Morgunblaðið - 18.02.1983, Side 12
SJONVARP
DAGANA
19/2-26
Þriggjamannavist
Á laugardagskvöld í næstu viku verður sýndur fyrsti þáttur-
inn í nýjum breskum gamanmyndaflokki, Þriggjamannavist,
(Tom, Dick and Harriet), en alls eru þættirnir sex talsins. í
aðalhlutverkum eru Lionel Jeffries, lan Ogilvy og Bridgit For-
syth. — Eftir 40 ár fær Tómas Maddison langþráða lausn af
klafa hjónabandsins. Hann sest að hjá syni sínum og tengda-
dóttur til að eyða þar áhyggjulausri elli, ungu hjónunum til
mestu skapraunar. — Á myndinni sem hór fylgir með eru f.v.
Tom Jeffries (Tom), lan Ogilvy (Dick) og Bridgit Forsyth (Harr-
iet).
Rolling Stones
Á miðvikudagskvöld verður sýnd mynd frá norska sjónvarp-
inu, Rolling Stones. Þetta eru svipmyndir frá hljómleikum
bresku hljómsveitarinnar „The Rolling Stones“ í Gautaborg i
júní 1982. Einnig eru rifjuð upp gömul vinsæl lög hljómsveitar-
innar, rætt við Bill Wyman bassaleikara, Peter Wolf og fleiri
Frá liðnum dögum
Á laugardagskvöld í næstu viku verður sýnd þriggja stundarfjórðunga löng dagskrá sem sjón-
varpið hefur látið gera. Frá liðnum dögum, minningar frá fyrstu dögum sjónvarpsins. Umsjón og
stjórn annaðist Tage Ammendrup. Kynnir er Sigríður Ragna Sigurðardóttir. — Brugðið verður upp
gömlum svipmyndum og rætt viö listamenn sem þar koma fram. Þá lítur inn stúlka sem fæddist
rétt áður en fyrsta sjónvarpsútsendingin hófst, 30. september 1966. Sigfús Halldórsson og Elín
Sigurvinsdóttir flytja nýtt lag eftir Sigfús. Ólafur Gaukur og Svanhildur flytja lag sem Ólafur Gaukur
samdi fyrir þáttinn. Auk þess koma fram Ragnar Jónsson, píanóleikari, Björgvin Halldórsson,
Gunnar Þórðarson og Guðlaug Úlfarsdóttir. Loks sýna Modelsamtökin undir stjórn Unnar Arn-
grímsdóttur vor- og sumartískuna 1983 og rifja upp fyrstu tískusýninguna í sjónvarpssal 1966. — Á
myndinni sem hér fylgir með eru Sigríður Ragna Sigurðardóttir sem kynnir dagskrána og Guðlaug
Úlfarsdottir.
m^mmmmmammmmmm
L4UGARD4GUR
19. febrúar
16.00 íþróttir
Umsjónarmaður Bjarni Felix-
son.
18.00 Hildur
Fimmti þáttur. Dönskukennsla
í 10 þáttum.
18.25 Steini og OUi
Konuríki. Skopmyndasyrpa
með Stan Laurel og Oliver
Hardy.
18.45 Enska knattspyrnan.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Löður
Lokaþáttur
Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson.
21.00 Loftfarið Zeppelin
(Zeppelin). Bandarísk sjón-
varpsmynd frá 1971. Leikstjóri
Etienne Perier.
Aöalhlutverk: Michael York,
Elke Sommer, Peter Carsten og
Marius Goring.
í fyrri heimsstyrjöld er bresk-
um liðsforingja af þýskum ætt-
um falið að útvega upplýsingar
um loftfór Þjóðverja. Hann
verður leiðsögumaður um borð í
Zeppelin-loftfari í ránsferð til
Skotlands.
Þýðandi Björn Baldursson.
22.40 Taglhnýtingurinn
(II conformista) Endursýning.
Itölsk bíómynd frá 1970 gerð
eftir skáldsögu Albertos Mora-
via.
Handrit og leikstjórn: Bernardo
Bertolucci.
Aðalhlutverk Jean Louis Trint-
ignant.
Sagan gerist skömmu fyrir síð-
ari heimsstyrjöld. Ungur heim-
spekikennari er sendur til Par-
ísar í erindagerðum fasista-
flokksins. Myndin er ekki við
hæfí barna.
Þýðandi Kristrún Þórðardóttir.
Áður sýnd í Sjónvarpinu 16.
desember 1978.
