Morgunblaðið - 02.11.1985, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 02.11.1985, Blaðsíða 56
KEILUSALURIWM OPiWW 9J0-0I00 l EUROCARD v-- -------/ BTT KORT AllS SDUMR LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR. Könnun Hagvangs leiðir í ljós vantrú á stjórnmálamönnum: Aðeins fjórðungur tel- ur að stjórnmálamenn segi yfirleitt sannleikann Morgunbladid/Sigurður Helga Skúladóttir, Þórir Dan, fiskifrKÓingur, og Henning Rong vió vinnu í Fiskalóni í gær. Frá Noregi til starfs- náms í fiskeldi hér Selfossi, 1. nóvember. Tveir nemendur í fiskirækt við Fiskarskolan í Austervollen í Noregi eru þessa dagana hér á landi til að Ijúka sjö daga starfstíma í fiskeldisstöð. Það er óvenjulegt að nemendur í fiskirækt komi hingað til að afla sér þekkingar og sérlega þegar haft er í huga hve Norðmenn eru framarlega í fiskeldi. Þau Helga Skúladóttir frá Reykjavík og Henning Rong frá Bergen, sem bæði eru við nám við skólann, sögðu að ekkert væri óeðlilegt við að koma hingað, hér væri starfsemi fjölbreytt og sérstök. kvaðst hafa unnið á norskri stöð áður en hún fór í skólann en komið hingað til að kynnast fiskeldinu á íslandi, hvað það væri komið langt, og hver staðan væri. Henning átti ekki nógu stór orð til að lýsa möguleikum fiskeldis á fslandi: „Sjáðu hér á Fiskalóni," sagði hann, „hérna er nóg af heitu og köldu vatni og allar aðstæður fyrir hendi. Það eina sem vantar er fyrirgreiðsla." SigJóns. Helga og Henning voru við störf við fiskeldisstöðina Fiskalón í Ölf- usi, þar sem þau unnu ásamt Þóri Dan fiskifræðingi við að undirbúa eldisker fyrir móttðku á seiðum. Starfstímanum eyða þau í stöðvum Laxalóns, þar sem þau sögðu að kynnast mætti mörgum hliðum fiskeldis. Helga sagðist hafa beðið um leyfi til að ljúka starfstímanum hér á landi og hlutirnir hefðu æxlast þannig að Henning fór líka. Hún Einungis þriðjungur álítur að þeir takist á við þau vandamál sem brýnust eru úrlausnar. Helmingur vill að ráðherrar séu sérfræðingur utan þings AÐEINS fjórðungur íslendinga telur, að stjórnmálamenn segi yfirleitt sannleikann og einungis þriðjungur er á þeirri skoðun, að þeir takist almennt séð á við þau vandamál sem brýnust eru úrlausnar fyrir þjóðina. Þetta kemur fram í könnun, sem Hagvangur hefur látið gera á viðhorfum manna til stjórnmála og stjórnmálamanna. Unnið var að könnuninni í júní og júlí og af 1.000 manna úrtaki fengust svör 770 manna. Þátttak- endur voru 18 ára og eldri og spurt var í síma. ólafur Þ. Harð- arson, stjórnmálafræðingur, hef- ur unnið úr gögnum Hagvangs og er samantekt hans og greinar- gerð að finna í sérstöku fylgiriti Morgunblaðsins i dag. Rösklega helmingur þeirra sem afstöðu taka telur að íslenskir stjórnmálamenn segi næstum allir það sama - og sömuleiðis telur rúmur helmingur að al- þingismenn fái of há laun. Aftur á móti álítur aðeins rúmur þriðj- ungur svarendanna að málfar stjórnmálamanna sé úr sér geng- ið. en úr hópi kjörinna þingmanna. Hins vegar er tveimur hug- myndum um stjórnkerfisbreyt- ingar hafnað af miklum meiri- hluta i könnuninni: Einungis 17% vilja auka völd forsetans með því að gera starf hans pólitískara, þannig að hann verði í raun eins og forsætisráðherra, og 29% segjast fylgjandi afnámi þing- rofsréttar. í greinargerð Ólafs Þ. Harðar- sonar kemur fram, að vantraust á stjórnmálamenn er ekki bundið við Islendinga. í franskri könnun fyrir einu ári, þar sem spurt var sömu spurninga og í könnun Hagvangs, kom t.d. fram að Frakkar er sýnu vantrúaðri en íslendingar á að stjórnmálamenn segi yfirleitt sannleikann og held- ur færri þeirra töldu að stjórn- málamenn tækjust á við brýnustu úrlausnarefnin. Sjá: „Viðhorf íslendinga til stjórnmála og stjórnmála- manna,“ á bls. B1-B7. Athygli vekur að helmingur þeirra er taka afstöðu segir það betri kost að velja ráðherra úr hópi