Morgunblaðið - 18.02.1983, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1983
43
Miödalsheiöi. Fariö veröur meö-
fram Myrkutjörn, Gleraugnatjörn,
Selvatni og endaö viö Nátthaga-
vatn. Fararstjóri: Einar Egilsson.
Brottför í ferðirnar frá BSÍ,
bensínsölu. Ekki þarf aö panta far.
SKÁK OG BRIDGE
Taflfélag Kópavogs:
Skákþing Kópa-
vogs hefst á
sunnudag
Skákþing Kópavogs hefst nk.
sunnudag, 20. febrúar, kl. 13 og
veröur teflt aö Hamraborg 1, kjall-
ara. Fyrir utan fyrstu umferöina
veröur síðan teflt á laugardögum
og mánudagskvöldum.
Nýmæli veröur tekiö upp á mót-
inu, þ.e. engar biöskákir veröa,
heldur notast viö sama fyrirkomu-
lag og tíökast í deildarkeppni
Skáksambands Islands, tvær
klukkustundir fyrir fyrstu 40 leikina
og síöan hálf klukkustund til aö
Ijúka skákinni.
Unglingameistaramót Kópavogs
hefst fimmtudaginn 3. mars kl.
20.30 á sama staö og veröa tefldar
tvær umferöir á kvöldi.
KVIKMYNDIR
Lögberg,
Háskóli íslands:
—Spönsk kvik-
myndasýning
í kvöld
í kvöld verður sýnd á vegum
spánska sendiráösins og spönsku-
deildar Háskóla íslands kvikmynd-
in Tristana (1969) sem byggö er á
samnefndri skáldsögu eftir B. Pór-
ez Galdós. Leikstjóri er Luis Bunu-
el, en myndin gerist í Madrid og
Toledo.
Don Lope Garrido (Fernando
Rey), fjöllyndur kvennamaöur, fífl-
ar stjúpdóttur sína Tristönu (Chat-
erine Deneauve), sem vinafólk
hans hefur trúaö honum fyrir.
Hann neitar síöan aö kvænast
henni og gerir hana að ástmey
sinni. Og svo framvegis.
Bunuel hefur sagt um þessa
mynd sína: „Hverju skiptir hver
söguþráöurinn er? í næstu mynd
minni veröur umfjöllunarefniö þaö
sama og fyrr, ástarhvötin og trúin
eins og alltaf. Tristana var ekki
annaö en átylla, sem geröi mér
fært aö lýsa ýmsum hliöum hins
spánska þjóölífs."
Luis Bunuel var nýlega heiöraö-
ur í Pompidou-menningarmiöstöð-
inni í París. Hinn 83 ára gamli
meistari skipar enn sess meö allra
fremstu kvikmyndaleikstjórum
heims.
Sýningin veröur í Lögbergi,
stofu 103, kl. 19.30.
MÍR-salurinn:
Kvikmynd um
Spánarstyrj-
öldina á
sunnudaginn
Kvikmyndasýning veröur í MlR-
salnum, Lindargötu 48, nk. sunnu-
dag, 20. febrúar kl. 16., og þá sýnd
gömul sovésk heimildarkvikmynd
um Spánarstyrjöldina 1936-1939,
aödraganda hennar, lok og eftir-
mál. Myndin nefnist „Grenada,
Grenada, Grenada mín“ og er heit-
iö sótt í frægt kvæöi um borgara-
styrjöldina í Rússlandi eftir sov-
éska skáldiö Svétlov. Höfundar
myndarinnar eru þeir Roman
Karmen, einn kunnasti stjórnandi
heimilarkvikmynda sem uppi hefur
veriö, og blaöamaöurinn og rithöf-
undurinn Konstantin Simonov.
Feröuöust þeir félagar um Spán
meðan á stríöinu þar stóö og söfn-
uöu efni í kvikmyndina. Skýringar
meö myndinni á ensku. Aögangur
aö MÍR-salnum er ókeypis og öll-
um heimill, meöan húsrúm leyfir.
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamíóill!
VZterkur og
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
JMwgtmMitfrife
Frímerki
Jón Aöalsteinn Jónsson
Sakir þrengsla í síöasta föstu-
dagsblaöi varö því ekki komiö
viö aö birta mynd þá úr upp-
boösskrá Félags frímerkjasafn-
ara, sem fylgir þessum línum.
Þótti mér þaö aö vonum miður,
en nú er úr því bætt. Um leiö
minni ég á, aö uppboösefniö
veröur til sýnis á morgun, laug-
ardag, í húsakynnum F.F. aö
Amtmannsstíg 2, kl. 14—16. —
Þá þykir mér rétt aö árétta þaö,
aö frímerkjauppboöiö sjálft fer
fram laugardaginn 26. þ.m., þ.e.
aö viku iiöinni, og veröur í sam-
bandi viö félagsfund, sem hefst
kl. 13.30 í ráöstefnusal Hótels
Loftleiða. Hefur þessi háttur ver-
iö haföur á um nokkurt skeið og
þótzt gefast vel. Eins og nefnt
var í síöasta þætti, mega félagar
í F.F. taka meö sér gesti, enda
hafa nýir félagar oft gengiö í F.F.
