Morgunblaðið - 30.05.1986, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 30.05.1986, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLADID, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1986 Að segia satt eftir Ingólf S. Sveinsson Undanfama daga hafa væntan- legir kjósendur kvartað yfír því, að erfítt sé að átta sig í því moldviðri af upplýsingum, sem yfír þá hefur dunið. Það er undarlegt að Ölfus- vatnsmálið skuli hafa orðið helsta málið í kosningahríð vinstri manna. I því máli var borgarstjóm einfald- lega að tryggja borgarbúum í fram- tíðinni nægilegan yl og tryggja til þess land á lágu verði. Þeir, sem hamast mest gegn þessu, slá á strengi öfundarinnar með því að segja að þetta hafí verið gert til að rík fjölskylda yrði ennþá ríkari. Það uggvænlegasta við svona málflutning fjölda fólks, sem gætu orðið stjómmálaleiðtogar, er þó einmitt það, að þama étur hver eftir öðmm hrein ósannindi, sem þetta fólk veit að em ósannindi. Einstakt dæmi um þetta er sú full- yrðing vinstri manna að borgin geti ekki nýtt sér landið næstu 50 ár. Sannleikurínn er að borgin gat nýtt allt landið utan örfárra sumar- bústaðalóða strax eftir kaupin. Einhvem tíma hlýtur sá tími að koma, að það sé ekki lengur allt í lagi að segja ósatt bara af því að það er kosningabarátta. Kona ein sagði nýlega: „Ég kýs ekki og enginn úr minni ijölskyldu því að það er engum að treysta." Þetta er kjami málsins. Við verð- um að geta treyst orðum stjóm- málaleiðtoga. Að öðmm kosti verð- um við að hundsa þá og reyna að leiða hjá okkur hvemig málefnum samfélagsins er ráðið. Þannig end- um við með því að nöldra úti í homi, vonsvikin og óánægð. Kosningabarátta sjálfstæðis- manna og ekki síður vinnan við málefnaundirbúning kosninganna, hefur einkennst af gamaldags boð- orðum: Það á aðeins að lofa því sem hægt er að efna. Það er dyggð að greiða skuldir sínar. Það er nauðsynlegt að segja satt. Það hefur einfaldlega verið lögð rækt við siðferði í þessari vinnu sjálfstæðismanna. Heilsugæsla í Reykjavík Um efndir á loforðum getur fólk lesið í blöðum. En þar vil ég taka eitt mál út úr sem em heilsugæslu- stöðvamar. Þar hefur verið vel unnið og árangur er góður þótt sumum fínnist róðurinn sækjast Ingólfur Sveinsson „Við verðum að geta treyst orðum stjórn- málaleiðtoga. Að öðr- um kosti verðum við að hundsa þá og reyna að leiða hjá okkur hvernig málefnum samfélagsins er ráðið. Þannig endum við með þvi að nöldra úti í horni, vonsvikin og óánægð.“ seint. Aðalskýringin á þeim seina- gangi er einfaldlega svonefnd byggðastefna. Heilsugæslustöðvar hafa risið allt í kringum landið, reistar fyrir fé ríkisins að 85% og byggðanna að 15%. Sums staðar hafa stöðvamar orðið fáránlega stórar, annars staðar vel við hæfí. Nú ætti röðin að vera komin að Reykjavík, en eins og allir vita situr Reykjavík jafnan eftir þegar slík þjóðarátök em gerð. Minni byggð- imar ganga fyrir. Skýring þessa kann að vera hin íslenska samúð með þeim smáa á beinan kostnað þess stóra en einnig margfalt vægi atkvæða dreifbýlisins miðað við Reykjavík. Endurteknar umsóknir um fé á fjárlögum til heilsugæzlu í Reykjavík hafa ekki skilað meim og þar er ekki áhugaleysi um að kenna. Hitt er annað mál að Reykvíking- ar búa ekki illa með heilsugæzlu. Hér em fjölmargir ágætir læknar, sem alltaf hafa unnið einir á stofum og einnig ljöldi sérfræðinga, sem óvíða fínnast á landsbyggðinni. Hér em því aðstæður aðrar og það þarf að taka mið af slíkum raunvem- leika. Vafalaust ijölgar heilsugæslu- stöðvum jafnt og þétt. Tvær nýjar stöðvar munu rísa við Hraunberg og Vesturgötu á næstu 4 ámm. Aðaiatriðið er að þær veiti góða þjónustu. Heilbrigð fjár- málastjórn Það hefur ekki þótt neitt sérlega fréttnæmt að Reyijavíkurborg hef- ur