Morgunblaðið - 01.11.1991, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 01.11.1991, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1991 VELVAKANDI SVARAR f SÍMA B91282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS , „ Loppa og Jón Loppufóstri Yfír orðadyn um „frábæra” samn- inga við Evrópusamfélagið grúfír nú á hausti nálægt veturnóttum dökkur kólgubakki orða og ætlana um þörf þess að íslendingar tengist og taki þátt í samrunaþróun Evrópu. Hvað á maðurinn við? Er það „fjórða rík- ið”, miðveldið, er eftir millitíð nok- kurra „kanslara” taki við af þriðja ríkinu, þúsund ára ríkinu, sem entist tólf blóðug ár. Er það ríkið, er hafi rústir breska heimsveldisins í jaðri auk verbúða og aflstöðva á eyju langt útnorður frá sér, í hafi. í vaxandi mæli lætur hópur á sér kræla í Miðevrópu, sem vekur svona ugg. Á maðurinn við öfugmælið á heimsbyggðinni, veldið er stefnir hraðfara að aukinni miðstýringu þegar heimatryggð og ættjarðarást vaxa hvarvetna þar sem ofstjórnar- fjötrar falla? Stundum bregður björtu ljósi á viðburði samtíðar frá Iíkingavisku þjóðsögu: Á Bleiksmýrardal, inn af Fnjóskadal er Loppuskáli. Þar bjó Loppa tröllkona og systir hennar. Báðar voru þær í blóma þroska síns er sagan gerðist. Hvergi vissu þær af tröllkarli og stálu því ungum og efnilegum Jóni úr sveitinni. Vel vildu þær að honum búa á sína vísu, orguðu í eyru hon- um, að hann gleymdi ættbyggð sinni, smurðu hann smyrslum einhvetjum, teygðu hann og toguðu, þæfðu milli sín í bólinu, að hann stækkaði og Þessir hringdu . .. Niðurfelldur tollur Torfi hringdi og þótti það skrý- tið að stöðvarbílstjórar fengju gefinn eftir toll á bílum sem þeir kaupa, af hverju ættu þeir rétt á því frekar en almenningur? Hann tók sem dæmi að þótt hann væri smiður og keypti sér rennibekk þá fengi hann ekki gefinn eftir toll þrátt fyrir að um atvinnutæki hans væri að ræða. Úr fannst Úr fannst í Stakkahlíðinni fyrir viku. Upplýsingar eru gefnar í síma 18613 eftir kl. 19. Leitar að kvæði Ólöf hringdi og vildi athuga þroskaðist til að gagnast þeim við fjölgun tröllakyns. Illa treystu þær Jóni að leggja ekki til stroks og fór því aðeins önnur til aðdrátta í senn. Systir Loppu fórst í veiðiferð. Varð Loppu angursamt við missinn og vegna efa um tryggð fóstra síns. Eitt sinn gerði Jón sér upp veik- indi, sagðist banvænn nema hann fengi tólf ára hákarl. Loppa vildi hjálpa fóstra sínum og fór að leita þó að illa treysti hún Jóni. Fljótlega lagði hann af stað, hitti stóðhross á dalnum er hann tók til reiðar, en sprengdi þijú, svo var hann stór og þungur orðinn og gekk þó meg- inhluta leiðar niður í Illugastaði. Kominn í túnjaðar þar heyrði hann Loppu hrópa: „Hérna er tólf ára gamli hákarlinn, Jón og þrettán ára þó. Ég sótti hann á Siglunes.” Jón Ég get nú ekki orða bundist leng- ur, þegar ég les öll skrifin um að leggja niður starfsemi Landakotssp- ítala í núverandi mynd. Ég hugleiddi ekki þessi mál mikið á meðan ég var enn ung og hress, en svo breyttist þetta eins og hendi hvort einhver kynni kvæði sem hún lærði fyrir mörgum árum en væri nú búin að týna niður að mestu leyti. Hún hélt að fyrsta erindið byijaði eitthvað á þessa leið: Ég kem til ykkar vinir klökkur í dag og kveðjuorðin deyja mér á vörum. Upphaf annars erindis hljóðar ein- hvern veginn svona: Því er ég að kveðja og þakka fyrir allt ég þrái