Morgunblaðið - 12.02.1993, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 12.02.1993, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1993 KEA Gylfi Krist- insson vöru- hússtjóri GYLFI Kristinsson hefur verið ráðinn vöruhússtjóri hjá Kaupfé- lagi Eyfirðinga og hefur hann þegar tekið til starfa. Gylfi hefur víðtæka reynslu af verslunarstörfum og var verslunar- stjóri hjá stórmarkaði Kaupfélags Suðumesja, Samkaupum, á tímabil- inu 1988 til 1992. Hann er fæddur árið 1962, rafvirki að mennt og hef- ur starfað að iðn sinni að undan- fömu. Kona hans er íris Jónsdóttir og eiga þau tvö syni. -----» ♦ ♦---- Sjávarútvegssvið KEA Jón Þór ráðinn for- stöðumaður JÓN Þór Gunnarsson hefur verið ráðinn forstöðumaður sjávarút- vegssviðs Kaupfélags Eyfirðinga. Forstöðumaðuc sjávarútvegssviðs mun hafa yfirumsjón með fiskvinnslu og útgerð á vegum félagsins og gæta hagsmuna þess út á við. Jón Þór hefur starfað hjá kaupfé- laginu sl. hálft ár og unnið að ýmsum sérverkefnum, einkum á sviði sjávar- útvegs. Jón Þór var framleiðslustjóri hjá Islenskum skinnaiðnaði hf. árið 1988-1991 og framvkæmdastjóri niðursuðuverksmiðju K. Jónsson og Co hf. 1991-1992. Hann stundaði nám í iðnaðarverkfræði og viðskipta- fræði við háskólann í Alabama, er kvæntur Birgittu Guðmundsdóttur og eiga þau tvö böm. -----» ♦ ♦---- Strompleik- ur á Dalvík Leikfélag Dalvíkur hefur ákveðið að setja upp leikritið Strompleik eftir Halldór Laxnes. Þráinn Karlsson hefur verið ráðinn til að leikstýra því og em æfingar hafnar. Leikarar í verkinu era alls 17, þar af 10 í veigameiri hlutverk- um. Helstu hlutverk eru í höndum Maríu Gunnarsdóttur, Birkis Braga- sonar, Steinunnar Hjartardóttur og Sigurbjöms Hjörleifssonar. Frumsýning er áætluð um eða upp úr miðjum marsmánuði. Morgunblaðið/Rúnar Þór Tjarnir ræstar fram f hlýindunum undanfama daga hafa starfsmenn Akureyrarbæjar þurft að fýlgjast vel með niðurföllum í bænum bænum. Randver Karlsson var önnum kafinn við að ræsa fram tjamir sem myndast hafa ofan Huldugils, þegar ljósmyndari átti leið hjá. Ungfrú Norður- land valin í kvöld Tíu stúlkur keppa um titilinn UNGFRÚ Norðurland verður valin úr hópi tíu stúlkna í Fegurðarsam- keppni Norðurlands sem haldin verður í Sjallanum á Akureyri í kvöld, föstudagskvöldið 12. febrúar. Dagskráin hefst kl. 19, en lýkur um miðnætti þegar fegurðardrottning Norðurlands verður krýnd. Fjölbreytt dagskrá Á meðal dagskráratriða má nefna að Jennifer Spear leikur nokkur lög á gítar, Magnús Schev- ing sýnir þolfimi og Rut Reginalds syngur nokkur lög. Þá verða stúlk- urnar tíu sem þátt taka í keppninni kynntar, valin verður ljósmyndafyr- irsæta úr hópnum og einnig vinsæl- asta stúlkan, en hápunkturinn verð- ur er val á fegurðardrottningu Norðurlands verður kunngjört um miðnætti. Stúlkan sem verður fyrir valinu mun taka þátt í sarnkeppn- inni um fegurðardrottningu íslands sem haldin verður í Reykjavík í vor. Stúlkumar í keppninni að þessu sinni era Pálína Stefanía Sigurðar- dóttir, Petra Halldórsdóttir, Þórann Halldórsdóttir, María Bragadóttir, Karen Ingimarsdóttir, Kristín Steindórsdóttir, Anna Soffía Vatns- dal, Elva Eir Þórólfsdóttir, Margrét Sonja Viðarsdóttir og Andrea Ás- grímsdóttir. Formaður dómnefndar er Ólafur Laufdal, en aðrir í nefndinni era Bragi Bergmann, ritstjóri, Steinunn Guðmundsdóttir, verslunarmaður, Sigtryggur Sigtryggsson, frétta- stjóri, og Ester Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri Fegurðarsam- keppni íslands. Mikill áhugi Kynnir verður Hermann Gunn- arsson, en Þorgerður Kristinsdóttir og Sigurður Gestsson hafa séð um þjálfun stúlknanna. „Það er mikill áhugi fyrir þessari keppni, það er rétt að verða upp- selt," sagði Kolbeinn Gíslason, framkvæmdastjóri Sjallans, í gær. Heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri vill takmarka fjölda nýnema Skortur á námsplássi í sér- hæfðum verklegnm greinum TAKMARKAÐ námspláss í sérhæfðum verklegum greinum veldur því að forstöðumaður heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri hefur farið þess á leit við háskólanefnd að hún beiti sér fyrir