Morgunblaðið - 18.02.1983, Side 1
Föstudagur 18. febrúar - Bls. 33-56
Morgunblaöiö/RAX.
Fjölskylduráðgjafar hafa komist aö raun um að það eru ýmsar ástæður fyrir því að fram kemur öfugsnúin valdaskipting
fjölskyldunni þ.e. þegar húsbóndinn á heimilinu er nokkrum númerum of lítill til að geta klæðst raunverulegum fullorðinsfötum.
HVER STJÓRNAR
Á ÞÍNU HEEMILI?
Valddreifing innan fjölskyldunnar er einn af
þeim þáttum, sem fjölskylduráðgjafar fylgjast
grannt með, því innan fjölskyldunnar skiptir
það máli hver segir hverjum fyrir verkum.
Það er mönnunum eðlilegt að koma á með
sér kerfum með mismunandi valdskiptingu,
hvort sem um er að ræða ríkisstjórn, félaga-
samtök, skóla eða innan fjölskyldunnar. Á
heimilinu tökum við valdskiptinguna sem
sjálfsagðan hlut, án þess að hugsa nánar út í
það. Ef við verðum til dæmis vitni að því, að
kona skipar barni að drekka nú strax úr
mjólkurglasinu sínu, þá drögum við eins og
ósjálfrátt þá ályktun að hún sé móðirin og
þetta sé hennar barn. Ef við sæjum hlutunum
snúið alveg við — að barnið væri að skipa
móðurinni að drekka morgunkaffið sitt —
myndum við strax fá vissar grunsemdir um
að ekki væri allt með felldu. Fjölskylduráð-
gjafar hafa komist að raun um, að þess háttar
öfugþróun í hlutverkaskipaninni, umsnúin
valdaskipting, séu algeng einkenni hjá þeim
fjölskyldum, þar sem barn hegðar sér illa og
er í hæsta máta ústýrilátt, en það eru ýmsar
ástæður til þess, að fram kemur öfugsnúin
valdskipting í fjölskyldunni. Það kann að
vera að foreldrar leiði hjá sér að taka af
skarið, af því að þeir hafi vissa sektarkennd,
eða þeir vilji síst af öllu eiga á hættu að líkjast
eigin foreldrum og uppeldisaðferðum þeirra. I
blaðinu eru nefnd dæmi um óeðlilega hlut-
verkaskipan í fjölskyldunni og hvernig unnt
er að færa foreldrum fullan myndugleik sinn
aftur, en laun slíks erfiðis eru allajafna betra
og hamingjusamara líf fyrir hvern og einn
meðlim fjölskyldunnar.
Unglingabólur
Hvað er
til úrbóta?
Flestir kannast við þann kvilla
sem nefndur hefur verið
gelgjubólur eða unglingabólur.
Frá gamalli tíð hefur litið verið
gert úr unglingabólum, en þær
hafa valdiö mörgum ómældum
áhyggjum. Sæmundur Kjart-
ansson húðsjúkdómalæknir seg-
ir frá helstu einkennum og hvað
hægt er að gera til úrbóta.
Hárið
Himinháar sátur
eða rennislétt ...
Hárið hefur löngum verið tal-
iö ein aðalhöfuöprýði
kvenna og áhyggjuefni karla.
Við tíndum saman ýmsa fróö-
leikspunkta um háriö, úr hverju
það er, hversu mörg hár eru aö
meðaltali í hársveröinum, um-
hirðu hársins í dag og hér áður
fyrr.
Mvnt 37 Fiármál fiölskvldunnar 40 Siónvarp næstu viku 44/45
Spurt og svarað 38/39 Frímerki 43 Útvarp næstu viku 46
Heimilishorn 38/39 Hvað er að gerast? 42 Myndasögur 48
I