Morgunblaðið - 29.07.1980, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 29.07.1980, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ1980 21 Litlu munaði hjá Oddi ODDUR Sigurðsson hefur lokið keppni sinni á Ól-leikunum í Moskvu. Oddur keppti í 400 m hlaupi á sunnuda^- Oddur hljóp i áttunda riðli og hafnaði i fimmta sæti, fékk tímann 47,39 sek. Fjórir fyrstu i hvejrum riðli komast áfram í milliriðla. Sigurvegarinn í riðli Odds var Sovétmaðurinn Chernetsky, hljóp á 47,04 sek. Lengi vel leit út fyrir að Oddur hafnaði i þriðja sæti. þvi að hann hljóp mjög vel framan af hlaupinu en i lokin varð hann að gefa eftir og Bretinn Alan Bell fór fram úr honum á marklínunni. Fékk Bell tímann 47,38, eða einum úr hundraðasta úr sekúndu betri tíma en Oddur. Þrátt fyrir að Oddur hafi fallið úr, náði hann betri tíma en lfi keppendur sem náðu að komast i milliriðlana. Bestum tíma i undanrásum náði Austur-Þjóðverjinn Frank Schaffer, 46,13 sek. Hér á eftir fara úrslitin i riðli Odds. 8. riðill 1. N. Chernetsky, Sovét, 47,04 2. Mauro Zuliani, Ítalíu 47,16 3. M. Klarenbekk, Hollandi 47,37 4. Alan Bell, Bretlandi 47,38 5. Oddur Sigurðsson, ísl. 47,39 6. Isidoro Hornillos, Spáni 47,45 7. C. Gullstrand, Svíþjóð hætti Bjarni varð — JÚ, ég er nokkuð ánægður yfir hversu vel mér gekk, það var verst að ég skildi ekki vinna sigur á Kúbumanninum, það var hnifjöfn glima og við vorum jafnir að stigum þegar glimunni lauk, en dómararnir töldu að Kúhumaðurinn hefði sótt meira og þvi dæmdu þeir honum sigur. Nú. hann glimdi svo við Rússa sem hafnaði i 2. sæti i keppninni. Ég hafnaði i 6.-8. sæti og það verður að teljast viðunandi árangur sagði judó-maðurinn Bjarni Frið- riksson, er Mbl. ræddi við hann í gærdag. Bjarni glímdi fyrst við Kýpur- búa og sigraði hann létt. Síðan glímdi hann við Móngólíumann og varð sú glíma tvísýn, en Bjarni hafði þó undirtökin og sigraði. Með örlítilli heppni hefði Bjarni því hæglega getað komist ofar í keppninni, en engu að síður er árangur Bjarna mjög góður. í 6.-8. sæti Bjarni Friðriksson. Alls kepptu 23 í 91 kílóa flokknum sem Bjarni var í. Halldór Guðbjörnsson keppir í judó á miðvikudag. Guðmundur varð 13. ÞAÐ ER ekki hægt að segja annað en að þetta sé dálítið þungt i vöfum hjá Rússunum, en allt skipulag er gott, sagði Guðmundur Þórarinsson flokk- stjóri lyftingamannanna er Mbl. ræddi við hann i gær. Guðmundur var þá nýkominn heim i OL-þorpið með Birgi Borgþórssyni sem var að Ijúka keppni í lyftingum. Birgir lyfti 330 kg samanlagt. Snaraði 147'A kílói, og jafnhattaði 182,% kg. Alls voru sjö keppendur í fyrri flokknum sem Guðmund- ur keppti i og hafnaði hann i fjórða sæti af þeim. Aðrir sjö áttu svo eftir að reyna með sér síðar i gærkvöldi. Guðmundur Helgason hefur lokið keppni i sinum flokki og hafnaði hann i 13. sæti. Hér á eftir fara úrslit- in i hans flokki. kg 1. Peter Baczako Ung. 377,5 2. Roumen Alaxandrov Búl. 375,0 3. Frank Mantek A-Þýsk. 370,0 4. Dalibor Rehak Tékk. 365,0 5. Withold Walo Póll. 360,0 6. Lubomir Srsen Tékk. 357,5 7. Nicholas Uiadis Grikkl. 345,0 8. Garry Longford Bretl. 