00.30 Dagskrárlok.
SUNNUD4GUR
20. febrúar
16.00 Sunnudagshugvekja
Séra Jón Bjarman flytur.
16.10 Húsið á sléttunni
Hlöðubruninn
Þýðandi Óskar Ingimarsson.
17.00 Listbyltingin mikla
6. Horft af brúninni
I þessum þætti fjallar Robert
Hughes einkum um expression-
ismann í málaralist
Þýðandi Hrafnhildur Schram.
Þulur Þorsteinn Helgason.
18.00 Stundin okkar
Umsjónarmaður Bryndís
Schram.
Upptöku stjórnar Viðar Vík-
ingsson.
18.55 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Sjónvarp næstu viku
Umsjónarmaður Guðmundur
Ingi Kristjánsson.
20.50 Glugginn
Þáttur um listir, menningarmál
og fleira.
Umsjónarmaður Sveinbjörn I.
Baldvinsson.
20.30 Eldeyjarleiðangur 1982
Þessi kvikmynd er sú fyrsta
sem gerð hefur verið um Eldey
út af Reykjanesi. Sjónvarpið lét
taka hana þegar Árni Johnsen
fór með leiðangur í eyna, m.a.
skipaðan bjargmönnum úr Vest-
mannaeyjum. Leyfí Náttúru-
verndarráðs þurfti til að klífa
eyna þar sem hún er friðlýst.
Þar er ein allramesta súlubyggð
í heimi og eyjan sjálf merkilegt
náttúruundur, þverhnípt 70
metra hátt standberg. Tilgangur
fararinnar var auk kvikmynd-
unar vísindalegs eðlis. Tekin
voru jarðvegssýni og fjöldi súlu-
unga merktur.
Árni Johnsen samdi texta og er
þulur.
Kvikmyndun: Páll Reynisson.
Hljóð: Jón Arason.
Umsjón og stjórn: Örn Harðar-
son.
22.10 Kvöldstund með Agöthu
Christie
6. Jane í atvinnuleit
Aðalhlutverk Elizabeth Garvie
og Andrew Bicknell.
Ungri stúlku býðst ævintýralegt
starf og svimhá laun — enda
reynast vera maðkar í mysunni.
Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir.
23.05 Dagskrárlok.
AihNUD4GUR
21. febrúar
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Tommi og Jenni
20.40 íþróttir
Umsjónarmaður Steingrímur
Sigfússon.
21.15 Já, ráðherra
Þriðji þáttur. Niðurskurður.
Breskur gamanmyndaflokkur.
Aðalhlutverk: Paul Eddington,
Nigel Hawthorne og Derek
Fowlds. Þýðandi Guðni Kol-
beinsson.
21.45 Framlengdur leikur
(Förlángd tid). Finnsk sjón-
varpsmynd. Efnið er sótt í sögu
eftir Hellevi Salminen. Leik-
stjóri Hannu Kahakorpi. Aðal-
hlutverk: Heikki Paavilainen og
Pekka Valkeejárvi.
Myndin lýsir þrotlausum æfíng-
um, kappleikjum og framavon-
um tveggja ólíkra pilta í sigur-
sælu körfuknattleiksliði. Þýð-
andi: Kristín Mántylá. (Nord-
vision — Finnska sjónvarpið)
22.50 Dagskrárlok
ÞRIÐJUDAGUR
22. febrúar
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Sögur úr Snæfjöllum
Barnamynd frá Tékkóslóvakíu.
Þýðandi Jón Gunnarsson. Sögu-
maður Þórhallur Sigurðsson.
20.40 Líf og heilsa
Geðheilsa — Fyrri hluti
f þessum þætti verður fjallað
um geðsjúkdóma og skilgrein-
ingu þeirra, tíðni, áhættuþætti
og fyrirbyggjandi aðgerðir.
Rætt verður við sjúklinga og
vandamenn þeirra um fordóma
gagnvart geðsjúklingum.
Sérfræðilega aðstoð veittu
læknarnir Sigmundur Sigfússon
og Högni Ólafsson, auk fleiri
sem tengjast geðheilbrigðis-
þjónustu. Umsjón og stjórn:
Maríanna Friðjónsdóttir.
21.35 Útlegð
Sjötti þáttur. Hanns.
Þýskur framhaldsflokkur í sjö
þáttum. Þýðandi Veturliði
Guðnason.
