Morgunblaðið - 07.08.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.08.1987, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B tfgmiMflfetfe STOFNAÐ 1913 174. tbl. 75. árg. FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987 Prentsmiðja Morgiinblaðsins Persaflói: Verðum ekki dregnirístríð - segja Bandaríkjamenn Washington. Reuter. GEORGE Shultz, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sagði við blaðamenn í Washington i gær að útilokað væri að Bandaríkja- menn létu draga sig út í styrjöld við írana. Shultz sagði að enn kæmi til greina að bandamenn aðstoðuðu við Laumufar- þegar fóru landavillt Antwerpen, Reuter. FIMM kúbanskir laumufarþegar stukku útbyrðis af skipi, sem þeir höfðu falið sig á, og drukkn- uðu tveir þeirra í Antwerpen- höfn í gær, að sögn hafnaryfir- valda. Mennimir ákváðu að flýja skipið, þar sem þeir héldu sig vera austan járatjalds. Þrír björguðust og kváðust þeir hafa ætlað til Bandaríkjanna, en er þeir komu úr felum, var þeim sagt á ensku að þeir væru í Belgíu, sem væri lýðræðisríki. Kúbanimir héldu þá að þeir væru staddir í ríki á borð við Þýska alþýðulýðveldið, en á ensku útieggst nafn þess „Þýska lýðræðislega lýðveldið". Það var ekki nóg með að laumu- farþegamir rugluðu Belgíu saman við kommúnistaríki, heldur voru þeir alls ekki um borð í bandarísku skipi, eins og þeir höfðu haldið. Þegar þeir læddust um borð í skip- ið í Costa Rica villtust þeir á bandaríska fánanum og þeim líberíska og földu sig í líberíska skipinu Hom Gulf. tundurduflaslæðingu á Persaflóa, þar sam olíuskipið Bridgeton sigldi á tundurdufl í síðustu viku. Haft var eftir stjómarerindrek- um í Haag í Hollandi að Bretar, Frakkar, Vestur-Þjóðveijar, ítalar og Hollendingar ræddu sín á milli hvort standa ætti saman að tundur- duflaslæðingu á flóanum. Aftur á móti sagði Giulio Andre- otti, utanríkisráðherra ítalfu, að ríki Vestur-Evrópu vildu fremur að ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um tafarlaust vopnahlé á Persaflóa yrði fýlgt eftir. Embættis- maður í breska utanríkisráðuneyt- inu sagði að Bretar hygðust ekki taka þátt í tundurduflaslæðingu. Bandaríkjamenn eiga aðeins þrjá tundurduflaslæðara, sem sigla má yfir úthöf. Iranar ákváðu í gær að halda heræfíngum sínum á Persaflóa áfram í dag. Útvarpið í Teheran sagði að byltingarverðir æfðu sér- sveitir, sem í eru bæði kafarar og fallhlífahermenn, til að hertaka eyj- ur og ráðast til uppgöngu í skip. Morgunblaðið/RAX Ursveitíbæ Mikill bæjarbragur er nú kominn á byggðina í hinni gamalgrónu sveit, Mosfellssveit, enda mun hún bætast f hóp bæjarfélaga á landinu næstkom- andi sunnudag. Hið nýja bæjarfélag ber heitið Mosfellsbær og verður hann tfundi fjölmennasti bær fandsins með um 3.800 fbúa. Meðfylgjandi loftmynd tók ljósmyndari Morgunbfaðsins, Ragn- ar Axelsson, yfir verðandi Mosfellsbæ í góða veðrinu í gær. Sjá nánar grein á bls. 20 og 21. Shultz hafnar tillögu sand- inista um tvíhliða viðræður Washington, Guatemala, Reuter. DANIEL Ortega, forseti Nic- aragua, kvaðst f gær ekki ætla að verða við áskorun Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta um að koma á endurbótum heima fyrir. Þessi áskorun Reagans er mikilvægt atriði f nýrri friðartil- lögu Bandarikjastjóraar. George Shultz, utanrfkisráðherra Bandaríkjanna, hafnaði f gær til- lögu stjórnar Nicaragua frá því á miðvikudag um að ganga til Breskir jafnaðarmenn vilja sameinast frjálsiyndum: Owen segir af sér London, Reuter. DAVID Ow- en, leiðtogi breska Jafn- aðarmanna- flokksins, lýsti yfir því í gær að hann hygðist láta af for- David Owen mennsku eftir að samþykkt var í atkvæðagreiðslu að ganga til sameiningar við flokk fijáls- lyndra. Þessir flokkar tveir gerðu með sér bandalag fyrir kosningaraar 11. júní. 58 þúsund félagar eru í Jafnaðar- mannaflokknum og greiddu 57 af hundraði atkvæði með sameiningu, en 43 af hundraði voru henni andvígir. 