á fundum þessum og þannig um
leið öölazt rétt til aö bjóöa í þaö
efni, sem á boöstólum er. Ég
held ég brjóti svo engar reglur,
þótt ég taki þaö hér fram, aö
kaupendur greiöa einungis 5%
ofan á „slegiö“ boö. Aö sjálf-
sögöu bætist sendingarkostnað-
ur viö, ef efnið veröur sent í
KÍLÓVARA
PÓSTSTJÓRNARINNAR
pósti. Loks er rétt aö minna á, að
skrifleg boö veröa aö berast fyrir
24. febrúar, þ.e. næsta fimmtu-
dag.
Fleygið ekki frímerkjum
í þætti 21. jan. s.l. var stutt-
lega vikiö aö frímerkjasöfnun al-
mennt og þess þá m.a. getið, aö
flestir muni sennilega halda til
haga þeim frímerkjum, sem þeir
fá á bréfum sínum og öörum
póstsendingum, þótt þeir líti ekki
á slíkt sem söfnun. Margir gefa
líka vinum sínum og kunningjum
þessi frímerki, og eitthvaö er um
það, aö fyrirtæki gefi merki sín
og heil umslög til líknarfélaga.
Þau selja síðan þessa hluti til
ágóöa fyrir starfsemi sína. Hér
nægir aö nefna Geðverndarfélag
islands sem dæmi. Þá er þaö og
algengt, aö starfsfólk fyrirtækja
og stofnana fái leyfi til aö hiröa
frímerki og selji síðan. Fer hagn-
aöur af þeirri sölu þá í sameigin-
legan sjóö, og er ekki nema gott
eitt aö segja um þaö. En hvernig
svo sem menn ráöstafa frímerkj-
um þeim, sem þeir hiröa, en
fleygja ekki í bréfakörfuna, lenda
þau oftast aö lokum í höndum
frímerkjasafnara, sem dunda við
aö skoöa þau og flokka og koma
síöan fyrir í söfnum sínum eöa
nota til skipta viö aöra safnara.
Kílóvara
Þaö, sem hér hefur veriö sagt
aö framan, má í rauninni einnig
segja um hina svonefndu kíló-
vöru póststjórnarinnar. Eru þaö
frímerki af fylgibréfum og póst-
ávísunum, sem póststjórnin
heldur eftir, en viötakandi fær
ekki aö hiröa sjálfur. Þetta varö
mikið hitamál á sínum tíma, svo
sem margur man, því aö viötak-
endur töldu sig eiga fullan rétt á
þessum frímerkjum. Ekki dró
þaö úr áhuga þeirra aö fá þau í
eigin hendur, aö hér var og er oft
um mjög há verðgildi aö ræöa,
sem sjást nær aldrei á venju-
legum sendingum. En nú liggur
fyrir hæstaréttardómur um þaö,
aö póststjórnin eigi þessi merki
— og ekki þýöir víst aö deila viö
dómarann, þótt mörgum safnara
hafi sárnaö þau úrslit og jafnvel
dregiö þau í efa.
Safnarar geta svo boðið í
þessi frímerki, sem seld eru ár-
lega í 250 g pökkum. Getur ein-
staklingur boöiö mest í 12 pakka
eöa 3 kg, og af því er nafniö kíló-
vara dregið. Því miöur hefur
hvort tveggja orðið, að vara
þessi hefur aö margra dómi orö-
iö lélegri meö árunum, og svo er
hitt, sem bæöi ég og aörir hafa
skrifað um, aö íslenzkir safnarar
neyöast til aö greiða söluskatt til
ríkisins ofan á veröiö. Ég segi
neyöast, þvi aö erlendir frí-
merkjasafnarar eöa kaupmenn
þurfa ekki aö greiða þennan
skatt. Auðvitaö er hér um mikla
og óhæfa mismunun að ræöa.
Nú er lika svo komiö, aö jafnvel
íslenzkir frímerkjakaupmenn sjá
sér tæplega fært aö bjóöa í þessi
frímerki. Hef ég hugboð um, aö
hvorki 1981 né 1982 hafi þessi
kilóvara selzt upp. Vitaskuld er
þaö mjög slæmt fyrir alla aöila,
en mælirinn getur oröiö fullur,
þótt söfnunarhneigðin sé sterk,
þannig aö menn láti ekki bjóöa
sér allt. Þar sem saman munu
fara aö nokkru leyti í máli þessu
hagsmunir safnara og svo
póstmanna, er þess óskandi, aö
samvinna geti tekizt um þaö milli
þessara aöila aö fá ranglátum
skatti af sölu kílóvörunnar aflétt.
Ef þaö tekst, þarf póststjórnin
ekki að sitja uppi meö óselda af-
klippinga af fylgibréfum sinum og
póstávisunum, þ.e. kílóvöruna.
Allt aö
afsláttur
Opiö frá kl. 9—12
laugardag.
FÁLKINN
Suðurlandsbraut 8.
S: 84670.