ekki tekið erlent lán síðan 1983. Fyrirtæki borgarinnar hafa einnig hvert um sig verið að greiða upp skuldir á þessu kjörtímabili og em nú flest skuldlaus. Reykjavíkur- höfn, sem vinstri menn skiluðu stór- skuldugri hefur t.d. varið 134 millj- ónum til að greiða upp skuldir á kjörtímabilinu meðan 14 milljónir af tekjum hennar hafa farið til framkvæmda. Er höfnin nú skuldlít- il. Það er lítill vandi að lofa lágum þjónustugjöldum, greiða þau niður með lánum og skila öðmm skulda- súpu. Hver íslendingur skuldar 281 þúsund krónur í útlöndum. Skuldir komust yfír 56% af landsframleiðslu í fyrra. Því meiri tíðindum sætir, þegar stærsta sveitarfélag landsins ástundar það siðferði að hafa reiður á sínum Qármálum. Þetta er engin tilviljun því að það er í fullu samræmi við gildismat þeirra manna, sem ráðið hafa í Reykjavík sl. 4 ár. Stjómmál em siðferði. Það er mikilvægt að stærsta fyrirtæki landsins, langstærsta sveitarfélag- ið, haldi áfram heilbrigðri Qármála- stjóm. Önnur Qármál í landinu hljóta fyrr eða síðar að taka mið afþví. Reykvíkingar! Tryggjum áfram- hald þeirrar stefnu, stefnu sjálf- stæðismanna í Reykjavík. Höfundur er læknir i Reykjavík. Hann akipar 18. aæti & liata Sjálf- atæðiaflokkaina í Reykjavík. TILBOÐ ■ \ 43 ; 946 m* H!T Til sölu Hafnargata 43, Keflavík Húsið er 3ja hæða með þremur íbúðum. 60 fm grunnflötur. Lóðin er 946 fm. Erfðafestlóð. Möguleiki á að færa húsið út að Austurgötu og fá góða byggingarlóð við Hafn- argötu á góðum stað. Tilboð sendist til: Brynjars Sigmundssonar, Tunguvegi 14 — 260 Njar&vík. BAKKASEL Fallegt endaraðhús er skiptist þannig: 1. hæð: forstofa, stofur, stórt og fallegt eldhús, forstofuherb. og snyrting. Efri hæð: þrjú svefnherb. og bað. Jarðhæð: tvö herb. og stórt fjölskherb. Þvottah., geymsla, svo og tvö herb. fyrir saunu og tilheyrandi. Sér inng. er einnig í jarðhæðina þannig að þar er hægð að hafa sér íb. Bílsk. Fullgerð ræktuð lóð. Falleg eign. Laus 1. ágúst. Verð 5,4 millj. Hugsanleg skipti á ódýrari eign. 26600®i Fasteignaþjónuttan Autlunlrmti 17,«. 29K0 Þorsteinn Steingrimsson. lögg. fasteígnasali. 685009 ' 685988 Austurbrún. 2ja herb. íb. á 1. I hæö. Laus strax. Ekkert óhv. Hjarðarhagi. 3ja herb. íb. á 3. I hæð. Glæsil. eign. Laus strax. Laugarnesvegur. 3ja herb. íb. á 2. hæð. Afh. í júlí. Hagst. verö. Hrafnhólar. 3ja herb. íb. á 2. hæð í þriggja hæða húsi. Ákv. sala. Verð 21CX) þús. Rauðalækur. 3ja herb. rúmg. I ib. á jarðh. i þribhúsi. Sérinng., sérhiti. Ákv. sala. Flúðasel. 4ra herb. ib. á 2. hæð. I Bilskýli. Afh. í sept. Efstihjalli Kóp. 4ra herb. fb. á 2. hæð. Gott út8ýni. Verð 2,6-2,7 millj. Dvergabakki. 4ra herb. ib. & 3. hæð. Sérþvottah. Aukaherb. í kj. Breiðholt. Einbýlish. tilb. u. tróv. og móln. v. Klapparberg. Til afh. strax. Eignaskipti mögul. V. J Góðandaginn! Tómatar á útsölu NÚ stendur yfir útsala á tömöt- um og voru þeir lækkaðir um nærri þriðjung. Tómataútsalan mun standá í örfáa daga. Kfló af tómötum er nú selt á 120 krónur í heildsölu, en var á 175 krónur, og er verðlækkunin því 31,4%. Samsvarar þetta 150-160 kr. útsöluverði sem er 70 krónum lægra en var fyrir útsölu. Níels Marteinsson sölustjóri hjá Sölufélagi garðyrkjumanna sagði að undanfama daga hefði mikil framleiðsla komið á markaðinn og því hefði þessi útsala verið ákveðin. Hann sagði að útsalan myndi standa meðan birgðir entust, þó ekki lengur en fram að helgi. Fjölbreytt dagskrá í útvarpi og sjónvarpi á kosninganóttina AÐ VENJU verður kosningavaka bæði í útvarpi og sjónvarpi að kvöldi kosningadags og fram eftir nóttu. Kosningavaka útvarpsins hefst bæði á rás 1 og 2 kl. 22.00, en sjónvarpsins kl. 23.00 næsta laugardagskvöld. Samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið fékk hjá Páli