Morgunblaðið - 07.08.1987, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 07.08.1987, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987 + Elskulegur sonur minn, faðir okkar, vinur minn og bróðir, ÚLFAR GARÐARRAFNSSON, framrelðslumaður, Máshólum 6, lést sunnudaginn 2. ágúst. Jarðarförin auglýst síðar. Svanfrfður K. Benediktsdóttir, Svanfrfður K. Úlfarsdóttir, Heba Úlfarsdóttir, Helga Guðmundsdóttir og systkini hins lótna. t Faöir okkar og tengdafaðir, ÞÓRÐUR M. HJARTARSON, húsvörður, Blönduhlfð 4, Reykjavfk, lést á heimili sínu 4. ágúst. Jarðarförin auglýst síðar. Díana Þórðardóttir, Gunnar Guðjónsson, Gyða Þóröardóttir, Gissur Jóhannsson, Guðmundur Þórðarson, Þurfður Þorsteinsdóttir, börn og barnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSLAUG SIGRÍÐUR SÆMUNDSDÓTTIR, Suðurgötu 85, Akranesi, lést á heimili sínu þann 27. júlí 1987. Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vinarhug við andlát og útför hinnar látnu. Jaröarförin hefur farið fram í kyrrþey, að ósk hinnar látnu. Áslaug Einarsdóttir, Magnús Karlsson, Guðlaug Helgadóttir, Steinþór Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabarn. + Útför eiginkonu minnar, OKTAVÍU M. GÍSLASÓTTUR, sem lést þann 31. júlí, verður frá Hnífsdalskapellu laugardaginn 8. ágúst kl. 11.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Jón Á. Jóhannsson. + Eiginmaður minn, HERMANN ÖSTERBY, Hrfsholtl 17, Selfossi, andaöist í Borgarspítalanum aðfaranótt 1. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 8. ágúst kl. 13.30. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Óiöf Österby. + Þökkum samúð og vináttu við andlát og útför systur okkar, SVÖVU TRYGGVADÓTTUR, Furugerði 9, áður Lokastfg 6. Guö blessi ykkur öll. Fyrir hönd systkina, Gunnar Tryggvason. + Þökkum innilega auösýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar og sonar, GUÐMUNDAR ÓLA ÓLASONAR, prentara. Sigrfður Snorradóttir, Brynja Guðmundsdóttir, Dröfn Guðmundsdóttir, Málfrfður Guðmundsdóttir. + Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför ÞORSTEINS ÞORBJÖRNSSONAR, Söriaskjóll 18, Reykjavfk. Guðný Jóhannsdóttir, Þórunn Baldvinsdóttir, Jón Högnason, Guðný Steinunn Jónsdóttir, Högni Baldvin Jónsson, BJörgvin Þorbjörnsson og fjölskylda, Sigurbjörn Þorbjörnsson og fjölskyida. Minning: Sr. Gísli Friðriks- son íBarseback Fæddur 25. maí 1938 Dáiiw23.júlí 1987 „Hann læknar þá er hafa sund- urkramið hjarta og bindur um benjar þeirra." Megi þessi orð úr 147:a sálmi Davíðs vera ljós okkar, sem syrgjum séra Gísla Friðriksson, sóknarprest í Barseback í Svíþjóð. Kynni okkar Gísla hófust ekki fyrr en hann flutti til Lundar í Svíþjóð árið 1978. Þangað var hann drifínn af lönguninni að lesa guð- fræði og í framhaidi af því að gerast boðberi Guðsríkis hér á jörð. Fljótlega eftir komu Gísla fregn- aði ég að við guðfræðideildina þar væri innritaður annar íslendingur, en ég hafði þá verið þar í tvö ár. Fyrst í stað fjölluðu samskipti okk- ar um bækur og nám, ráðgjöf þess reynda til byijandans, en smám saman urðu kynnin nánari og tengslin meiri, og svo fór í upphafí prestsskapar míns að ég leitaði til séra Gísla sem hins reynda safnað- arprests með byijunarörðugleikana í fersku minni. Ekki þekki ég að rekja ættir Gísla og vart kannast ég við ættingja hans aðra en móður hans, Jónínu Gísladóttur, og