sérfróðra manna utan þings, Islandssiglingar Hafskips: Y firtekur EÍ eignir og skuldbindingar? Meðal þeirra möguleika, Harðar Sigurgestssonar, „UNDANFARNA tæpa tvo mánuói hafa farið fram viðræður millí for- svarsmanna Hafskips og Eimskipa- félags íslands um hugsanlega yfir- töku Eimskips á siglingum Hafskips til og frá íslandi. Þessar viðræður hafa verið að frumkvæði Hafskips- manna. Ýmsir möguleikar á því, hvernig þetta mætti verða, hafa verið í gangi, en þetta myndi þýða að við tækjum við íslandssiglingum þeirra. Yfirtaka eigna og skuldbindinga á móti er eitt af því, sem rætt hefur verið,“ sagði Hörður Sigurgestsson, fortjóri Eimskips, í samtali við Morgunblaðið. „Þetta eru allt hugmyndir enn sem komið er, þannig að ekki er tímabært að segja með hvaða hætti yfirtakan yrði, ef hún verður að veruleika. Eimskip hefur ekki gert Hafskip ákveðið tilboð í þessu efni. Það hafa verið reifaðar ákveðnar hugmyndir um það, hvernig sameina mætti siglingar félaganna til og frá íslandi með það í huga að leysa vanda Haf- skips. Eimskipaféíagið hefur enij- fremur rætt þetta mál við Otvegs- bankann að ósk hans. Ákveðnar sem ræddir eru að sögn forstjóra Eimskips hugmyndir hafa verið reifaðar. Endanleg afstaða til þeirra hefur ekki verið tekin, en við erum til- búnir til að halda þessum viðræð- um áfram. Ég get ekki greint frá því um hvaða fjárhæðir er hér um að ræða, enda er ótímabært að ræða það. Ég vil taka það fram, að hér erum við að ræða um ís- landssiglingar, ekki Atlantshafs- siglingar Hafskips,” sagði Hörður Sigurgestsson. Ríkisútvarpið ar á flutningi RÍKISÚTVARPIÐ sendi frá sér í gær afsökun útvarpsráðs og útvarpsstjóra vegna flutnings leikrits Ólafs Hauks Símonarsonar „Caleiðunnar" síðastliðið þtiðjudagskvöld. Leikritið var nemendaverkefni Leiklistarskóla íslands 1985. I afsökuninni er það harmað að með flutningi leikritsins hafi minning látins manns verið vanvirt og þar fjallað um nafngreinda persónu með ósæmilegum hætti. Viðkomandi maður er Ólafur Thors, fyrrum forsætisráðherra. Hér fer á eftir bréf ríkisútvarpsins vegna þessa máls, en bókun útvarpsráðs um það var samþykkt samhljóða: Þriðjudaginn 29. október sl. var flutt í kvölddagskrá útvarpsins leikritið „Galeiðan" eftir Ólaf Hauk Símonarson. Leikritið var nemendaverkefni Leiklistarskóla Islands 1985. Á fundi útvarpsráðs hinn 1. nóvember var fjallað um flutning umrædds leikrits og eftir- farandi bókun samþykkt sam- hljóða: „Vegna flutnings útvarpsleik- ritsins „Galeiðan” eftir Ólaf Hauk Símonarson sl. þriðjudagskvöld vill útvarpsráð taka eftirfarandi Hagkaupshúsið rís af grunni FRAMKVÆMDUM við hina nýju verslunarmiðstöð Hagkaups í Kringlumýri miðar vel áfram og eru nú uppistöður og útveggir að rísa af grunni. Meðfylgjandi mynd tók ljósmyndari Morgunblaðsins, Ragnar Axelsson, af framkvæmdum í grunninum nú í vikunni. biðst afsökun- útvarpsleikrits fram: Það ber að harma að Ríkis- útvarpið skuli hafa verið notað til að vanvirða minningu látins manns og fjalla um nafngreinda persónu með jafn ósæmilegum hætti og þarna var gert. Útvarps- ráð telur nauðsynlegt að stofnunin biðjist opinberlega afsökunar á þeim mistökum, sem þarna áttu sér stað. Brýna verður fyrir starfs- mönnum Ríkisútvarpsins að vera ávallt á verði gagnvart slikum vinnubrögðum. Ríkisútvarpið harmar þau alvar- legu mistök, sem urðu við meðferð þessa máls hjá stofnuninni og biðst hér með afsökunar á þeim.“ Undir bréfið ritar Markús örn Antonsson, útvarpsstjóri. Bókun útvarpsráð um þetta var samþykkt með samhljóða atkvæð- um útvarpsráðsmannanna Magn- úsar Erlendssonar, Ingu Jónu Þórðardóttur, Jóns Þórarinssonar, Eiðs Guðnasonar, Hauks Ingi- bergssonar og Árna Björnssonar. Ingibjörg Hafstað, fulltrúi Kvennalistans, sat hjá við at- kvæðagreiðsluna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.