Morgunblaðið - 12.02.1993, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 12.02.1993, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1993 ’•»' ' " ............ ................ " ■ ■■ ■ ■ -------------------------------------------;-------- Engum að treysta Tveir gamlir og sjaldséðir góðkunningjar af hvíta tjaldinu, Sidney Poitier og Robert Redford, leika hátæknisnillinga með vafasama fortíð í Laumuspili. Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Háskólabíó: Laumuspil - Sneakers Leikstjóri Phil Alden Robinson. Handrit Robinson, Lawrence Lasker, Walter F. Parkes. Kvik- myndatökusljóri John Lindley. Tónlist James Horner. Klipping Tom Rolf. Aðalleikendur Robert Redford, Dan Aykroyd, Ben Kingsley, Mary McDonnell, Ri- ver Phoenix, Sidney Poitier, David Strathairn, Timothy Busfield, George Hearn. Banda- rísk. Universal 1992. Hér er komin mynd sem er skóla- bókardæmi um vinsældarfomúlu Hollywood-framleiðenda. Hröð, spennandi, prýdd stjömuskara og tæpast dauðan punkt að finna. Þó situr lítið eftir að leikslokum en afþreyingin óvéfengjanleg. Það eru myndir einsog Laumusspil sem laða að sér fjöldann og eru kjölfesta kvikmyndaiðnaðarins Myndin hefst á því að tölvusnill- ingamir Martin og Cosmo, skóla- bræður og félagar á sjöunda ára- tugnum, bijótast inní tölvubanka og er Cosmo gómaður af yfirvöld- um en Martin sleppur. Nú líður aldarfjórðungur. Martin (Redford) er orðinn forsprakki sundurleits hóps hátæknisnillinga sem allir burðast með eitthvað misjafnt í pokahominu, sjálfur hefur hann starfað undir dulnefni síðan hann slapp úr innbrotinu forðum. Félag- amir eru fyrrverandi FBI-mað- urinn Crease (Poitier), unglingur- inn og tölvuséníið Carl (Phoenix), Mother, margdæmdur tölvuaf- brotamaður og Whistler hinn blindi (Straitham). Hópurinn fæst að öllu jöfnu við hleranir, öryggiskannanir og njósn- ir af ýmsum toga en dag einn fær Martin heimsókn frá mönnum sem segjast vera sendir af stjómvöldum og krefjast þess að hann hafi uppá og ræni byltingarkenndum dul- málslykli sem þau óttast að falli að öðmm kosti óvinum þeirra í skaut. Það tekst og ballið byijar. Erindrekamir voru falskir, Rússar og Bandaríkjastjóm eru á eftir lykl- inum, svo og dularfull samtök sem reynast hlýða stjóm Cosmos (Kingsley), sem álitið var að hefði látist fyrir löngu í tugthúsinu. Martin og félagar eru rændir lykl- inum og þeir gera sér grein fyrir að þeir verði að hafa uppá honum aftur ef þeir eiga að halda lífi. Geta engum treyst enda útilokað að sjá hveijir eru vinir eða óvinir. Sem fyrr segir er Laumuspil fyrsta flokks þó hún risti ekki djúpt. Forvitnilegastur er sá há- tæknibúnaður sem notaður er í myndinni og félagamir nota sér til aðstoðar. Það er ekki nóg að þeir búi yfir kunnáttu og tækni til að bijótast inní velflest tölvunet -og -banka heldur hafa þeir milli hand- anna ýmiskonar háþróaðann njósnabúnað að það er með ólíkind- um að hann er ekki hugarsmíð heldur tækni sem fæst keypt á al- mennum markaði vestan hafs. Rob- inson heldur uppi mikilli spennu og hraða myndina út í gegn og tekst einnig að skapa andrúmsloft þrungið óöryggi og ofsóknartilfinn- ingu. Þrátt fyrir að tækniundrin sem við blasa séu fjarri þekkingu hins almenna kvikmyndahússgests kemur það aldrei að sök því hand- ritið - sem reyndar er heldur ekk- ert of margorða - er laust við leið- indaútskýringar og löng atriði þar sem tölvutæknin er í fyrirrúmi. Mannlegi þátturinn er ekki ýkja sterkur og rómantíkin hefur sjálf- sagt verið skrifuð