78 prósent flokksmanna tóku þátt í atkvæðagreiðslunni, sem tók einn mánuð og hefur valdið klofningi innan flokksins. Owen hefur margoft lýst yfír því að hann verði áfram jafnaðarmaður og ætli ekki að starfa í sameinuðum flokki fijálslyndra og jafnaðar- manna. „Flokksmenn hafa neytt réttar síns og ákveðið að leita sam- einingar við fijálslynda gegn mínum ráðum. Ég tel því rangt að ég gegni áfram formennsku meðan viðræður [við fijálslynda] fara fram," sagði Owen. David Steel, formaður fijáls- lyndra, lagði til að flokkamir rugluðu saman reitum sínum þegar ljóst var að það bandalag, sem þeir gerðu með sér fyrir síðustu kosning- ar, skilaði ekki tilætluðum árangri. Stuðningsmenn sameiningar inn- an beggja flokka sögðu að sameig- inleg kosningabarátta undir forystu tveggja leiðtoga hefði ruglað kjós- endur í ríminu. Segja þeir að sameining sé eina lausnin eigi flokkamir að ná fylgi. Kosninga- bandalag fijálslyndra og jafnaðar- manna tapaði fímm þingsætum í neðri málstofu breska þingsins og kom aðeins 22 mönnum að í síðustu kosningum. David Owen, sem gekk úr Verka- mannaflokknum árið 1981 og stofnaði Jafnaðarmannaflokkinn, segir að fijálsbmdir muni einfald- lega gleypa floki- sinn í sig. David Steel sagði í gær að hann vildi ekki leiða sameinaðan flokk fijálslyndra og jafnaðarmanna. Það ætti að koma í hlut einhvers annars. Paddy Ashford, þingmaður fijálslyndra, hefur verið orðuð við forystu sameinaðs flokks og fagn- aði hún niðurstöðu félaga í flokki jafnaðarmanna. Aftur á móti er talið að viðræður flokkanna verði 'erfíðleikum undirorpnar vegna þess að meirihluti landsnefndar jafnað- armanna er andvígur sameiningu. Sjá „Sameinast fijálslynd- um ...“ á síðu 24. tvihliða viðræðna, sem yrðu eng- um skilyrðum háð, um banda- rísku tillöguna. „Ég tel rétt að fram komi að ekki komi til greina að Bandaríkja- menn og Nicaraguamenn setjist niður til að ræða hvað Mið-Ameríku sé fyrir bestu,“ sagði Shultz á blaðamannafundi í Washington. Ráðherrann sagði að fulltrúar allra Mið-Ameríkuríkja yrðu að taka þátt í slíkum viðræðum. Ortega sagði á blaðamannafundi f Guatemala, þar sem í gær hófst leiðtogafundur Mið-Ameríkuríkja, að litið yrði á tillögur Reagans for- seta sem áróðursbragð ef boði sandinistastjómarinnar um tvíhliða viðræður yrði hafnað. Var greini- legt að Ortega vissi ekki af ummælum Shultz. Leiðtogafundurinn í Guatemala er haldinn til að ræða friðaráætlun, sem Oscar Arias, forseti Costa Rica lagði fram fyrir Mið-Ameríku og tillaga Bandaríkjamanna byggist á. í áætlun Arias er meðal annars lagt til að ýmis mannréttindi, sem afnumin voru í Nicaragua árið 1983, verði veitt aftur og boðað verði til kosninga. Tillaga Bandaríkjamanna hefur að sögn embættismanna gert for- setum Mið-Ameríkuríkja erfítt fyrir. Þeir séu staðráðnir í að ræða eigin friðaráætlanir, þótt þeir vilji taka tillögu Reagans til athugunar. í Guatemala verður rætt um að taka fyrir erlendar fjárveitingar til skæruliða, hætta að hafa herstöðv- ar á erlendri gmndu, hefja viðræður við skæruliða, sem leggja niður vopn, og fækka í heijum og minnka vopnabúr. Bandaríkin: Hækkandi verðbólga? Washington, Reuter. VERÐBÓLGA I Bandaríkjunum, sem var einungis 1,1% á síðasta ári, mun að líkindum ferfaldast á árinu og er þá ekki gert ráð fyrir að olíuverð hækki frekar. Telja margir hagfræðingar að verðbólgan, sem miðuð er við framfærsluvísitölu, kunni að nema allt að fimm prósentum í árslok, en slíkt kann að hafa viðtæk áhrif á hagkerfi heimsins. Þó svo að olíuverð hafi hækkað snarlega, eftir að spenna jókst á Persaflóa í siðustu viku, telja sér- fræðingar að það hafi hækkað langt umfram það sem ástæða var til og þvf kunni það að lækka mjög á ný, líkt og gerðist fyrir ári. Lágt olíu- verð þá varð m.a. til þess að verðbólga í heiminum var hin lægsta um aldarfjórðungsskeið. Sjá „Heldur verðbólgan ...“ á síðu 24.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.