Morgunblaðið - 12.02.1993, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 12.02.1993, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 12. FEBRUAR 1993 aeei'iiAunoiFi ,si »uoau;.jtp,0'I aiayuaT/;UDnoM Hafnfirðingar, þið eigið val! eftir Bjarna Þórðarson Það hefur væntanlega ekki farið framhjá Hafnfirðingum að bæj- aryfirvöld halda enn óbreyttri stefnu að því er varðar byggingu stórhýsis í miðbæ Hafnarfjarðar. Stórhýsis sem hefur vakið sterkari tilfinningar í bijóstum Hafnfirð- inga en önnur stórhýsi. Og hvers- vegna? Svarið er einfaldlega það að augu fjölmargra Hafnfirðinga hafa lokizt upp fyrir því að fyrir- hugað stórhýsi fellur alls ekki að þeirri byggð sem iyrir er. Að sjálf- sögðu byggist afstaða manna til bygginga á huglægu mati sem enginn algildur mælikvarði getur mælt eða metið. Þess vegna er mjög brýnt að afstaða Hafnfirð- inga til byggingar stórhýsisins verði öllum ljós. Hver og einn verð- ur að taka afstöðu því við munum búa með stórhýsinu næstu manns- aldra ef ekki verður gripið í taum- ana. Félagið Byggðavernd, sem er einskonar öryggisvörður okkar Hafnfirðinga í málum er lúta að verndun byggðar í Hafnarfirði, hefur nú hafið undirskriftasöfnun meðal bæjarbúa til þess að skora „á bæjaryfirvöld að beita sér fyrir því að fyrirhuguð stórbygging við Fjarðargötu falli sem best að um- hverfí sínu og verði ekki hærri en þau hús sem fyrir eru á miðbæjar- svæðinu.“ Takmarkið er að meiri- hluti kosningabærra Hafnfírðinga skrifí undir þessa áskorun. Takist það þurfa forráðamenn bæjarfé- lagsins ekki að velkjast í vafa um vilja bæjarbúa. Ég vil því skora á sérhvern Hafnfírðing, sem enn hefur ekki skrifað undir, að kynna sér málið og taka afstöðu til bygg- ingarinnar. Undirtektir bæjarbúa hafa verið mjög jákvæðarí upphafí söfnunarinnar eins og raunar hafði verið gert ráð fyrir. Langur og breiður skuggi Byggðavernd gaf út kynningar- rit, sem hefur verið borið út til bæjarbúa. Þar koma fram ýmsar upplýsingar um atriði sem hinn almenni borgari veltir oft ekki fyr- ir sér. Hvernig verður t.d. sólfar á Strandgötunni milli pósthússins og sparisjóðsins, svo og á Thors- planinu? Skuggi hinnar átta hæða Fróður er sá er fregna kann eftir Rögnu Ólafsdóttur Þrátt fyrir góð orð Hrannar Hrafnsdóttur, fyrsta manns á framboðslista Vöku til Háskólar- áðs í garð Námsráðgjafar HÍ í Morgunblaðinu þann 9. febrúar, þarfnast sumt í grein hennar leið- réttingar. Hrönn segir þá aðstoð sem Námsráðgjöf Háskóla íslands veitir nemendum sem eiga við prófkvíða að etja nýtast vel og einnig þá aðstoð sem lýtur að skipulagningu náms og „einka- lífs“. Hún fullyrðir að stór hluti ein- staklinga sem leita til Námsráð- gjafar varðandi persónulega ráð- gjöf séu utan Háskóla Islands. Þetta er ekki rétt, því skilja má af orðum höfundar að persónuleg ráðgjöf feli í sér aðstoð við að skipuleggja nám og einkalíf og takast á við prófkvíða, en sú teg- und aðstoðar er einungis veitt skráðum nemendum Háskólans sog þeir skipta hundruðum sem ár hvert leita til Námsráðgjafar vegna þessa. Þegar persónuleg ráðgjöf tekur til námsvals og upplýsinga um námsframboð og fyrirkomulag þá nær hún einnig til óskráðra nem- enda sem ýmist verða nemar við Háskóla íslands eða finna aðrar leiðir oft fyrir tilstuðlan Námsráð- gjafar Háskóla íslands. Það er augljós fjárhagslegur sparnaður og ávinningur fyrir Háskóla íslands ef ráðgjöf þar stuðlar að markvissu námsvali þar sem nemandanum er forðað frá því að eyða einu ári eða fleirum í nám sem síðar kemur í ljós að hentar honum ekki. Frambjóðandanum er hugleikið að leitað sér leiða til spamaðar og bendir á að eðlilegt sé að óskráðir nemendur borgi fyrir þá þjónustu sem þeir fá hjá Náms- ráðgjöfnni. Hjá Námsráðgjöf hefur þessi möguleiki verið ræddur vegna margumrædds niðurskurðar á fjárframlagi til Háskólans og hafa verið settar fram tillögur með hvaða hætti það gæti orðið. Gjald- taka þessi hefur þó ekki komið til framkvæmda m.a. vegna síauk- inna álaga á nemendur. Greinar- höfundur bendir á að æskilegt væri að auk þeirrar Námsráðgjaf- ar sem þegar er rekin verði komið á fót námsráðgjöf innan deilda. Það