Morgunblaðið - 29.07.1980, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 29.07.1980, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ1980 7 Sovéskur þrýstingur í þættinum „Ordspor" í nýútkomnu hefti al tíma- ritinu Frjáls verslun er eftirfarandi frásögn af því, sem gerdist bak við tjöldin í nýlegum viö- skiptaviöræöum viö Sov- étmenn. Frásögn tíma- ritsins er á þennan veg: „Nýgeröur ramma- samningur við Sovétríkin þykir lofa góöu fyrir ýms- ar útflutningsgreinar Ís- lendinga. Voru Sovét- menn fúsari til viðskipta en ýmsir áttu von á fyrir- fram. En það mun hafa komið fram í viðræöum við oddvita sovézku samninganefndarinnar að hún væri reiðubúin til samninga viö íslendinga um fleira en það, sem fram kom á pappírnum. Sovétríkin eru reiðubúin til að selja íslendingum tækni og taka þá íslenzk- ar útfningsafurðir á móti. Eru þeir þá sérstakiega með í huga vélar og tækni í sambandi við uppbyggingu raforku- vera. Þá létu Sovétmenn í Ijós vilja sinn til að fá undanþágur til veiða í íslenzkri fiskveiöilög- sögu. Þar var fyrst og fremst átt við kolmunna- veiðar og að aflanum yrði jafnvel landaö hérlendis. Þessu tali var eytt strax í fæöingu af forsvars- mönnum íslenzku samn- inganefndarinnar og Sov- étmenn hvattir til að nefna það ekki upphátt við samningaborðið, sem þeir gerðu ekki. Enn- fremur létu hinir sovézku fulltrúar í Ijós vonir um að íslenzk blöð skrifuöu vinsamlegar um Sovét- ríkin en þau gerðu nú mörg hver. Þessu var svarað með því að benda á grundvallarlögmál skoðanafrelsis og prentfrelsis sem hér ríktu. Hinir sovézku emb- ættismenn, sem þátt tóku í viðræðunum létu það gott heita að sinni en íslenzku samningamenn- irnir eiga von á aö á þessi mál verði minnt í framtíð- inni af hálfu Sovét- manna.“ Barnalegar yfirlýsingar Margar barnalegar yfir- lýsingar sjást nú víöa á prenti hjá þeim, sem reyna að halda fast við það sjónarmiö, að engin rök séu gegn þátttöku í Ólympíuleikunum í Moskvu. Þó stakk mjög í stúf við allt það hjal samtal, sem fréttamaður ríkisútvarpsins á leikun- um átti við sovéska konu, er ekki vildi láta nafns síns getiö af eðlilegum ástæðum, og útvarpað var sl. föstudagskvöld. Færi vel á því, að útvarp- ið endurtæki það samtal eins og flest annað síð- ustu daga. Barnaskapurinn í áróðrinum um leikana er þó mestur hjá Sovét- mönnum sjálfum. Frétta- deild KGB, Novosti, sem hefur skrifstofu hér á landi, sendi í síöustu viku út fréttabréf, þar sem með eftirfarandi hætti er skýrt hvers vegna svo fáir bílar sjást á götum Moskvu, þegar Ólympíu- leikarnir fara fram. „Hugsum okkur að engar takmarkanir væru á aögangi bifreiða að borginni. Þaö myndi þýða, að 500—700 þús- und bifreiðir myndu bæt- ast viö þá umferö, sem nú er um borgina. í því tilfelli myndi mjög senni- lega, ef ekki óhjákvæmi- lega koma til umferðar- truflana og þar af leið- andi tafa á flutningi keppenda og ólympíu- gesta um borgina. Dagskráin er hins vegar fastbundin upp á mínútu. Umferðatruflanir myndu rugla keppnisdag- skránni. Nei, þeim sem óska Ólympíuleikunum alls ílls verður ekki veitt sú ánægja." Og höfundur þessara gullvægu orða á ekki í vandræðum meö að skil- greina nauðsyn þess, að í Moskvu skuli vera einn lögreglumaður fyrir hvern einn útlendan gest. Hann segir, að það sé til þess að „hafa hemil á fólksstraumnum“. Þá segir hann, aö vissulega unni „menn íþróttum um heim allan, en það er ógerlegt að koma fyrir milljónum íþróttaunn- enda, jafnvel þótt í borg- inni væru tífalt fleiri hótel en eru í Moskvu." Þess má geta, að Sovétmenn bjuggust við um það bil 300 þúsund útlendingum til að horfa á leikana, en talið er að þeir verði á milli 70 og 80 þúsund. Mamiya ZE Tölvustýröur quartz-tímamælir er meöal margra tækninýjunga, sem gera Mamiya ZE aö myndavél, sem er langt á undan sinni samtíö. Myndavél, sem hægt er aö taka meö fullkomnustu myndir af erfiöustu viöfangsefnum. Myndavél, sem þrátt fyrir tæknilega fullkomnun, er sára auöveld í notkun. Mamyia 135 EF Falleg vél fyrir 35 mm filmu meö innbyggöu flassi og 38 mm linsu. VERÐ AÐEINS KR. 174.000 56.400 HANS PETERSEN HF BANKASTRÆTI GLÆSIBÆR S:20313 S: 82590 AUSTURVER S:36161 Umboðsmenn um allt land Utsolustaöir Karnabaer Ldugavegi 6b — Karnabær Glæsibæ - Epiið Akranesi — Ephö isafiröi 'ví Alfholl Siglufiröt — Cesar Akureyri — Hornabær Hornafiröi — Eyjabær Vestmannaeyjum J LITASJÓNVÖRP með ,Linytron Plus‘ myndlampa er japönsk tækni í hámarki. TUDOR rafgeymar í álla bíla, vinnuvélar og báta .. Já — þessir meb 9 lif!" Skipholt 35. — Sími: 37033 Litli þrautgóði fjölskyldubíllinn SIMCA 1100 SIMCA 1100 er einn duglegasti litli fimm manna fjölskyldubíllinn, sem marg sannaö hefur kosti sína á íslenzkum vegum og vegleysum. SIMCA 1100 er fimm manna framhjóladrifinn fjöiskyldubíll, sem eyðir 7,7 I. pr. 100 km samkv. uppl. frá verksmiðju. Öryggispönnur eru undir vél, gírkassa og bensíntank, auk þess er 21 cm undir lægsta punkt. Á fáeinum sekúndum má t.d. breyta SIMCA 1100 í stationbíl, enda er hann með fimmtu hurðina aö aftan. Verð miðað vid 15.7.80: SIMCA 1100 LE kr. 5.535.817.- SIMCA 1100 GLS kr. 6.128.518.- Þú færð ekki betri bíl á betra verði. Hafðu samband strax CHRYSLER M lil k > SUÐURLANDSBRAUT 10. SÍMAR; 83330 - 83454 & Vökull hf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.