Morgunblaðið - 02.11.1985, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 02.11.1985, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 2. NÓVEMBER1985 55 Fyrsta tap UMFN NJARÐVÍKINGAR töpuöu sínum fyrsta leik í úrvalsdeíldinni i körfuknattleik í gærkvöldi er liöiö mætti Haukum í íþróttahúsi Njarövíkur. Haukar sigruöu meö 82 stigum gegn 30 í jöfnum og skemmtilegum leik. Staðan í leik- hlói var 36:42 fyrir Hauka. Skömmu fyrir leikslok var staðan jöfn, 76:76 en Haukar náöu að breikka bilið og sigra. Haukarnir eru nú í ööru sæti deiidarinnar meö 8 stig en UMFN hefur 12 stig í efsta sætinu. Leikurinn var allan tímann jafn en þó voru Haukar alltaf fyrri til aö UMFN — Haukar 80:82 skora en Njarövíkingar fylgdu fast á eftir. Eftir aö leikiö hjafði veriö í 15 mínútr var staðan 30:30 en tveimur mínútum síðar höföu Hauk- ar náö sjö stiga f orystu ,31:38. I síöari hálfleik smá söxuöu Njarövíkingar á foskot Haukanna og þegar leikiö haföi veriö í sex mínútur höföu þeir náö forystu, 53:52. Haukar gáfust ekki upp og meö mikilli baráttu og góöum leik náöu þeir aftur forystunni og kom- ustsexstig yfir. Njarövikingar gáfust ekki upp viö mótlætið og minnkuöu muninn í 69:70. ísak Tómasson skoraöi síö- an tvær næstu körfur og síðari karfa hans var þriggja stiga karfa þannig aö staöan var 74:70 fyrir Njarövík- inga. Enn ná Haukar forystunni og aö þessu sinni vannst Njarövíking- um ekki tími til aö jafna metin og sigur Hauka var í höfn. Leikurinn var allan tímann í járn- um eins og fram kemur hér aö fram- an. Liðin skiptust á um aö hafa forystuna í síöari háfleik og bæöi léku hraöan 09 skemmtilegan körfuknattleik. Áhorfendur, sem fylltu nærri húsiö í Njarövík, studdu dyggilega viö bakiö á sínum mönn- um en aö þessu sinni dugöi þaö ekki. Haukar viröast vera komnir á sigurbraut því fyrr í þessari viku unnu þeir sinn fyrsta heimasigur i deildinni og nú leggja þeir efsta liöiö aö velli. Meö þessum sigri skutust þeir upp í annaö sætiö, næstir á eftir Njarðvíkingum. Þetta var fyrsta tap Njarövíkinga í úrvals- deildinni í vetur og telja sumir aö tími hafi verið kominn til því þeir höföu sex stiga forystu fyrir þessa umferö. Bestir í liöi Njarðvíkinga voru þeir Helgi Rafnsson og Kristinn Einarsson. Árni Lárusson átti einn- ig þokkalegan leik og Jóhannes Kristbjörnsson, sérstaklega í síöari hálfleik. ísak Tómasson baröist vel aö vanda og stóö fyrir sínu. Athygli vakti aö valur Ingimundarson náöi sér aldrei á strik í leiknum. Hann skoraöi aöeins sjö stig og þaö öll í fyrri hálfleik. Hann skoraöi ekki eitt einasta stig í síðari háifleik. Hjá Haukum var Ivar Webster bestur. Geysilega sterkur í fráköst- unum og skoraöi auk þess 20 stig. Pálmar Sigurösson var einnig góö- ur og Ólafur Rafnsson. Henning Henningsson meiddist skömmu fyrir leikhlé og gat ekki leikiö meira í þessum leik. Stig UMFN:Helgi Rafnsson 17, Jóhannes Kristbjörnsson 16, Kristinn Einarsson 15, Arni Lárusson 14, isak Tómasson 9, Valur Ingimundarson 7, Ingimar Jónsson 2. Stig Hauka:ivar Webster 20, Pálmar Sig- urósson 19, Ólafur Rafnsson 17, ivar As- grimsson 8, Kristinn Kristinsson 8, Henning Henningsson 4, Viðar Vignisson 4. Reynir Kristjánsson 2. -ÓÓTH/SUS. Morgunblaöiö/Bjarni • Hjalti Ursua og Jón Páll halda hér á Steinari Birgissyni og Húsafells- hellunni frægu. Myndin var tekin á Austurvelli ( gær, en þá kynntu lyftingamenn keppnina um sterkasta mann íslands. Þeir Hjalti, Jón Páll og Torfi Ólafsson munu koma fram í leikhlói í leik Vikings og Teka á morgun og taka nokkra spretti með Húsafellshelluna. Þess má geta aö hellan er 186 kfló en Steinar aöeins 90 þannig aö saman- lagt halda þeir kappar á 276 kílóum á milli sín. Hver er sterkasti maður á íslandi? „HJALTI Ursus ætlar aö taka mig i nefiö á þriðjudaginn. En hver veröur tekinn í nefið og af hverj- um? Þaö kemur í Ijós í Laugar- dalshöllinni á þriöjudagskvöldiö“, hrópaði Jón Páll Sigmarsson í gjallarhorn viö Austurvöll síöari hluta dags í gær. Þeir fólagar voru þá aö kynna keppnina um sterk- asta mann íslands