22.30 Á hraðbergi
Viðræðuþáttur í umsjón Hall-
dórs Halldórssonar og Ingva
Hrafns Jónssonar.
23.25 Dagskrárlok
A1IÐMIKUDAGUR
23. febrúar
18.00 Söguhornið
Umsjónarmaður Guðbjörg Þór-
isdóttir.
18.10 Stikilsberja-Finnur og vinir
hans
Hertoginn og fylgifískur hans.
Framhaldsflokkur eftir sögu
Marks Twains. Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdóttir.
18.35 Hildur
Fimmti þáttur dönskukennslu
endursýndur.
19.00 Á skíðum
Annar þáttur skíðakennslu
Sjónvarpsins. í þessum þætti
verða m.a. kenndar plógbeygjur
og ýmsar æfíngar tengdar þeim.
Umsjónarmaður Þorgeir D.
Hjaltason. Síðasti þáttur verður
á dagskrá Sjónvarpsins mið-
vikudaginn 2. mars kl. 19.00.
19.20 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.35 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Líf og heilsa
Geðheilsa — Síðari hluti
Áfram verður fjallað um geð-
sjúkdóma og nú fyrst og fremst
ýmiss konar meðferð og lækn-
ingu þessara sjúkdóma. Umsjón
og stjórn: Maríanna Friðjóns-
dóttir.
21.35 Dallas
Bandarískur framhaldsflokkur.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
22.20 Rolling Stones
Svipmyndir frá hljómleikum
bresku hljómsveitarinnar „The
Rolling Stones“ í Gautaborg í
júní 1982. Einnig eru rifjuð upp
gömul, vinsæl lög hljómsveitar-
innar, rætt við Bill Wyman
bassaleikara, Peter Wolf og
fleiri. (Nordvision — Norska
sjónvarpið)
23.10 Dagskrárlok
FÖSTUDKGUR
25. febrúar
17.45 ísland — Spánn
Bein útsending um gervihnött
frá heimsmeistarakeppninni í
handknattleik í Hollandi.
19.15 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Á döfínni
Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna
Hrólfsdóttir.
20.50 Skonrokk
Dægurlagaþáttur í umsjón
Eddu Andrésdóttur.
21.15 Kastljós
Þáttur um innlend og erlend
málefni. Umsjónarmenn: Bogi
Ágústsson og Ólafur Sigurðs-
son.
22.20 Annarra fé
(L’argent des autres)
Ný frönsk bíómynd. Leikstjóri
Christian de Chalonges. Aðal-
hlutverk: Catharine Deneuve,
Jean-Louis Trintignant, Michel
Serrault og Clause Brasseur.
Annarra fé er spariféð, sem fal-
ið er bönkum og sparisjóðum til
ávöxtunar. Myndin greinir frá
bankastarfsmanni, sem sakað-
ur er um misferli, og heyr harða
og tvísýna baráttu til að bera af
sér sakir. Þýöandi Ragna Ragn-
ars.
00.10 Dagskrárlok
L4UG4RD4GUR
26. febrúar
16.00 íþróttir
Umsjónarmaður Bjarni Felix-
son.
18.00 Hildur
Sjötti þáttur dönskukennslunn-
ar.
18.25 Steini og Olli
Verðir laganna. Skopmynda-
syrpa með Stan Laurel og Oliv-
er Hardy.
18.45 Enska knattspyrnan
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Þriggjamannavist
(Tom, Dick and Harriet). Nýr
flokkur. Fyrsti þáttur. Breskur
gamanmyndaflokkur í sex þátt-
um. Aðalhlutverk: Lionel Jeffri-
es, Ian Ogilvy og Bridgit For-
syth.
21.00 Frá liðnum dögum
Minningar frá fyrstu dögum
Sjónvarpsins. Kynnir er Sigríð-
ur Ragna Sigurðardóttir. Brugð-
ið verður upp gömlum svip-
myndum og rætt við listamenn
sem þar koma fram.
21.45 Tomas Ledin
(The Human Touch.) Dægur-
lagaþáttur með sænska söngv-
aranum Tomas Ledin og hljóm-
sveit, ásamt Agnethu úr ABBA.
22.10 Bréfíð
(The Letter.) Ný bandarísk
sjónvarpsmynd gerð eftir sam-
nefndri smásögu Somerset
Maughams. Leikstjóri John
Erman. Aðalhlutverk: Lee Rem-
ick, Jack Thompson, Ronald
Pickup, Ian McShane og Christ-
opher Cazenove.
