Morgunblaðið - 18.10.1986, Side 11

Morgunblaðið - 18.10.1986, Side 11
11 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1986 Það er óþarfi að fara mörgum orðum um Albert Guðmundsson. Allt sjálfstæðisfólk þekkir vel kraft hans og ósérhlífni við að leggja góðum málum hð. Albert Guðmundsson er samt af ýmsum talinn rekast illa í Sjálfstæðisflokknum. Þannig er það oft um sterka, sjálfstæða einstaklinga, ekki bara í okkar flokki, heldur öllum flokkum - hérlendis sem erlendis. En þeir styrkja líka flokka og breikka stórlega, - og enginn efast um stuðning Alberts við Sjálfstæðisstefnuna. Allt sjálfstæðisfólk veit að það er stærri, sterkari og umfram allt sannari Sjálfstæðisflokkur sem býður fram með Albert Guðmundsson í fylkingarbrjósti í Reykjavík. Sjálfstæðisfólk! Leggjum ekki andstæðingum Alberts Guðmundssonar lið við tilraunir þeirra til þess að koma honum á kné og grafa þannig undan mögu- leikum Sjálfstæðisflokksins í komandi kosningum. Stefnum ótrauð að glæsilegum sigri hans í prófkjörinu sem fram fer á laugardaginn. Sjálfstæðisfólk! Stöndum þétt saman um sterkan lista í Reykjavík undir styrkri forystu Alberts Guðmundssonar. Stöndum þétt saman þann 18. október um stærrí, sterkarí og sannarí Sjálfstæðisflokk. Stuðningsmenn Alberts Guðmundssonar. Skrifstofa stuðningsmanna er að Nóatúni 17. Símar 20020,21551 og 23556.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.