sem hefst 6 morgun og henni lýkur á þriöju- dagskvöldiö. Það er KRAFT sem gengst fyrir þessu móti sem nú er haldiö í fyrsta sinn hér á landi. Eins og mönnum er í fersku minni sigraði Jón Páll í keppninni um sterkasta mann heims í fyrra og hann tekur síöar í þessum mánuöi þátt í annari slíkri keppni sem aö þessu sinni verður haldin í Portúgal. Keppnin hér heima hefst á morg- un klukkan 14 fyrir framan Laugar- dalshöllina þar sem kraftakarlarnir ætla sér aö draga vörubíl í kapp viö klukkuna. Ekki er fyllilega Ijóst hve margir munu taka þátt í keppninni en þeir sem ekki hafa skráö sig en hafa áhuga á aö keppa geta mætt ítrukkadráttinn klukkan 14 á morg- un og tekið þátt. Þeir sem lenda í sex efstu sætunum í trukkadrættin- um komast í lokakeppnina sem veröur á þriðjudagskvöldið í Höil- innl. Aö sögn Óiafs Siggeirssonar, formanns KRAFT, hefur skráningin ekki gengiö eins vel og vonast var til og því var gripiö til þess ráös aö hafa þennan háttina á. Rétt er aö leggja á þaö áherslu aö þessi keppni er fyrir alla, ekki aöeins fyrir þá sem æft hafa lyftigar aö staö- aldri. „Nú kemur í Ijós hvort þeir eru sterkari, þeir sem æfa reglulega eöa hinir sem vinna reglulega. Þessi keppni er ekki aöeins fyrír lyftingamenn heldur fyrir alla og viö vitum um marga hrausta menn víöa um land sem vinna erfiöisvinnu og hafa þannig ööiast mikinn kraft. Þessa menn viljum viö endilega fá í keppnina en auövitaö reynir maö- ur sitt besta í keppninni og vonar aö þaö dugi,“ sagöi Hjalti í samtali viö Morgunblaöiö í gær. Aögangseyrir á keppnina á þriöjudaginn veröur 200 krónur fyrir fulloröna og 50 krónur fyrir börn yngri en 12 ára. Ómar Ragn- arsson mun annast kynningu á þriöjudaginn og er honum ætlaö aö halda léttleikanumyfir keppninni. Henson og Aston Villa stofna markaðsfyrirtæki Halldór Einarsson, eigandi Henson-sportfatnaöar, og Doug Ellis, stjórnarformaður enska knattspyrnufólagsins Aston Villa, handsala hér samkomulag sem þeir geröu meö sór í gær um stofnun fyrirtæk- isins „Henson Sales and Marketing". Hlutverk hins nýja fyrirtækis er aö markaössetja Henson-vörur á heimsmarkaði. Aston Villa leikur sem kunnugt er í Henson-búningum í vetur — og er stofnun fyrirtækisins nú í beinu framhaldi af samningi þessara aðila í haust. Ellis kom gagngert til landsins til aö ganga frá samningi viö Halldór — og ætlaöi síðan utan á ný í morgun. Stórtap Bremen BORUSSIA Mönchengladbach komst á topp vestur—þýsku 1. deildarkeppninnar í knattspyrnu í gærkvöldi. Liöiö sigraði þá Bor- ussia Dortmund 3—2 á útivelli — en á sama tíma steinlá Werder Bremen gegn Leverkusen, 1—5, einnig á útivelli. Ulrich Borowka náöi forystu fyrir Gladbach í Dortmund en Marcel Raducanu jafnaöi fyrir hlé. I síöari hálfleik skoraöi Frank Mill tvisvar fyrir Gladbach. Jurgen Wegmann minnkaöi muninn undir lok leiksins. Tap Bremen-liösins í Leverkusen var annaö tap liösins í 13 leikjum í vetur. Suöur-Kóreubúinn Bum Kun Cha skoraöi þrjú mörk fyrir Leverk- usen (á 4.16. og 56. mín.), Christian Schreier og Dirk Schlegel geröu eitt mark hvor. Michael Kutzop geröi eina mark Bremen á 62. mín. — er staöan var orðin 4—0. Brem- en-liðiö saknaöi greinilega marka- skorarans mikla Rudi Völler sem er meiddur. Þriöji leikurin í gærkvöldi var viöureign Bayern Munchen og Kaiserslautern á heimavelli þeirra síöarnefndu. Helmut Winklhofer og Norbert Eder geröu mörk meistara Bayern i2—0 sigri liösins. • Ómar Torfason Miklar líkur á samningi Ómars Torfa Miklar líkur eru nú á því aö ómar Torfaaon geri samning viö aviasneska liöiö Luzern. Um- boösmaöurinn Willie Reinke kemur líklega til landsins í dag og þá mun hann ganga frá mál- um Ómars. i samtali viö Morgunblaöiö í gærkvöldi sagöi Ómar Torfason aö ekki væri víst aö Reinke kæmist til landsins í dag þvi hann heföi þurft aö bregöa sér til Tékkóslóvakíu. Hann vildi ekkert segja um hvort hann væri í þann mund aö gera samning viö Luzern. „Ég vil ekkert segja fyrr en allt er komiö á hreint," sagöi Ómar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.