Morgunblaðið - 18.02.1983, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1983
37
90 númer á uppboði
Mynt
Ragnar Borg
Aðalfundur Myntsafnarafélags
íslands var haldinn í Norræna
húsinu hinn 6. febrúar síöastliö-
inn. Formaður félagsins, Freyr
Jóhannesson, tæknifræöingur
og Jón Guöbjörnsson, gjaldkeri
félagsins geröu grein fyrir starfi
og hag félagsins á liönu starfsári,
sem var bæöi víötækt og þrótt-
mikið. Áhersla hefir veriö lögö á
aukna klúbbstarfsemi en fimmtu-
dagsfundir félagsins eru býsna
vinsælir. Nú húsgögn í félags-
heimiliö, keypt fyrir gjafir og
framlög áhugasamra myntsafn-
ara, hafa aukiö eldmóö mynt-
safnara. Fjárhagslega er félagiö
vel stætt.
Formaöur gaf ekki kost á sér
til endurkjörs. Kvaö þaö venju,
aö formenn störfuöu ekki lengur
en 2 ár hjá félaginu. í stjórn voru
kjörnir: Ragnar Borg, formaöur,
Axel Clausen, ritari, Jón Guö-
björnsson, gjaldkeri, Kristján E.
Halldórsson, meöstjórnandi.
Varamenn: Júlíus Arnórsson. Er-
lendur bréfaritari: Sævar Jó-
hannesson, Uppboösnefnd:
Þorsteinn Pálsson, Sveinn
Ólafsson, Árni Frímannsson.
Endurskoðendur: Freyr Jóhann-
esson, Halldór Pálsson.
Á fundinum var lögö fram skrá
um myntbirgðir félagsins. Næsti
uppboðs- og skiptafundur veröur
haldinn í Templarahöllinni á
morgun, laugardaginn 19. febrú-
ar kl. 14.30. Veröa þar boöin upp
90 númer. Er þar margt um fína
drætti, svo sem: tvö Alþingishá-
tíöarsett frá 1930. Gull og silfur-
mynt frá 1974. Gullpeningar Jóns
Sigurössonar frá 1961. Danska
10 og 20 krónu gullpeninga frá
1890 og 1910 og endursláttu
Ærulaunapeninganna frá tímum
Kristjáns 8. og Friöriks sjöunda.
Ennfremur veröur boöin upp
mynt frá Mexikó, Brasilíu, Nýja
Sjálandi, írlandi, Englandi, Rúss-
landi, Hollandi, Kanada, Finn-
landi, Noregi, Svíþjóö, Græn-
landi, Danmörku og íslandi, þar á
meöal 10 aura peningar í flokki 1
frá árunum 1922, 1923, 1925,
1929, 1933, 1936, 1939, 1940 og
1942. Á uppboðinu veröa því
margir fágætir peningar.
Myntsafnarafélagiö vinnur nú
aö því aö skrá og mynda alla
minnispeninga, sem gefnir hafa
veriö út hér á landi, eöa eiga
sögulegar rætur hingaö. Hjálmar
Hafliöason, Helgi Jónsson og
Tryggvi Ólafsson hafa séö um
skráningu peninganna og Ólafur
Jónsson hefir tekiö Ijósmyndir.
Er þetta mikiö verk og vandunniö
og hefir tekiö mörg ár, en þeim
félögum miðar þaö vel áfram, aö
þeir búast viö aö hafa fullkomna
skrá tilbúna á hausti komanda.
Frábært afrek myndi ég segja.
Vonandi veröur þessi skrá gefin
út, þegar hún er tilbúin.
Ærulaunapeningar:
Fágætir heiðurspeningar,
endurslegnir í silfri, sjaldgæfir
og fallegir.
10 aurar frá 1925, 1929 og 1933.
Erfiðustu peningarnir. Ekki er
unnt að fullkomna íslenskt
myntsafn fyrr en þessir pen-
ingar eru komnir í safnið, en
það hefir reynst mörgum safn-
aranum bæði erfitt og dýrt.
Gullpeningurinn íslenski
Hefir hækkandi gullverö áhrif á
söluverðið, eða er söfnunar-
gildið meira?
JltargtitiMfifrifr
Gódan daginn!
Matur
Bergljót Ingólfsdóttir
Gott er að fá
góða súpu
I Heimilishorni hafa oft birst
uppskriftir af súpum, fljótlöguö-
um og mettandi. Hér verður ör-
lítið bætt við í þessum efnum.
Púrrusúpa
Nú eru á boðstólum Ijómandi
góðar púrrur og henta þær mjög
vel til súpugerðar.
