Morgunblaðið - 29.07.1980, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 29.07.1980, Blaðsíða 37
45 TT^ VELVAKANDI SVARAR Í SÍMA 0100 KL. 10—11 FRÁ MÁNUDEGI • Mildi að stórslys skuli ekki hafa orðið Undirritaður má einnig til með að koma því á framfæri við bílstjóra á Akureyri, sem aka malarbílum, að hafa planka aftast á pallinum, þegar verið er að aka öllum þessum steinum um bæinn og nágrenni. Það er ekki ósjaldan sem stórir hnullungar rúlla um götur Akureyrar og mesta mildi að ekki hafi hiotist stórslys af. Það verður einnig að átelja lög- regluna vegna þessa, því þeir aka afskiptalaust eins og aðrir á eftir þessum bílum. H.S. • Er unglingunum gleymt? Hefur unglingum á aldrinum 16—20 ára verið algerlega gleymt? Að minnsta kosti hérna á höfuð- borgarsvæðinu er ekki neinn stað- ur þar sem þessi aldurshópur getur hist á, dansað eða rabbað saman. Margt af eldra fólkinu segir að þetta sé nií einmitt aldurinn til þess að skemmta sér á og njóta þess að vera til. Vissulega getum við beðið til tvítugs, en hvað tekur þá við? Margir eru komnir með börn og bú, giftir og hvenær hefur fólk þá tíma til að skemmta sér? Það er svo furðulegt að maður má trúlofast, eignast börn og giftast innan tvítugs, en ekki fara inn á almenna skemmtistaði. Hverjir setja eiginlega þessi takmörk? Það væri gaman að vita hvort einhver von væri um úrbætur í þessum málum og heyra álit sem flestra. Og þar með er þessari spurningu komið á framfæri til ráðamanna. Tvær, sem eru orðnar leiðar á rúntinum og bíóferðum. Þessir hringdu . . . • Ellilaun sam- svara dagpening- um ráðamanna Einn 86 ára hringdi. Víst íslendingar geta ekki nýtt hitann úr iðrum jarðar, þá held ég að ráðamennirnir ættu að fara heim og sitj i í kuldanum. Finnist hér gull í jörðu þá mætti enginn njóta þess, þvi það gæti haft áhrif á verðbólguna. Ég hef mín ellilaun, allir vita hver þau eru, ég hef einnig góðan hita úr iðrum jarðar, en mánaðarlaun mín eru lítið hærri en dagpen- ingar ráðamanna eða daglaun margra iðnaðarmanna, samt er ég ánægður. • Tjaldið yfir Austurstrætið „ráfari hringdi“ Þetta hefur verið hlylegt sumar í Reykjavík, og margir hafa SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Þessi staða kom upp í viðureign sovézku stórmeistaranna Vaganj- an og Kuzmins. sem hafði svart og átti leik, í keppni sovézku skákfé- laganna í sumar. Þrátt fyrir það, að svartur sé drottningu yfir í svipinn, á hann þó greinilega í vök að verjast vegna hvíta g-peðsins. 42. - Hxf3!, 43. gxf3 (43. g8-D hefði auðvitað verið svarað með 43. — Hf8 með skák) — Dgl+, 44. Kh5 - Dh2+, 45. Kg6 - Dg3+, 46. Kf7. Jafntefli, því svartur losnar ekki úr þráskákunum. notið blíðunnar í borginni. En þegar maður er á ferð í miðbæn- um og sér fólk sitja á steinum og stéttum þá saknar maður þess mjög að engin samtök skuli um að tjalda yfir smáskika í Austur- strætinu þar sem hægt væri að setjast niður á stól og fá sér kaffisopa eða öi. Vill nú ekki einhver framtakssamur maður berjast fyrir þessu öllum til ánægju og eðlilegra lífsmynsturs í borginni? HOGNI HREKKVISI „ £j? E/UtJ 'AK»PWi»4w| t Styðjið okkur í starfi Minnispeningur íþróttasambands fatlaöra í eitt þús. númeruðum eintökum. Gefinn út í tilefni fyrstu þátttöku íslands í Olympíuleikum fatlaðra. Fæst á eftirtöldum stööum. Búnaðarbanka íslands, Austurstr. 5 Frímerkjamiðstöðinni Skólavörðust. 21 a Hjá Magna, Laugavegi 15 Sundlaug Vesturbæjar Skrifstofu ÍSÍ, Laugardal. Verð kr. 15.500 og kr. 16.500. Falleg og smekkleg gjöf. Góð fjárfesting. íþróttasamband fatlaðra. — AMERÍKA PORTSMOUTH NEW YORK HALIFAX UMBOÐSMENN Portsmouth/New York A L. Burbank & Co., Ltd General Steamship Agents 2000 Seaboard Avenue. P.O. Box 7067 Portsmouth, Va. 23707 Tel.; (804) 393-1038 Collect 800-466-8317 Telex: 710-882-7525 Halifax F.K. Warren Ltd. P.O. Box 1117 Halifax N.S. B3J 2x1 Tel.: (902) 423-8136 Telex: 019-21693 Hafðu samband EIMSKIP SIMI 27100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.