æviskeiðið fram að kynnum okkar eru mér brotabrot sem fram hafa komið í samtölum og frásögnum. Þó veit ég að hanri leit ávallt á Akranes sem „heima" og þaðan hleypti Gísli heimdragan- um á átjánda ári og fór í siglingar á norskum skipum og heimsflakk oft fjarri sjó og sævarströndum. Er til íslands kom aftur stundaði Gísli sjó, mest á togurum. Hann fór í loftskeytaskólann og lauk þaðan prófi og þegar hann kvaddi Island öðru sinni og fór á vit hins óráðna þá var hann starfandi loftskeyta- maður við Veðurstofu íslands. Allt er fertugum fært segir mál- tækið og víst er það átti við um Gísla Friðriksson. Hann var kominn að fertugu þegar hann og fjölskylda hans tók sig upp og flutti til Svíþjóð- ar. Ekki verður séra Gísla getið án' þess að fjölskyldu hans verði gerð skil. Gísli var kvæntur Sigríði Bemódusdóttur, ættaðri úr Bolung- arvík. Til Svíþjóðar fluttu þau með tvö böm sín ung, Jónínu og Orra. Á síðasta námasári Gfsla bættist Ragnheiður í hópinn. Af fyrra hjónabandi átti Gísli son, Friðrik, sem nú er fulltíða. En hvers vegna Svíþjóð? Hví ekki að nema fræði sín við Háskóla íslands? Ástæðan trúi ég sé fyrst og fremst mismunandi sýn yfírvalda á kunnáttu og lífsreynslu. Sennilega gmndvallast þessi munur á því hver tilgangur námsins er og hveiju það þjónar. Frændur okkar, Svíar, leyfa sér þá ósvinnu að meta lífs- og starfs- reynslu til inntöku í háskóla og líta svo á að sé ákveðnum skilyrðum fullnægt, þá skipti ekki öllu hvort það sé með námi á skólabekk eða í lífsins skóla. Þetta viðhorf lýsir sér vel í svari Gísla þegar ég eitt sinn á fyrstu árum hans í Lundi spurði hvers vegna hann hefði ekki farið í Háskóla Islands. „Ég, lands- prófslaus maðurinn." Kunnátta hans í „einu Norðurlandamálanna" svo samsvaraði mörgum stúdents- prófum var fengin á „frökturum“ en var haldbetri og nytsamari en framburðarbjöguð danska mennta- skólanna. Ensku lærði hann sem lifandi talmál mannlegra sam- skipta, landafræði af eigin raun en ekki kortum o.s.frv. Því var það að þegar leiðin var vörðuð lá hún um ganga erlends fræðaseturs en ekki íslenskrar embættismanna- fabrikku. Gísli Friðriksson var við nám við Kveðja: Gunnar Friðleifsson fv. lögregluþjónn „Lífíð fátt mér ljær í hag, lúinn þótt ég glími, koma máttu um miðjan dag, mikli háttatími." (Gísli Ólafsson frá Eiríksstöðum) Vinur minn, Gunnar Friðleifsson, er dáinn. Ég vil aðeins með þessum fáu línum þakka Gunnari fyrir sam- fylgdina, frá þeim árum er við snerum oft á dauðann og lifðum eftir mottóinu að alltaf væri eitt- hvað framundan þrátt fyrir allt og það gekk upp, stundum. Nú förum við ekki lengur með ljóð og hann yrkir ekki lengur eins og eftirfar- andi: „Mðrg er vist og viða gist, varir þyrstar, ys og læti. Ein er kysst, en óðar misst, önnur flyst í hennar sæti. Ég mun sakna Gunnars, en vona að á þeim slóðum er hann ferðast núna sé ekki eins erfítt að ná sér í blöndu eins og hér, á okkar ann- ars ágætu jörð. Fari kær vinur í friði. Lilli Berndsen t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsemd við andlát eigin- manns míns, föður, tengdaföður og afa, KARLS PÁLSSONAR frá Flatey á Skjálfanda. Helga Guðmundsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Innilegar þakkir færum við fjölskyldu okkar og öllum þeim fjölda vina sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall sonar og föður, RAFNS