiðandinn Jeremy Bolt, en
Sam Neill og Larry Fishbume fara
með aðalhlutverkin. Handritið er
eftir Philip Eisner og er þetta hans
fyrsta kvikmyndahandrit en mynd-
in gerist eftir 50 ár og segir af
björgunarleiðangri geimskipsins
Lewis og Clark til Neptúnusar.
Þaðan berast boð um aðstoð frá
rannsóknargeimskipinu Event
Horizon, sem hvarf sjö árum fyrr.
Hvað leiðangurinn finnur á áfanga-
stað skal ósagt látið en bæði „The
Shining" og Særingannaðurinn
hafa verið nefndar í sömu andrá og
þessi mynd.
Draugamynd í geimnum
Anderson er af nýrri kynslóð
breskra kvikmjmdagerðarmanna
sem mjög hafa látið að sér kveða
undanfarin ár og numið land í
Hollywood og fylgir nú í fótspor
landa síns Ridley Scotts, sem gerði
„AIien“ forðum daga. Anderson
leikstýrði sinni fyrstu mynd fyrir
Channel 4 í Bretlandi, „Shopping",
og var ráðinn til þess að stýra
„Mortal Kombat" fyrir New Line
Cinema. Tekjur af þeirri mynd
numu 150 milljónum dollara og
Anderson varð eftirsóttur leikstjóri
í draumaverksmiðjunni. „Event
Horizon“ er fyrsta myndin sem
hann gerir fyrir eitt af stóru kvik-
myndaverunum í Hollywood, Para-
mount, en hann stefndi ætíð á kvik-
myndaborgina ásamt vini sínum og
framleiðanda, Jeremy Bolt. „Geim-
hrollvekja þessi er afturhvarf til
áttunda áratugarins að því leyti að
hún er gæðamynd en vel blóðug
eins og Særingarmaðurinn eða
„The Shining“. Ekki á ómerkilegan
eða ódýran hátt, ekki eins og
„Hellraiser“, en það er blóð í henni
og hellingur af því. Þó er spennan
sem við reynum að skapa ekki síð-
ur sálræn,“ er haft eftir Anderson.
„Ein af okkar uppáhaldsmyndum
er draugamyndin „The Haunting,"
segir Bolt, „og handrit „Event" var
eins og hún nema okkar mynd ger-
ist í útgeimi. Hún sameinar tvö
áhugamál okkar, vísindaskáldskap
og hrollvekju, og okkur líkaði vel
sú hugmynd að safna saman góðum
leikurum og setja þá í þetta
draugaskip og sjá hvernig þeir bil-
ast.“
Myndin var tekin í Pinewood
kvikmyndaverinu í Bretlandi því
það eitt var nógu stórt til þess að
hýsa þær 20 risastóru leikmyndir,
sem í myndinni eru. Smíðuð voru
m.a. líkön af tveimur geimskipum
bæði að utan og innan og reist var
geimstöð á Pinewood-lóðinni. Adir-
an Biddle var ráðinn myndatöku-
stjóri en hann kvikmyndaði ,Ali-
ens“, búningahönnuðurinn John
Mollo sá um klæðnaðinn eins og
hann gerði í Stjömustríði og
,Alien“ en leikmyndirnar hannaði
Joseph Bennett, sem starfaði m.a.
við „Jude“. Anderson krafðist þess
að þær væru í senn tæknilegar í út-
liti og miðaldalegar.
Engar stórstjörnur
Talið var frá upphafi að myndin
þyrfti ekki á Hollywood-stjörnum
að halda og var Paramount-foryst-
an, undir stjórn forstjórans, Sherry
Lansing, mjög hörð á því. Ander-
son og Bolt fóru út í kvikmynda-
gerðina eftir að hafa snætt hádeg-
isverð með eiginmanni Lansing þar
sem þeir veltu því fyrir sér hvort
það væri ekki gaman að búa til
mynd eins og Særingarmanninn.
Lansing frétti af áhuga þeirra á
slíkri mynd og sendi þeim handritið
að „Event Horizon", sem lá óhreyft
hjá kvikmyndaverinu. I mynd eins
og þessa, sagði Lansing, er engin
þörf á að eyða milljónum í ofboðs-
lega miklar Hollywood stjömur,
það er nóg fyrir okkur að notast við
góða leikara. „Það er fremur leik-
hópurinn allur sem er í aðalhlut-
verki en ekki einhverjir einstakir
leikarar," segir Bolt. „Þeir sem
deyja eru kannski ekki þeir sem
áhorfendur bjuggust við að
dræpust og þeir sem lifa af era
kannski ekki þeir sem áhorfendur
bjuggust við að mundu lifa af. Ekk-
ert er gefið fyrirfram."
Anderson réð Sam Neil í hlut-
verk vísindamannsins Weir, hönn-
uð geimskipsins Event Horizon
m.a. vegna þess að hann sýndi það í
Júragarðinum að hann gat leikið
talsvert sannfærandi á móti kvik-