Myndin gerist í Malasíu meðan
landið var bresk nýlenda. Þar
heyrði Maugham sögu þessa
sjálfur. Eiginkona virts borgara
verður elskhuga sínum að bana.
Konan ber við sjálfsvörn en
leynilegt bréf til elskhugans
verður til að flækja málið. Þýð-
andi Dóra Hafsteinsdóttir.
23.50 Dagskrárlok
Framlengdur leikur
Á mánudagskvöld veröur sýnd finnsk sjónvarpsmynd, Fram-
lengdur leikur (Förlángd tid). Efnið er sótt í sögu eftir Hellevi
Salminen. Leikstjóri er Hannu Kahakorpi, en í aðalhlutverkum
Heikki Paavilainen og Pekka Valkeejárvi. — Myndin lýsir þrot-
lausum æfingum, kappleikjum og framavonum tveggja ólíkra
pilta, Oopee og Urpo, sem leika í sigursælu körfuknattleiksliði.
— Á myndinni eru f.v. Timo Toikka (Oopee), Heikki Paavilainen
(Urpo) og Harri Tirkkonen (þjálfarinn).
A föstudagskvöld í næstu viku verður á dagskrá ný frönsk bíómynd Annarra fé (L’argent des
autres). Leikstjóri er Christian de Chalonges, en í aðalhlutverkum Catharine Deneuve, Jean-Louis
Trintignant, Michel Serrault og Claude Brasseur. — Annarra fé er spariféð, sem falið er bönkum og
sparisjóðum til ávöxtunar. Myndin greinir frá bankastarfsmanni, sem sakaður er um misferli og
heyr haröa og tvísýna baráttu til að bera af sór sakir. — Á myndinni eru m.a. Catherine Deneuve,
Jean-Louis Trintignant og Claude Brasseur í hlutverkum sínum.
/ /
rj'Mf ' Í
Verður elskhuga sínum að bana
Á laugardagskvöld í næstu viku verður sýnd ný bandarísk sjónvarpsmynd, Bréfið (The Letter),
sem gerð er eftir samnefndri smásögu Somerset Maughams. Leikstjóri er John Erman, en í
aðalhlutverkum Lee Remick, Jack Thompson, Ronald Pickup, lan McShane og Christopher Caz-
enove. — Myndin gerist í Malasíu meðan landið var bresk nýlenda. Þar heyrði Maugham sögu
þessa sjálfur. Eiginkona virts borgara veröur elskhuga sínum að bana. Konan ber við sjálfsvörn, en
leynilegt bréf til elskhugans verður til að flækja málið. — Á myndinni hér fyrir ofan eru Lee Remick
(Leslie Crosbie), Jack Thompson (Robert Crosbie) og lan McShane (Jeff Hammond).
■
Annarra fé
GUÐAÐA SKJAINN
dóttir fyrrgreinds Garys og konu
hans að því að best er vitað. Lúsí
er trúlofuð Alan nokkrum Beam,
sem er lögfræðingur að mennt
og hjálparkokkur J.R. Hann ætl-
ar sér að giftast stúlkunni, ekki
vegna þess að hann elskar hana,
heldur vegna þess að J.R. bað
hann um að gera það. Hann bað
hann um að gera það í þeirri von
að Lúsí flyttist af búgarðinum,
en þá slitnar það litla samband
sem Gary hefur við Ewingana.
Vinnumaðurinn á Southfork,
Ray Krebbs, á ekki heldur sjö
dagana sæla hvað varðar til-
hugalífið. Hann er svo ástfang-
inn af stjórnmálaskörungi
nokkrum (sem er kona til allrar
hamingju) að hann vill ekki gift-
ast henni. Það virðist ekki auð-
velda málið að stjórnmálaskör-
ungurinn er yfir sig ástfangin af
Ray þessum. Honum bara finnst
hún vera of góð fyrir sig.
Enn er ógetið systur Sue Ell-
enar, Cristine að nafni, sem er
viðhald J.R. Hún þjáist af valda-
og gróðafíkn auk þess sem hún
virðist hafa snert af brókarsótt.
— Þetta er ekki saga tveggja
systra, þeirra Jessicu Tate og
J.R. myndi glaður selja móður sína, Miss Ellý, ef Mary Cambell — þetta er miklu
hann fengi nógu gott verð fyrir hana. fyndnara ... Arnaldur
Pamela og Bobbý. Hjónaband þeirra er í rúst aðal-
lega vegna þess að Pamela vinnur svo mikið.