RAGNARSSONAR, flugvlrkja, með blómum, skeytum, bréfum, minningakortum, hringdu eða komu. Við þökkum Ljóðakór og Dómkór fyrir yndislegan söng. Einleikara á selló, einsöngvara, organista og presti. Öll færðuð þið okkur huggun og styrk. Einnig þökkum við Flug- virkjafélagi Islands af alhug. Þetta er geymt en ekki gleymt. Guð blessi ykkur öll Svala Nielsen, Jóhanna Svala Rafnsdóttir. guðfræðideild Lundarháskóla árin 1978—1982. Síðan tók við eins árs hagnýtt undirbúningsnám á vegum sænsku kirkjunnar. 1 byijun sumars árið 1983 vígðist Gísli til prests í Dómkirkjunni í Hárnösand af bisk- upnum þar, Bertil Werkström, sem nú er erkibiskup sænsku kirkjunn- ar. Fyrstu árin þjónaði Gísli í Lángsele-prestakalÚ með aðsetri í Graninge, langt inni í skóglöndum Svíþjóðar. Það er ævintýraheimur, §arri flestu því sem við þekkjum á okkar landi. Þéttbýlið lítið þorp á bakka vatns, söfnuðurinn dreifður í skógarrjóðrum á stóru svæði, kirkjan áttstrend, kirkjutum með klukknaporti sem ganga þurfti í gegnum á leið í kirkjuna. Miðstöð bamafræðslunnar á prestssetrinu. Allt gert til að halda uppi reisn hnignandi byggðar. Gísla og fjölskyldu hans var vel tekið þama norður frá. Bæjarblað- inu þótti það saga til næsta bæjar að Islendingur væri kominn til ræktunar trúarlífs á þessum slóð- um. í Graninge vegnaði fjölskyld- unni vel sem og annars staðar. Um það bera vitni brottfarargjafir þeirra og heillaóskir fjölskyldunni til handa þegar kom að kveðjustund á vordögum 1986. Svíar eiga ekki síður en við ís- lendingar við vanda að etja vegna samanþjöppunar þjónustu og afleið- ingu þess, einangrun dreifbýlis. Sigríður, sem löngum hefur unn- ið á umönnunarheimilum, bæði fyrir aldraða og fyrir þroskahefta, hóf nám í hjúkrunarfræðum þegar þau fluttu til Graninge. Þannig var því námi komið að sækja þurfti það um langan veg og því flutti fjölskyldan aftur til Lundar. Séra Gísli réðist þar til starfa í Löddeköpinge— prestakalli og þjónaði þar þremur söfnuðum. Væntanlega hafa umskiptin verið mikil. Það er ólfku saman að jafna kyrrð djúpra skóga og því að hafa innan saftiaðarmarkanna umdeild- ustu byggingu og starfsemi á Norðurlöndum, kjamorkuverið í Barsebáck. Þessi umskipti, lífíð á íslandi og lífíð í Svíþjóð, lifið almennt og til- veruna ætlaði ég að ræða við Gísla annað kvöld og nokkur þau næstu, sitjandi úti á svölum hjá honum í Lundi, eins og svo oft áður, jafnvel yfír tafli. Má vera að þar hefði bor- ið á góma möguleika þess sem ríkur er af fróðleik að komast gegnum nálarauga einveldisdrottnunar íslensks skólakerfis til lifandi boð- unar, því séra Gísli og fjölskylda hans ætluðu sér að flytjast til ís- lands aftur í fyllingu tímans. Af þessum samtölum verður ekk- ert og við aðstæður sem nú, verður starfsbann fslenskrar minnimáttar- kenndar hégómi. Á sumarferðalagi fjölskyldunnar að kvöldi fímmtudagsins 23. ágúst sl. kenndi Gísli þess meins sem hafði þennan burðarmikla og lffsglaða mann undir á einni nóttu. Að morgni var hann allur. Séra Gísli Friðriksson er kominn heim. í dag fer fram jarðarför hans á Akranesi. Séra Gísli er kominn heim — „ ... náðargjöf Guðs er eilíft líf í Kristni Jesú, Drottni vorum." (Róm. 6:23). Megi almáttugur Guð vemda Sigríði, bömin öll og aðra ástvini, vera þeim styrkur í sorg og huggun f harmi. Cecil Haraldsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.