Morgunblaðið - 01.11.1991, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 01.11.1991, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 1. NOVEMBER 1991 31 STJORNUSPA eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Notaðu hugmyndaauðgi þína til að afla fjár fremur en eyða því. Dugnaður þinn og kraftur færa þér ávinning, en þú lend- ir í deilu við einhvem út af peningum. Naut (20. apríl - 20. maí) Maki þinn mætir þér ekki á miðri leið í ákveðnu máli. Þú tekur þátt í íþróttum og sinnir áhugamálum þínum. Láttu starfið ekki sitja á hakanum. Tvíburar (21. maí - 20. júní) 1» Valdabrölt samstarfsmanns þíns fer ekki vel i þig. Þú fínn- ur að eitthvað er að gerast á bak við tjöldin, en nærð tökum á hlutunum áður en dagurinn er allur. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Eitthvað veldur þér áhyggjum um miðbik dagsins. Vertu varkár í orðavali á fundi sem þú tekur þátt í. Þú ferð snemma til hvílu í kvöld. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þú verður að gera það sem þú telur réttast og vænlegast þrátt fyrir vantrú einhvers í íjöldskyldunni. Meyja (23. ágúst - 22. september) a* Þó að þú lendir í erfiðleikum með að fá aðra á þitt band er ekkert sem kemur í veg fyrir að þú hagir gerðum þínum samkvæmt sannfæringu þinni. Nú dugir ekki annað en stað- festa og dirfska. V°S , (23. sept. - 22. október) Dagurinn einkennist af skrif- fínnsku- og fjármálavafstri. Kannaðu málin ofan í kjölinn áður en þú gengst inn á skuld- bindingar af nokkru tæi. Sporddreki (23. okt. - 21. nóvember) ®jjj0 Þegar þið hjónin hafið komið ykkur saman um að vera ósammála er ekkert því til fyr- irstöðu að þið farið út saman og hafíð það skemmtilegt. Vandamálin leysast af sjálfum sér þegar maður er innan um vini sína. Bogmaöur (22. nóv. - 21. desember) Þér virðist fyrirmunað að skilja ákveðinn þátt í starfi þínu. Reyndu að fá betri yfirsýn og ræddu við þá sem bera ábyrgð- ina. Árangurinn getur orðið ótrúlegur. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú kannt að verða að þola af- brýðisemi einhvers annan dag- inn í röð. Leggðu drög að því að fara í ferðalag. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Þú verður fyrir töfum í vinn- unni, en ert fullfær um að leysa ákveðin mál heima fyrir. Þetta er ekki rétti tíminn fyrir þig til að bjóða til þín gestum. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) * Ekki taka allir eftir því sem þú hefur að segja í dag, en þú ert í sjöunda himni yfir undirtektum maka þíns. Vinn ið saman. Stjörnuspána á að lesa sem iœgradvöl. Spár af þessu tagi iyggjast ekki á traustum grunni •nsindalegra staðreynda. , DYRAGLENS GRETTIR persÓnulega er éd b-70 TOMMI OG JENNI TOStAll - ■ /»V/f'B ER Hl/>rrOGSVART o<3 Si-RTTfST Tit- ? LJOSKA þú £RT etHNAQ) f VEFA QIFT <MIUNSTA >HJÖG LFN6! JKOST/ OLO KLÖEA 'ft/ER-T e/Z, FöíWM Let/NDARAAAÚKALDee/ AE> I /D >fB SVÖ/CmOJSOFA P/RR HJÓNABAUUféN DEIUWÍALIN i' FERDINAND SMAFOLK you're taking that leAftoschool for ‘5H0UJ ANP TELL"? U)ELL, PE5CRIBE TO TI4EM H0U) YOU FELT UUHEN YOU 5AW THE LEAF FALL FROMTHE TREE.. v >0-16 TELL HOL) YOU FELT 5EEING IT PRIFT POWN TO EARTH F0R THE LAST TIME... Ætlarðu að fara með þetta lauf í skólann í „Sýnt og sagt frá”? Jæja, lýstu því þá fyrir þeim hvernig þér leið þegar þú sást það falla af trénu ... Segðu frá því hvernig þér leið að sjá það feykjast til jarðar í hinsta sinn... Ég fann það í inn- keyrslunni ... BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Með tilkomu sérstakra sýn- ingarsala í brids hefur sprottið upp hópur manna sem hefur sérhæft sig í lýsingum á „bein- um útsendingum”. Einn sá skrafhreyfnasti í þeim hópi er Bretinn Barry Rigal, sem jafn- framt er mikilvirkur bridspenni. Rigar var í Killarny í vor og aftur í Yokohama í haust. Á ír- landi fékk hann Guðlaug R. Jó- hannsson og Örn Arnþórsson til að segja á 10 spil i sagnkeppni tímaritsins Bridge Plus. Um þá keppni má lesa í septemberblaði tímaritsins, en þar hafa Guð- laugur og Örn betur í viðureign við bandarísku hjónin Pam og Matt Granovetter. Lítum á eitt spil: Vestur ♦ ÁG104 VÁ763 ♦ ÁK52 + 3 Vestur ♦ Matthew V- ♦ 1 tígull ♦ 3 grönd Austur ♦ K5 ¥K ♦ D87643 ♦ Á952 Austur ♦ Pam V Pass ♦ 3 iauf ♦ 4 tíglar 4 hjörtu 4 grönd 5 lauf 6 lauf 6 tíglar Pass Vestur Austur ♦ Örn ♦ Guðl. II ♦ 1 tígull ♦ 1 hjarta ♦ 2 lauf ♦ 2 spaðar ♦ 3 tíglar 4 tíglar 4 hjörtu 4 spaðar 4 grönd 5 hjörtu 6 lauf 7 tíglar Pass Hér munar mest um þá ákvörðun Pam að opna ekki á spil austurs. Eftir það er erfítt fyrir vestur að teikna upp spil á móti sem duga í alslemmu. Hjá Guðlaugi og Emi fara sagnir eðlilega af stað, en síðan krefur Örn í geim með sögn í fjórða litnum. Þeir hefja svo slemmu- rannsóknir með sínum sérstaka hætti, þar sem 4 grönd eru ekki ásaspuming, heldur fyrirstöðu- sögn. Stig: 7 tíglar = 100; 6 itíglar = 65; 6 grönd = 40; 5 igrönd = 30; 5 tíglar = 20; 7 grönd = 15. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á haustmóti Taflfélags Reykja- víkur sem nú stendur yfír kom þessi staða upp í skák þeirra Héðins Steingrímssonar (2.505), íslandsmeistara 1990, og Þráins Vigfússonar (2.265), sem hafði svart og átti leik. Héðinn var að enda við að taka baneitrað peð á d6, lék 28. Dc7+d6??. 28. - Rf3+!, 29. gxf3 - Dg5+, 30. Kh2 - Dxcl, 31. Bc3 - Dg5 og hvítur gafst upp. Þrátt fyrir þetta klaufalega tap er Héðinn í toppbaráttunni. Hann er í þriðja sæti eftir sjö umferðir með 4 v. og biðskák, en Helgi Áss Grétars- son og Lárus Jóhannesson eru efstir með 5 v. Sigurbjörn Árnason er efstur í B fiokki, Hlíðar Þór Hreinsson í C flokki og Lárus Knútsson í D. Fjórar umferðir eru eftir. Sú áttunda verður tefld í kvöld og sú níunda á sunnudaginn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.