þarf ekki að orðlengja að slíkt kallar á fleiri störf og fyrir Háskóla íslands aukin fjárútlát, þar sem deildir Háskóla íslands eru níu og innan margra deilda eru fleiri en ein námsleið. Nú er Námsráðgjöf HÍ starfrækt með tæplega fimm stöðugildum. Ljóst er að ákveðnum upplýs- ingum væri einfaldara að miðla í gegnum deildirnar sjálfar og því hefur Námsráðgjöf Háskóla ís- lands í samstarfi við Stúdentaráð nú í vetur ýtt úr vör nemendaráðg- jöf, sem er ráðgjöf eldri nema til nýnema. Starfar hún til reynslu í nokkrum deildum. Megin hlutverk þessarar nemendaráðgjafar er m.a. að miðla reynslu og upplýs- ingum útfrá sjónarhomi nemand- ans, og koma með ábendingar um áherslur innan einstakra nám- skeiða. Nemendaráðgjafar starfa í náinni samvinnu við Námsráðg- jöf. Námsráðgjöf er þjónusta fyrir stúdenta. Eðlilegt er að þeir standi vörð um starfsemi hennar. Stúd- entar eiga greiðan aðgang að starfsmönnum stofnunarinnar og Ragna Ólafsdóttir misskilningur á borð við þann sem fram kemur í grein efsta manns á lista Vöku í Morgunblaðinu dag- setta 9. þessa mánaðar ætti að vera óþarfur. Höfundur er starfandi forstöðumaður Námsráðgjafar Háskóla Islands. hótelbyggingar verður bæði lang- ur og breiður og þeim mun fækka mjög stundunum, sem Hafnfírð- ingar fá notið þar sólar. En verður þá ekki skjólgott þarna í miðbæn- um þegar vindar blása um bæinn? Nei, þvert á móti, svona hábygg- ingar draga að sér vindsveipina og skella þeim niður til jarðar. I ritinu er minnt á meginmarkmið í miðbæjarskipulagi sem enn er í fullu gildi en þar segir: „Allar nýbyggingar í miðbæ skal leitast við að fella svo sem best má verða að þeirri byggð sem fyrir er. Tekið skal mið af hinum ríkjandi mælikvarða byggðarinnar í heild." Telja forráðamenn bæjarfélags- ins sig hafa haft þetta markmið að leiðarljósi þegar þeir sam- þykktu byggingu þá sem hér um ræðir?! Það hefur komið fram í blaða- viðtali við bæjarstjórann að ekki sé endanlega búið að ganga frá útlitshönnun byggingarinnar og því sé ekki tímabært að gagnrýna hana eða taka afstöðu. Það skiptir litlu hvort einhveijar breytingar muni verða á útliti byggingarinnar þegar áformin um átta hæða byggingu eru óbreytt. Þegar er risin bygging á svæðinu sem er fjórar hæðir og hygg ég að flestum þyki það hámarkshæð á bygging- um í miðbænum. Hlutafé 1 milljón Fjármögnun þessara fram- kvæmda er ekkert smámál. Þær munu ekki kosta minna en einn og hálfan milljarð eða um 100.000 krónur á hvem Hafnfírðing. Að þessum framkvæmdum hyggst standa hlutafélag með eina milljón króna í hlutafé en hluthafar munu vera fimm einstaklingar. Hafa for- ráðamenn bæjarins metið þá áhættu sem bæjarfélagið er að taka með því að heimila bygginga- raðila með jafn veika fjárhags- stöðu að ráðast í þessar fram- kvæmdir? Um leið og ég þakka forsvars- mönnum Byggðaverndar ötula foiystu þeirra í máli þessu vil ég taka undir orð eins af stjórnar- mönnum félagsins, . Kristjáns Bjarni Þórðarson „Svona hábyggingar draga að sér vindsveip- ina og skella þeim niður til jarðar.“ Bersa Ólafssonar, skólameistara, í blaðaviðtali: „Þegar við höfum þessar undirskriftir í höndunum er það trú okkar að iýðræðið nái fram að ganga. Við trúum því og vonum að stjómmálamenn virði vilja kjósenda sinna“. Höfundur er trygginga- stærðfræðingur og starfar sem framkvæmdastjóri ísienzkrar endurtryggingar. 4* —r með frönskum og sósu =995.- TAKIDMED - tilboð! TAKIDMEÐ - tilboð! Mrn & D /A \ DJ(^ miðað við efnahagshorfur! LADA • LADA • LADA • LADA SAFÍR Frá 418.000,- kr. 104.500,- kr. út og 10.051,- kr. í 36 mánúði SKUTBILL SAMARA Fm 498.000,- kr. 134.500,- kr. út og 11.974,- kr. í 36 mánu’ói Frá 523.000,- kr. 131.000,- kr. út og 12.568,- kr. í 36 mánu’ói SPORT Frá 798.000,- 200.000,- kr. út og 19.172,- kr. í 36 máiiu’öi Tökum nota’ða bíla sem greiðslu upp í nýja og bjóðiun ýmsa aðra greiðslvunöguleika. Tekið hefur verið tillit til vaxta í útreikningi á mánaðargreiðslum. AFAR RAUIVHÆFI'R KOSFUR! líSÍMÍín' BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF. ÁRMÚLA 13. SlMl: 68 12 00 BEINN SIMI: 3 12 36

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.