Ewingsfjölskyldan
(fyrir þá sem ekki fylgjast meó)
Á Southfork-búgarðinum í Dall-
as í Bandaríkjunum býr Ewing-
fjölskyldan. Höfuð fjölskyldunnar
er maður að nafni Jock Ewing.
Hann er gamall skarfur og sam-
band hans og konunnar hans,
Miss Ellýjar, er heldur aumt þessa
stundina. Það er vegna þess að áð-
ur en Jock giftist Miss Ellý stóð
hann í töluvert nánu sambandi við
aðra konu. Sú er nú á geðveikra-
hæli. Jock hefur annars litlar
áhyggjur í lífínu og sama er að
segja um Miss Ellý, sem er að
jafna sig eftir skurðaðgerð vegna
krabba í brjósti.
Þau hjónin eiga sér þrjá sonu
uppkomna. Elstur er maður að
nafni Gary. Hann hefur ekkert
saman við fjölskylduna að sælda
vegna þess að fjölskyldan vill
ekkert með hann hafa, sem er
aftur vegna þess að asnanum
varð það á að giftast fátækri
skvísu, sem Jock og Miss Ellý
leist ekkert á. Annars hefði hann
orðið forstjóri olíufyrirtækisins,
sem Ewing-fjölskyldan hefur
sitt lifibrauð af.
Forstjóri fyrirtækisins er aft-
ur sonur númer tvö. Sá gegnir
nafninu J.R. og er bölvaður
skíthæll að upplagi. Hann held-
ur framhjá konu sinni með syst-
ur hennar, hatar Gary bróður
sinn því hann gæti einn daginn
komist aftur inn í fjölskyldufyr-
irtækið og hatar litla bróður
sinn líka af því sá er í fyrirtæk-
inu. J. þessi R. er yfirleitt þannig
gerður að hann myndi selja móð-
ur sína, Miss Ellý, ef hann fengi
sæmilegt verð fyrir hana. Sue
Ellen heitir kona J.R. og var hér
áður fyrr ein taugahrúga vegna
þess hvernig maðurinn hennar
hefur komið fram við hana. Hún
leitaði á náðir sálfræðings, sem
gerði hana þannig úr garði að
hún fór að halda framhjá hús-
bónda sínum með milljónera að
nafni Dusty.
Þau hjónin J.R. og Sue Ellen
eiga sér son sem heitir J.R. jr. II
eftir föður sínum. Lengi framan
af voru áhöld um hver væri faðir
snáðans. Sue Ellen hafði nefni-
lega á sínum tíma haldið fram-
hjá manni sínum með bróður
svilkonu sinnar. Sá heitir Cliff
Barnes og lengu héldu menn að
hann ætti barn J.R.s. Svo varð
þó ekki Barnes til mikillar
skapraunar, en hann hefur til-
einkað lífi sínu og starfi baráttu
við Ewing-fjölskylduna, með litl-
um árangri. Það hefur faðir
hans einnig gert með jafnvel enn
minni árangri. Ástæðan fyrir
því að feðgunum er svona í nöp
við Ewingana er óljós. Þó telja
þeir sem gerst til þekkja að það
sé vegna þess að Jock sveik
Barnes eldri um einhverja olíu-
dropa og tók auk þess frá honum
konuna, sem hann elskaði og
elskar enn, Miss Ellý.
Bobbý heitir yngsti sonurinn í
fjölskyldunni og er sá gull af
manni. Hann er svo góður strák-
ur að það þykir næsta líklegt að
móðir hans, Miss Ellý, hafi átt
hann í framhjáhaldi með erki-
englinum Gabríel. Bobbý greyið
á í ægilegum erfiðleikum með
konu sína, Pamelu, að því er
virðist vegna þess að hún vinnur
svo mikið. Pamela þessi er systir
Cliff Barnes. Hjónabandsörðug-
leikar Bobbýs og Pamelu gætu
einnig stafað af því að hún þorir
ekki að eiga börn vegna þess að
hún komst að því að börn, sem
hún gæti vel eignast, gætu hlotið
í vöggugjöf arfgengan sjúkdóm
frá henni, sem gæti orðið þeim
banvænn. Bobbý í öngum sínum
leitar á náðir æskuvinkonu sinn-
ar, Jennu, sem elskar hann, en
hann hana ekki.
Ewing-fjölskyldan á sér lítið
sætt krútt, Lúsí að nafni, sem er