3 púrrur
2 matsk. smjörlíki eöa smjör
Y« I hænsnasoð (1—2 teningar
og vatn)
2 dl rjómi — kaffirjómi eða
rjómabland
salt, pipar og graslaukur ef til
er.
Púrrurnar eru skornar í þunn-
ar sneiðar og brugðiö í smjörlíki
á pönnu eða í potti, síðan er
soðinu hellt á og þetta látið
malla í ca. 10 mín. Þá er rjóma
og kryddi bætt út í, súpan hituö
aftur og bragöbætt að smekk ef
með þarf. Graslaukur settur í að
lokum.
Með þessu er borið brauð,
t.d. skinkusamlokur. Heilhveiti-
brauð er ristað, smurt með
smjöri og sinnepi, þá er lögð
skinkusneið á og síöan væn
ostsneið, síðan brauðsneið ofan
á. Brauðið má aö sjálfsögöu
einnig setja í ofn. Þarna er þá
komin máltíð, sem hver maður
getur veriö fullsæmdur af.
Kartöflusúpa
frá Provence
Vi meðalstór laukur
1 græn paprika
skorið í sneiðar og sett í eina
tsk. af jurtaolíu í pott í 5 mín.,
vatni hellt á og kryddað að
smekk.
Púrrusúpa
2 tómatar skornir í báta, settir
út í ásamt 50 gr. af frosnum eða
niöursoðnum baunum. Súpan
látin malla í 5 mín. í viöbót, bæta
má í meira vatni ef þurfa þykir
ásamt örlitlu kartöfludufti úr
pakka. Graslaukur klipptur yfir
súpupottinn áður en borið er
fram.
stu staöirnir. so—^
IN ÚTSYNAR RENNUR U
STREYMA INN
með toppafslsetti
mgum viö 1lu9,é’°9 °^gf a'iágmarksverði
jaöri þjónustu, sem fæst 9
■fAR . r.na oq Kemur beint fram i
^r.MMEOTOPPAFSLÆTTI.
riL AnnARRA LAnDA
QEINT LEIGUFLUG
A BEZTU STAÐINA
ENN LANGÓDÝRASTI 0G BEZTI VALKOSTURINN í SUMARLEYFINU
Costal del Sol
— TORREMOLINOS/ MARBELLA
Fjölsottasta feröaparadisin, sindr-
andi sólskin, fjörugt mannlif 25 ár í
leiguflugi. — Verð frá kr. 11.700.-
Sikiley
— TAORMINA/ NAXOS
Heimsfræg fegurö, saga. listir, róm-
antík. Fegursta eyja Mlöjaröarhafs-
ins, fádæma vinsæl. — Verð frá kr.
11.900.-
Mallorca
- PALMA NOVA/ MAGALUF
Sivinsæl, en þá gildir aö vera á réttu
ströndinni með valdan gististað. —
Verð frá kr. 11.700.-
Portúgal
— ALGARVE
Einn sólrikastl staöur Evrópu með
heillandi þjoðlíf, hreinar, Ijósar
strendur og hagstætt verðlag
Spennandi nyjung á markaðnum —
Verö frá kr. 12.400.-
FORFALLATRYGGING
Útsýn er fyrsta íslenzka feröaskrifstofan,
sem býöur tryggingu fyrir fullri endur-
greiöslu, veröiröu aö afpanta ferö.
ST AÐGREIÐSLU AFSLÁTTUR
5% af pöntunum, sem berast fyrir 1. marz og
eru greiddar á gjalddaga.
SÓLAR-
SJÓÐUR
auöveldar þér greiöslu
fargjaldsins meö jöfnum
afborgunum og gengis-
tryggingu.
Munið Karnivalhátíð Útsýnar á
konukvöldi.
Þú nýtur lífsins í Útsýnarferðum
Lignano Sabbiadoro
— HIN GULLNA STRÖND ITALIU
10 ár Utsýnar i sérhannaðri sumar-
paradis. — Verð frá kr. 12.900.-
Flug og bíll
í suðurlöndum
— Verð frá kr. 8.630,-
Vikusigling með
M/S Vacationer
i solriku Miðjarðarhafinu. — Verð frá
kr. 7.600.- með fullu fæði.
Sumar á Sjálandi
Ibúöir eða sumarhus. — Verð frá
kr. 9.660.-
Það er sama hvernig þú
reiknar — ÚTSÝN býður
hagstæöustu lausnina.
Feröaskrifstofan
Utsýn
Austurstræti 17, Reykjavík, s: 26611
Hafnarstræti 98. Akureyri, s: 22911.
Umboðsmenn um allt land.