Morgunblaðið - 12.02.1993, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 12.02.1993, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1993 19 Efnt til þýskuþrautar nemenda í framhaldsskólum Þýskalandsdvöl í verðlaun ÞÝSKUKENNARAR efna í dag, föstudag, til samkeppni meðal framhaldsskólanema um boðsferðir til Þýskalands. Þarlend stjórnvöld hafa boðið tveimur íslenskum framhaldsskólanemum til mánaðardvalar í Þýskalandi í sumar líkt og undanfarin 20 ár. Nú er tekin upp sú nýbreytni að nemendur keppa um ferð- irnar í stað þess að tilteknir skólar úthluti dvalarstyrkjunum. Félag þýskukennara hefur veg og vanda af Þýskuþrautinni sem haldin verður í framhaldsskólum landsins föstudaginn 12. febrúar, kl. 11-12.30. Hér er um að ræða leiknipróf sem reynir á þýsku- kunnáttu, hugkvæmni og ráðsnilld keppenda. Þeir sem best leysa þrautina verða síðan boðaðir til viðtals við þýskukennara sem velja nemendur til fararinnar. Einnig verður úthlutað tíu bókarverðlaun- um. Þeir einir eru gjaldgengir til þátttöku sem eru fæddir á árunum 1974-1976, hafa lært þýsku eina og hálfa önn hið minnsta, eru ís- lenskir ríkisborgarar, hafa ekki dvalið langdvölum í Þýskalandi og eiga ólokið minnst einni önn í þýsku. Farið verður til Þýskalands í júlí og dvalið í borgunum Múnc- hen, Berlín, Bonn og Wúrzburg. Nemendurnir eru lengstum í hópi 15 nema frá sex löndum með far- arstjórum. Þá búa þeir tvær vikur hjá gestafjölskyldu og sækja þýsk- an framhaldsskóla. Dagskráin er Leiksýn- ing á veg- umeldri borgara SÓLSETUR heitir gamanleikrit eftir Sólveigu Traustadóttur sem ieikfélagið Snúður og Snælda sýnir um þessar mundir. Snúður og Snælda er leikhópur innan Félags eldri borgara og hefur hann starfað frá ársbyijun 1990. Sýningar á Sólsetri eru bæði um helgar og á virkum dögum í hús- næði félagsins, Risinu að Hverfis- götu 105. Leikritið er um heimilisfólk og starfsmenn elliheimilis. Heimilið heitir Sólsetur og er staðsett úti á landi. Á gamansaman hátt er fjallað um málefni aldraðra, til dæmis ást- ina og minnisleysi. Þessi uppfærsla hefur hlotið góða dóma hjá leihús- gagnrýnendum dagblaða, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá- Snúði og Snældu. Þar segir einnig að þó fjallað sé um málefni aldr- aðra, eigi leikritið einnig fullt erindi til yngri leiklistarunnenda, enda sé á ferðinni fjörugur gamanleikur með hraðri atburðarrás. Bjami Ingvarsson leikstýrir upp- færslunni og leikarar em allir á aldrinum 70-77 ára nema einn, sem leikur í forföllum annars. Miðaverð er 800 kr. og eru miðar seldir á skrifstofu Félags eldri borgara og við innganginn. Næsta sýning verð- ur nk. sunnudag kl. 17. ♦ »■ þéttskipuð skoðunarferðum, menningarviðburðum, móttökum, upplýsingafundum og þýsku- kennslu. Allur kostnaður er greiddur af þýskum stjórnvöldum. Vigdís Þórarinsdóttir, nemi í MS, og Sigríður Ásta Ámadóttir, nemi í MH, voru valdar til Þýska- landsfarar í fyrrasumar. Þær segj- ast bæði hafa haft gagn og gaman af ferðinni. Þær kynntust vel landi og þjóð, eignuðust fjölda vina og þýskukunnáttan jókst stómm. „Mér fannst muna mest um hvað ég þjálfaðist í talmálinu," sagði Vigdís. Þær luku báðar lofsorði á góða skipulagningu og frábærar viðtökur í Þýskalandi. „Við feng- um meira að segja vasapeninga. Dagskráin var ekki ofhlaðin, það gafst alltaf tóm til að skoða sig um og skreppa aðeins í bæinn,“ sagði Sigríður Ásta. Þær stöllur komu fram á skemmtikvöldi og kynntu ísland með myndasýningu og erindi. Við annað tækifæri léku þær íslensk lög á píanó og sungu. Var gerður góður rómur að þess- ari landkynningu. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Þýskalandsfarar og þýskukennarar, f.v.: Vigdís Þórarinsdóttir, Sig- ríður Ásta Árnadóttir, dr. Oddný G. Sverrisdóttir, formaður Félags þýskukennara, Guðmundur V. Karlsson, Sigríður Ragnarsdóttir, Elísabet Siemsen og Allan Rettedal. Brídshátíðin hefst í kvöld ÁRLEG bridshátið Bridssam- bands íslands og Flugleiða hefst á Hótel Loftleiðum í kvöld. Með- al keppenda eru tveir meðlimir Bláu sveitarinnar ítölsku sem hélt heimsmeistaratitlinum í brids nær óslitið í tvo áratugi. Einnig verða meðal keppenda norskir, hollenskir, breskir, pakist- anskir og bandarískir landsliðs- menn. Bridshátíðin hefst kl. 19. í kvöld með tvímenningskeppni en lýkur á mánudagskvöld með verð- launaafhendingu. ttŒ>ngT mm. ÞINGSJÁ? ...EKKI í PHILIPS SJÓNVARPSTÆKI! í Philips sjónvarpstækjum opnast þér nýjar víddir og allar lfnur verða skýrari. Skerpan er það sem skiptir máli og þegar þú hefur valið sjónvarpið frá Philips, þá sérðu líka hinar hliðarnar á málunum. Það eru jú fleiri en ein hlið á hverju máli! • BLACK LINE S myndlampi eykur skerp- una um 30%. • NICAM búnaður er í öllum okkar víðóms sjónvörpum. • íslenskt textavarp er sjálfsagður útbún- aður í öllum gæðatækjum frá Philips. Komdu og sjáðu með eigin augum. Gerðu samanburð og veldu það besta! PHILIPS þegar skerpati skiptir mdlil Heimilistæki SÆTÚNI 8 • SÍMI: 69 15 15 • KRINGLUNNI • SÍMI: 69 15 20

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.