Magnús- syni varafréttastjóra sjónvarpsins verður kosningavaka sjónvarpsins mun viðameiri en á undanfömum ámm og verða allir fréttamenn sjón- varpsins að störfum þetta kvöld. Dagskráin verður með þeim hætti að birtar verða kosningatölur og spár og auk þess verða sýnd viðtöl við stjómmálamenn og kjósendur. Þá verður einnig boðið upp á ýmis skemmtiatriði. í sjónvarpssal verður hljómsveit og þangað verður boðið um 100 gestum til þess að fylgjast með gangi mála. Páll sagði að tölvuspár verði nú mun fullkomnari en áður og hefur verið gerður samningur við tölvufyr- irtækið Hewlett Packard til að sjá um þau mál. Sérstök áhersla verður lögð á grafískar útskýringar. Bein útsending verður frá talning- unni í Austurbæjarskóla, kosninga- skrifstofum flokkanna og fleiri stöð- um. Við beinu útsendingamar verður m.a. notaður nýr og fullkominn upptökubfll sem sjónvarpið fékk ný- lega. Kosningavöku lýkur þegar úr- slit verða orðin Ijós, og bjóst Páll við að það yrði um klukkan fjögur að morgni sunnudagsins. í útvarpi verða sagðar fréttir af kjörsókn allan laugardaginn. En að sögn Kára Jónassonar varafrétta- stjóra útvarps hefst hið eiginlega kosningaútvarp á rás 1 og rás 2 um klukkan 22.00. Á rás 2 verður leikin létt tónlist og nýjustu tölur sagðar með vissu millibili. Á rás 1 hefst dagskráin með því að sagðar verða nýjustu fréttir af kjörsókn. Klukkan 23.00 verður byijað að birta tölur eftir því sem þær berast. Gestir koma í hljóðstofu til þess að segja álit sitt á kosningunum og úrslitum. Frétta- ritarar og fréttamenn verða á ferð- inni víða um land til þess að fylgjast með kosningunum. í Reykjavík verða tvær litlar sendistöðvar á stöðugu ferðalagi um höfuðborgarsvæðið og verður út- varpað beint frá kosningaskrifstof- um og fleiri stöðum. Á Akureyri verður ein slík stöð í notkun. Hinn almenni kjósandi verður tekinn tali og rabbað við hann um tölur og úrslit. Talað verður við frambjóðend- ur, stjómmálaleiðtoga og hinn al- menna kjósanda og fl. Allt efni á rás 1 verður sent út á stuttbylgju til Bandaríkjanna og Evrópu og einnig sent um sérstaka símalínu til Svíþjóðar þar sem það verður sent út á sérstökum FM-bylgjum í Gautaborg og Lundi. Heyrst hefur að íslendingar í Stokk- hólmi ætli að koma saman og hlusta á beint kosningaútvarp frá íslandi. Allt starfslið fréttastofunnar verð- ur að störfum á kosninganóttina. Fylgst verður með talningu í Austur- bæjarskóla í beinni útsendingu og sagði Kári að öll tækni útvarpsins verði notuð til að koma þessu sem fyrst til hlustenda. Allar upplýsingar settar strax inn I tölvu útvarpsins sem nú verður notuð til að spá um úrslit í fyrsta sinn. Sérstakt forrit verður fyrir kosningaspár á hveijum stað. Útvarpað verður fram á morg- un og sagði Kári að venjulega rynni dagskráin saman við morgunútvarp- ið daginn eftir. Bláskógar gjaldþrota A fimmta hundrað beiðnir um gjaldþrota- skipti hafa borist á þessu ári í Reykjavík Húsgagnaverslunin Bláskógar hf. fór fram á gjaldþrotaskipti á fimmtudag i siðustu viku. Ragnar Hall skiptaráðandi sagði að sam- kvæmt upplýsingum forráða- manna fyrirtækisins væru skuldir þess um 23-24 milljónir króna. Ragnar benti á að reynslan sýndi að alltaf bættust við kröfur í bú. Frestur til að lýsa kröfum í búið er tveir mánuðir frá því að auglýsing um gjaldskipti birtist í Lögbirtingar- blaðinu. Hún birtist líklega eftir tvær til þijár vikur. Sveinn Sveinsson, hdl. hefur verið skipaður bústjóri. Eins og greint hefíir verið frá hér í blaðinu óskuðu forráðamenn Bláskóga eftir greiðslustöðvun. Þeim var veittur viku frestur til að skila upplýsingum um áform stjómenda fyrirtækisins. Þeir ákváðu að nýta sér hann ekki og fóru fram á gjaldþrotaskipti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.