Morgunblaðið - 02.11.1985, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.11.1985, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER1985 * Eiður Guðnason um úteendingar um kapalkerfi í Olafsvík: „Ekki jafnalvarlegt mál og mál frjálsu útvarpsstöðvanna í fyrra „AUÐVITAÐ get ég ekki komið í veg fyrir slíkar útsendingar, en vissu- lega tel ég þetta ólöglegt," sagði Eiður Guðnason alþingismaður (Al- þýðuflokki) þegar blaðamaður Morg- unblaðsins spurði hann hvort hann liti útsendingar í lokuðum sjónvarps- kapalkerfum öðrum augum, en út- Morgunblaðið/Júlíus F.v. Elísabet Bjarklind Þórisdóttir og Guðrún Erla Geirsdóttir halda hér á_ mynd Júlíönu Sveinsdóttur „Kona við sauma“, en hún er af móður listakon- unnar, Guðrúnu Runólfsdóttur. Gerðuberg: Sýning á myndverkum kvenna, f eigu Reykjavíkurborgar SÝNING á myndverkum eftir konur, í eigu Reykjvíkurborgar, verður opn- uð í Gerðubergi á morgun, sunnnu- dag. Alls eru 28 verk á sýninguni eftir tíu listakonur sem allar eru látnar. Alls eru í eigu Reykjavíkurborgar um 90 verk eftir konur og hefur verið ákveðið að sýna þau öll á tveimur sýningum. Á þeirri fyrri, sem opnuð verður á morgun, verða sýnd verk látinna kvenna en á siðari sýningunni, sem opnuð verður í janúar nk., verða sýnd verk eftir núlifandi listakonur. Á sýningunni í Gerðubergi eru aðallega málverk en einnig nokkrar höggmyndir og ofin veggteppi. Átta málverk eru eftir Júlíönu Sveins- dóttur (1889-1966), þar af sjö sem faðir hennar, Sveinn Jónsson, færði skjalasafni Reykjavikurborgar að gjöf. Þá eru þrjú málverk eftir Krist- ínu Jónsdóttur (1888-1959), eitt eftir Barböru Árnason (1911-1976), tvö eftir Eyborgu Guðmundsdóttur (1924-1977), eitt eftir Maríu H. ól- afsdóttur (1921-1979), fimm eftir Nínu Tryggvadóttur (1913-1968) og tvö eftir Ragnheiði Jonsdóttur (1917-1977). Gerður Helgadóttir (1928-1975) á glermynd og brons- styttu á sýningunni, Gunnfriður Jónsdóttir (1889-1968) koparstyttu og Vigdís Kristjánsdóttir (1904- 1981) þrjú ofin veggteppi. Guðrún Erla Geirsdóttir og El- ísabet Bjarklind Þórisdóttir, for- stöðumaður Gerðubergs, áttu hug- myndina að sýningunni og hafa þær annast allan undirbúning. Sögðu þær í samtali við Morgunþlaðið að þetta væri fyrsta sýningin, sem haldin væri á verkum kvenna, í eigu Reykjavíkurborgar. Verkin prýddu öll hinar ýmsu stofnanir borgarinn- ar sem sumar væru ekki opnar almenningi, og gæfist fólki nú gull- ið tækfæri til að skoða öll verkin á einum stað. Sýningin í Gerðubergi opnar sem fyrr segir á morgun, sunnudag, kl. 15 og er aðgangur ókeypis. Stendur hún til 1. desember og er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 16 til 22 og föstudaga til sunnudaga frákl. 14 til 18. varpssendingar þær sem viðgengust sl. haust í BSRB verkfallinu, og Eiður gagnrýndi harkalega. Tilefni spurn- ingarinnar var það, að Kiður ásamt öórum þingmönnum Vesturlands- kjördæmis, sat um síðustu helgi ráð- stefnu um atvinnumál í Ólafsvík og var sjónvarpað frá ráðstefnunni um þorpið í lokuðu kapalkerfi. Eiður sagðist telja að málin horfðu talsvért öðru vísi við nú, en í fyrrahaust þegar hinar svo- kölluðu „frjálsu útvarpsstöðvar" voru með útsendingar, því nú væri búið að samþykkja ný útvarpslög, þó að þau tækju ekki gildi fyrr en um áramót. „Mínar skoðanir á þessu máii hafa í engu breyst," sagði Eiður, „en málið horfir auð- vitað öðru vísi við, nú þegar búið er að samþykkja ný útvarpslög og það er ljóst að svona starfsemi verður leyfð." Eiður sagðist jafnframt telja að mál þetta væri annars eðlis heldur en rekstur frjálsu útvarpsstöðv- anna. Hér hefði verið um það að ræða að sjónvarpað var um lokað kerfi frá atvinnumálaráðstefn- unni, en frjálsu útvarpsstöðvarnar hefðu verið reknar með sölu aug- lýsinga. „Þó að Morgunblaðið hafi aldrei fengist til að viðurkenna það, né skrifa um það, þá liggur það fyrir að sl. haust var rekin ólögleg útvarpsstöð í Valhöll, húsakynnum Sjálfstæðisflokksins, þar sem reksturinn var fjármagn- aður með sölu auglýsinga. Slíkt mál tel ég miklu alvarlegra í eðli rínu heldur en þetta lokaða kapal- kerfi í Ólafsvík, þó að ég dragi ekkert úr ólögmæti útsendinga þar eða annars staðar og hef raunar margsagt það áður,“ sagði Eiður Guðnason. Dagur frímerk- isins 1985 Á DEGI frímerkisins, 5. nóvem- ber nk., verður sérstakur dag- stimpill í notkun í pósthúsinu R-1 í Reykjavík og einnig á póst- húsunum á Akureyri og Húsa- svík. Þetta er í fyrsta sinn sem dagstimpill er notaður á Húsavík í tilefni Dags frímerkisins, en slíkur stimpill hefur verið í notk- un á Akueyri frá árinu 1982. Dagstimpillinn að þessu sinni er gerður með það í huga að minnast í senn Tónlistarárs Evrópu og Árs æskunnar. Nóta er tákn tónlistarársins, en inni í henni er mynd af pilti og frí- unga stúlku sem tákna merkjasafnara. Kjörorð dagstimpilsins eru: Frímerki eru fræðandi. Þau eiga að minna á gildi frímerkjasöfn- unar. (Fréttatilkynning.) Ný þjónusta Greiöslukortaviöskipti Nú geta auglýsendur Morgunblaösins greitt aug- lýsingar sínar meö greiöslukortum VISA og EUROCARD. Auglýsendur geta hringt inn auglýsingar, geffið upp kortnúmer sitt og verður þá reikningurinn sendur korthaffa frá VISA og EUROCARD. Um leiö og þessi þjónusta veröur tekin upp þá munum viö veita þeim sem staögreiöa auglýsinqar 5% afslátt. fltofgmiÞIfifrifr Auglýsingadeild Viötalstími borgarfulltrúa Sjálfstæöisflokksins í Reykjavík Laugardaginn 2. nóvember veröa til viötals Hilmar Guðlaugsson formaöur byggingarnefndar Reykjavík- ur, húsaleigunefndar og í stjórn verkamannabústaöa og Þórunn Gestsdóttir varaformaður æskulýðsráðs, fulltrúi í barnaverndarnefnd og SVR. Prófið eitthvað nýtt Komiö viö hjá okkur í Síöumúlanum og bragöiö áframandi austurlenskum réttum. Sjáumst Bangkok, Síðumúla 3—5 Pantanir í síma 35708.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.