Morgunblaðið - 02.11.1985, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.11.1985, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER1985 Leikfélag Hafnarfjarðar: Boðið til Spánar og Portúgals LEIKFÉLAGI Hafnarfjarðar hefur nýverið borist boð frá Portúgal um að koma þar frara næsta vor með söngleikinn „Rokkhjartað slær“. Sömulciðis hefur félaginu verið boðið í leikfór með söngleikinn um Katalóníu. Þessi boð eru komin í framhaldi af þátttöku Leikfélags Hafnar- fjarðar í leiklistarhátíð áhuga- manna í Mónakó síðastliðið sumar. Nýverið frumsýndu Hafnfirð- ingar barnaleikritið Fúsa froska- gleypi eftir danska höfundinn Ole Lund Kirkegaard, sem Olga Guð- rún Árnadóttir þýddi. Leikstjóri er Viðar Eggertsson. Spielbera ÞEIR SPIELBERG OG HJÁLP- ARMENN HANS ... HAFA HITT NAGLANN Á HÖFUÐIÐ, EINA FERÐINA ENN, GAMAN, GAMAN! SV.Mbl.31/10. Sýnd í Austurbæjarbíói ipr-. 1 j , Vk l * Framkvæmdastjórn SÁÁ á nýbyrjuðu starfsári, fremrí röð frá vinstri: Ragnheiður Guðnadóttir, Hendrik Berndsen formaður, Ragnar Aðalsteinsson, varaformaöur, Þórhildur Gunnarsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Hreinn Garðarsson, skrifstofustjóri, Tómas Agnar Tómasson, Þórarinn Þ. Jónsson, Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, Friðrik Theodórsson, Einar Kr. Jónsson framkvæmdastjóri. Hendrik Berndsen endur- kjörinn formaður SÁÁ HENDRIK BERNDSEN var endurkjörinn formaður SÁÁ, Samtaka áhuga- fólks um áfengisvandamáliö, á fyrsta fundi aðalstjórnar eftir aðalfund — en hann var haldinn 17. október síðastliðinn. 1 skýrslu framkvæmdastjórnar á aðalfundi kom fram að stærsta verkefni nýliðins starfsárs var yfirtaka SÁÁ á Áfengisvarna- deild Heilsuverndarstöðvar Reykjavikur og endurskipulagn- ing Fræðslu- og leiðbeiningar- stöðvar SÁÁ í Síðumúla 3—5 í kjölfar hennar. Aðsókn að fræðslu og leiðbein- ingarstöðinni var mikil — um 4.250 viðtöl, námskeið o.fl. voru skráð á árinu 1984. meginverk- efni næsta árs verður frekari endurskipulagning og uppbygg- ing starfseminnar í fræðslu- og leiðbeiningarstöðinni, þ.e. göngu- deildar og fjölskyldudeildar, auk fræðslustarfs í skólum og meðal almennings um skaðsemi vímu- efna og sjúkdóminn alkóhólisma. { aðalstjórn samtakanna sem skipuð er 36 mönnum, voru 12 kjörnir til þriggja ára og einn til tveggja ára, þau Bjarki Elíasson, Ewald Berndsen, Guðmundur J. Guðmundsson, Gunnlaugur Ragnarsson, Hendrik Berndsen, Hrafn Pálsson, Ingimar H. Ing- imarsson. Jón Steinar Gunn- laugsson, Pétur Sveinbjarnarson, Pjétur Þ. Maack, Ragnar Aðal- steinsson, Tómas Agnar Tómas- son og Þórhildur Gunnarsdóttir. Othar Örn Petersen, varafor- maður gaf ekki kost á sér til endurkjörs og var Ragnar Aðal- steinsson kjörinn varaformaður SÁÁ á fyrsta fundi aðalstjórnar eftir aðalfund. Auk Hendrik Berndsen, sem endurkjörinn var formaður eins og áður greinir, og Ragnars eru í framkvæmda- stjórn: Ragnheiður Guðnadóttir, ritari, Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son, gjaldkeri, Friðrik Theódórs- son, Tómas Agnar Tómasson, Þórarinn Þ. Jónsson og Þórhildur Gunnarsdóttir. afslrttur Gullpalmar... a0ur ™ . 190. SSÍrPargUS '• • • 20-50% afsláttur Bastvörur Mikið úrval 30% afsláttur l&amik-og glervörur Mikið úrval 25% atsláttur Komib i Btómaval um helgtn - Gerið góð kaup Blómum interflora viðaverold I5áca
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.