inní handritið fyrir Redford til að gera hlutverk hans mannlegra og matarmeira, McDonnell er nánast til skrauts. Persónumar rista ekki djúpt en eru hinsvegar undantekningarlaust í góðum höndum. Stórleikarinn Ben Kingsley, sem æ oftar er farinn að birtast í matarmiklum aukahlut- verkum, fer einstaklega vel með sitt og kemst nokkur nærri Red- ford í hlutverki hinnar ofursvölu og snjöllu alamerísku hetju. Þá er Straitham athyglisverður og for- vitnilegt að sjá hvemg honum tekst til í myndinni sem Sidney Pollack er að gera þessa dagana, en það er engin önnur en kvikmyndagerð Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Þrír ninjar („3 Ninjas“). Sýnd í Bíóhöllinni. Leikstjóri: Jon Turtletaub. Aðalhlutverk: Victor Wong, Michael Treanor, Max Elliott Slade, Chad Power. Bama- og ijölskyldumyndin Þrír ninjar segir frá þremur hressum strákum á fermingaraldri sem tak- ast á við slægan vopnasala. Það eina sem þeir hafa til að beijast gegn honum og óþjóðalýð hans er kunnátta og leikni í sjálfsvamar- íþróttum, sem afí þeirra hefur inn- rætt þeim. Og það er ekki að spyija að því, stráklingamir leggja mis- yndismennina flata. metsölubókarinnar The Firm. Homer er einn af fremstu kvik- myndatónskáldum samtímans og Það er talsvert um slagsmál í myndinni en öll eru þau á léttum nótum og teiknimyndaleg. Leik- stjórinn gætir þess vel að gera þau aldrei ljót heldur miklu fremur skopleg og skemmtileg. Ungir kvikmyndahúsagestir, sem myndin höfðar beint til, munu öragglega fara sparkandi í svefninn. Auðvitað þurfa þeir að gleypa það hrátt að krakkamir ráði raun- veralega við allt þetta fullorðna fólk og það verður aldrei sannfær- andi. Myndin fær heilmikið að láni úr a.m.k. þremur öðram barna- og fjölskyldumyndum. Nærtækast hefur verið að fara eftir formúl- unni sem ninja-skjaldbökumar gáfu í tveimur myndum. Þrír vit- leysingar sem eiga að ræna drengj- unum af heimilum þeirra era eins útlitið og tæknivinna öll er lýtalaus og eiga stóran þátt í ágæti skemmt- unarinnar. og klipptir út úr Veröld Waynes. Og einn kafli myndarinnar er eftir- líking af Aleinum heima þegar drengimir beijast við ræningjana aleinir heima hjá sér og taka þá í karphúsið. Svo það er ekki beint framleika fyrir að fara í myndinni en hún verður aldrei mjög ómerkileg eða leiðinleg með þijúbíó-persónur sín- ar og einfeldingslega þijúbíó-frá- sagnarhætti. Strákarnir fara ágæt- lega með hlutverkin sín og eru a.m.k. skömminni skárri en full- orðna fólkið, sem er eins og sam- safn áhugaleikara. Sá gamli og geðþekki leikari Victor Wong leikur afann, sem er hramur meistari í íþróttinni, en ljóst er að staðgeng- ill hans hefur haft í nógu að snúast. Þrír ninjar er sárasaklaust þijú- bíó sem gætir þess að slagsmálin og óþokkaskapurinn fari aldrei yfir strikið og misbjóði ungu gestunum. Hún veitir ungviðinu sjálfsagt ágæta skemmtun. Krakkar til bjargar | ó/ fer hækkandi, það er föstudagur og við kynnum giæsiiega vöru- sendingu sem A komin erí Habitat-húsið V HUCSADU ÞER GOTT TIL CLODARINNAR ... ... því viö kynnism mikiö úrval af faiiegri heimiUsvöru og vönduöum húsgögnum sem gefa heimilinu hlýlegan og persónu/egan stíl. ... eru vandaðar heimilisvörur sem viö bjóðum á hverjum tíma á einstöku tilboðsverði. 12 BÍLASTÆÐI Það eru 271 bílastæði í nýja bílageymslu- húsinu Traðarkoti við hliðina á Habitat-húsinu. habitat OPID VIRKA DACA 10.00 1 8.00 OG LAUCARDACA 10.00 14.00 LAUGAVEGI 13-SIMI (91) 625870

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.