því að heimild menntamálaráðuneytis fáist til að takmarka fjölda þeirra sem hefja nám í hjúkrunarfræði við skólann næsta vetur við 25 nýnema. Heimilt að beita takmörkunum Á deildarfundi heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri í vikunni var samþykkt ályktun þar sem fram kemur að fundurinn beini þeirri ein- dregnu ósk til háskólanefndar að hún beiti sér fyrir því að fengið verði samþykki menntamálaráðuneytis til að takamarka fjölda þeirra sem hefja nám í hjúkranarfræði veturinn 1993-1994 við 24 nýnema og er vísað til heimildarákvæðis þar um í lögum um Háskólann á Akur.eyri. Síðastliðið vor bárast um 40 um- sóknir um nám í heilbrigðisdeild og varð deildarfundur þá að nýta sér það ákvæði í lögum að skólanum væri ekki skylt að taka við nemend- um sem ekki hefðu lokið stúdents- prófi. Stúdentar sem teknir vora inn vora hins vegar það margir að það mun valda nokkram vandræðum þegar hópurinn er kominn á 3. og 4. ár og fer að stunda verklegt nám í sérhæfðum greinum þar sem náms- pláss er takmarkað. 13plássáFSA Sigríður Halldórsdóttir, forstöðu- maður heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri, segir mikilvægara en áður að deildin fái að nýta sér heim- ildarákvæði í lögum um skólann þar sem segir að unnt sé að takmarka fjölda þeirra sem hefja nám við deild- ir skólans að fengnu samþykki menntamálaráðuneytis. Alls era 13 pláss fyrir hjúkranar- nema í Háskólanum á Akureyri á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Nú era 16 nemar á 3. og 4. ári í hjúkrunarfræði í skólanum og sagði Sigríður að rétt slyppi til að þeir gætu notið verklegrar kennslu. Þá hafa nemar verið sendir til verklegs náms á Siglufirði og Sauðárkróki. 25 komast áfram Fáist heimild ráðuneytis til að tak- marka fjölda nýnema í deildinni við 25, sagði Sigríður að líklegast yrði farin svipuð leið og við læknadeild Háskóla íslands, þannig að þeir 25 sem bestum árangri næðu kæmust áfram. Umsækjendur sem fengið hefðu 6 á stúdentsprófi gætu hafið nám á 1. ári, en þó gerð grein fyrir að úr því yrði skorið í desemberpróf- um hverjir 25 myndu halda áfram og yrði þá miðað við meðaleinkunn á desemberprófum. „Eg fagna þeim greinarmun sem gerður er á einkunnunum 5 og 6 á stúdentsprófinu. Mín reynsla er sú að þeir sem rétt hafa skriðið gegnum stúdentspróf era ekki tilbúnir í há- skólanám, þá vantar undirstöðuþekk- ingu og þá vitrænu ögun sem há- skólanám krefst af fólki,“ sagði Sig- ríður. Nýju vorlitimir 1993 frá Guerlain cru komuir Kynning verður í Söndru, Hafnarfirði, Vaxandi áhugi á skógrækt við Eyjafjörð Eyfirskir skógar- bændur stofna félag Ytri-Tjðrnum. SKÓGARBÆNDUR við Eyjafjörð hafa stofnað með sér félag, Félag skógarbænda við Eyjafjörð og er markmið þess að vera málsvari þeirra sem stunda skógrækt, hvort sem er til viðarframleiðslu, útivistar eða landgræðslu. Mikill og vaxandi áhugi er á skógrækt hér á svæðinu. landsvæði undir almenna skógrækt. Þá er fyrirhugað á næsta sumri að girða land í Staðarbyggðafjalli, en þegar því er lokið verður búið að girða á annað hundrað hektara lands sem tilbúið verður til skógræktar. , Þegar er búið að girða nokkurt svæði á þessum slóðum og er kominn vísir að allmiklum skógi sums staðar. Sextán manns gengu í félagið á fyrsta fundi þess og er stofnfélaga- skrá opin til 1. júní næstkomandi. í stjórn félagsins eru Davíð Guð* mundsson, Glæsibæ, Emilía Baldurs- dóttir, Syðra-Hóli og Kristján Theód- órsson, Brúnum. Benjamín Einnig er hugmynd um að félagið verði til aðstoðar við samningagerð við opinbera aðila, svo sem Skógrækt ríkisins eða aðra þá aðila sem félags- menn hafa samskipti við vegna notk- unar skóga. Ennfremur er félaginu ætlað að leita leiða til að koma afurð- um skógarins í verð og þá hafa for- svarsmenn félggins líka áhuga á að standa fyrir fræðslufundum og út- vega fræðsluefni er varðar skógrækt í samvinnu við fagaðila á svæðinu. Skjólbelti Áhugi á skógrækt í Eyjafirði hefur farið vaxandi á síðustu áram og hafa nokkrir bændur komið sér upp skjólbeltum og aðrir tekið allstór

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.