aðeins friðinn til að gleyma. Samstaða gegn kynþáttarfordómum Ragna Sigurðardóttir vildi lýsa yfir samstöðu sinni með skrifum Kristjáns Þórissonar í Morgun- blaðinu 30. október þar sem hann ijallar um kynþáttarfordóma á íslandi. Ragna vildi í því framhaldi koma með fyrirspurn til Magnúsar Þorsteinssonar bónda í Grímsnesi um það hvort hann viti að hann sé að fordæma kynþætti sem hafi skapað þá menningu sem fyrr og síðar hafi ríkt í heiminum? Hún segir norræna kynstofninn engan veginn hafa ráð á því að fordæma aðra kynþætti eða þykjast þeim æðri. komst til kirkju, bað að klukkum væri hringt og snéri Loppa frá við hljóðið. Jón dó af ofreynslu eftir þijá daga, og fékk leg í Illugastaða- kirkjugarði. Með vísun til þess að þeim skuli fyrirgefast, sem ekki vissu hvað þeir gerðu, er ekki vonlaust að nú- tímajóni veitist sú mikla mildi að íslandssagan forði minningu hans frá að bera brennimark á enni í ald- ir fram. Einnig fái hann að komast þangað, sem hann á heima: til hægri við Björn Bjarnason af Illugastaða- ætt, þar sem hann lifí í nokkra ára- tugi við góða heilsu, en áhrifalítill og meinlaus. En að við göngum í hóp, þar sem blindur leiðir blindan? Nei. Samstaða nú — um óháð Island. Hlöðver Þ. Hlöðversson væri veifað og ég veiktist af krabba- meini og var send á Landakot til aðgerðar. Betri umönnun og aðhlynningu hefði ég hvergi getað fengið og þeg- ar ég hugsa til baka, á ég bara góð- ar minningar um dvöl mína þar. Seinna fór ég í fleiri aðgerðir, í allt fjórum sinnum. Ég kveið aldrei fyrir að koma aftur þangað, ég vissi að ég var í bestu höndum. I dag eftir u.þ.b. 7 ár sýnir þetta fólk, jafnt læknar og starfsfólk, glatt og hlýlegt viðmót, þegar ég kem á spítalan í eftirskoðun eða bara í heimsókn. Mér fínnst læknar sem þá veittu mér sína bestu aðstoð vera eins og ættingjar eða gamlir vinir, svo hlýtt er viðmót þeirra og áhugi fyrir líðan minni. Aldrei var ég vör við bruðl eða óþarfa austur í eitt eða annað nema hlýja og kærleikur sem veitt var ómæld. Ég bið til þess sem öllu ræður, að þeir sem nú vilja draga úr útgjöld- um hjá því opinbera, hugsi sig vel um. Þeir hljóta að sjá að þeir eru þarna að byija á öfugum enda. Góðu menn, reynið að setja ykkur í okkar spor sem sjúkir eru, vonandi haldið þið sjálfir góðri heilsu, en enginn veit hver þarf næst á aðstoð að halda og ég trúi ekki að nokkur fari að óþörfu á sjúkrahús eða dvelji þar lengur en þörf er á. Með hlýhug og bestu kveðju til allra þeirra mörgu sem hjálpuðu mér í gegnum veikindi mín, sú aðstoð var veitt af kærleika en ekki neinu öðru, það er ég alveg viss um. Júlíana G. Bender Innlegg í umræðu um Landakotsspítala $prengjuvikal Allt að 35% afslátturi R E Y K J A V l lCJULfí 4& Wboúsvika 1.-8. nóvemlier Hvít járnrúm (126x62) m/dýnu kr. 20.500,- fullt verð kr. 29.200,- Madaren létt regnhlífakerra kr. 4.900,- fullt verð kr. 6.250,- Fjörlegir koppar, bílar, flóðhestar og grasker kr. 790,- fullt verð kr. 1.150,- OpDBnaitíi: Mán. - fös. kl. 9-18 Laug. kl. 10-14. ALLJ FYRIR BÖRNIN Klapparstíg 27 - sími 19910 J NÝ SENDING S af sófasettum Ný sending af sófasettum meö áklæöi frá Belgiu og Þýskalandi. Mikið úrval Sófasett 3+1+1, sófaborð og 2 litlir stólar. Áklæði drapplitað, bleikt og rautt. Allt þetta fyrir 168.000 kr. stgr. EURO og VISA greiðslukjör

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.