330,0 9. Norb. Oberburger ítal. 315,0 Guðmundur Helgason varð þrettándi, lyfti samtals 295 kg. Langstökkið: Þjóðverjinn náði næst- lengsta stökki sögunnar AUSTUR-Þjóðverjinn Lutz Dumbrowski sigraði í langstökki á Moskvuleikunum í gærdag. Náði kappinn næst lengsta stökki sem sögur fara af í þessari íþróttagrein, eða 8,54 Frlfilsar Iþrðttlr metra. Annar var Frank Pasc með 8,21 metra stökk og þriðji varð Valery Pudluzhyni frá Sov- étríkjunum með 8,18 metra stökk. Aðrir keppendur náðu eftirtöldum árangri: metrar 4. Lazslo Zsalma Ung. 8,13 5. Stanislav Jasulka Júg. 8,10 6. Antonio Corgis Spáni 8,09 Hreinn Halldórsson óskar Jakobsson Hreinnog Óskar báðir í úrslit ÞAÐ LÁ vel á þeim Ilreini Ilalldórssyni og óskari Jak- obssyni i gærkvöldi er Mbl. ræddi við þá. Þeir höfðu um morguninn tryggt sér sæti í úrslitakeppninni i kúluvarp- inu. Ilreinn kastaði 19,74 metra í þriðju tilraun og óskar kastaði 19,66 metra í þriðju tilraun. Alls hófu 16 kúluvarp- arar keppni, en aðeins 12 kom- ust í úrslitakeppnina sem fram fer á miðvikudag og hefst kl. 15.55 að islenskum tima. Und- ankeppnin fór fram um kl. 10 i gærmorgun og þurftu kastar- arnir að ná 19,60 og var veður gott á meðan á keppninni stóð. Hér að ncðan er árangur þeirra sem tryggðu sér rétt til þátt- töku i úrslitakeppninni. Metrar: Vladimir Kiseiiov, Rússl. 20,72 A. Barishnikov, Rússl. 20,58 Vladimir Milic, Júg. 20,56 Reijo Stahlberg, Finnl. 20,53 Anatoli Yaroch, Rússl. 20,19 Udo Bayer, A-Þýsk. 19,94 Geoff Capes, Bretl. 19,75 Hreinn Halldórss., ísl. 19,74 Jaromir Vlk, Tékk. 19,69 óskar Jakobss., ísl. 19,66 Jean Pierre Eggert, Sviss 19,61 - ÞR „Veróum að vera heppnir“ sagöi Hreinn Halldórsson UNDANKEPPNIN gekk ósköp venjulega fyrir sig eins og gengur og gerist á stórmótum. ég var ekkert taugaóstyrkur það tók þvi ekki, sagði Hreinn Halldórsson er Mbl. ræddi við hann í gærdag. — Við Óskar munum hvíla okkur alveg fram að aðalkeppninni sem fram fer á miðvikudag. Mitt álit er að við verðum að vera mjög heppn- ir ef vel á að ganga. Það fá allir keppendur þrjú köst til að byrja með og siðan fá þeir átta fyrstu að kasta þrjú köst til viðbótar. Það má eiginlega segja að þá reyni fyrst verulega á mann, i fyrstu þremur köstun- um. Það ræður nefnilega svo miklu að geta fengið að kasta sex köst en ekki bara þrjú. Ég þurfti að hafa vel fyrir þessum tveimur köstum í undan- keppninni, en á von á að geta gert enn betur. Rússarnir eru feykilega sterkir, svo og Aust- ur-Þjóðverjarnir. Mín skoðun er sú að keppnin um fyrsta sætið standi á milli Udo Beyer og Barsnikov. Bayer kastaði til dæmis vel yfir 21,50 metra j>egar hann var að hita upp fyrir undankeppnina, svo til átaka- laust. Bæði ég og Óskar erum heilir heilsu, höfum sloppið við allar pestir, við erum ánægðir með allan aðbúnað og biðjum fyrir bestu kveðjur heim, sagði Hreinn að lokum. — ÞR „Vottaði fyrir taugaspennu“ sagði Óskar Jakobsson — JC, ÞAÐ vottaði örlitið á taugaspennu hjá mér i undan- keppninni i kúluvarpinu. Mér hafði gengið ákaflega illa i kringlunni. gert öll min köst ógild og það gerði mér lifið leitt, sagði óskar Jakobsson er mbl. spjallaði við hann í gær. — Ég hafði verið að kasta 64—64 metra á æfingum hér fyrir keppnina og gerði mér þvi vonir um að komast í aðal- keppnina i kringlunni. Ég hef ekki kastað kúlunni eins mikið og á þvi varla von á að mér takist að vera meðal átta fyrstu. Þetta eru geysilega öfl- ugir keppnismenn. og engin smásmíði, einn þeirra vegur 150 kg til dæmis. Ég hef mikla trú á þvi að Rússinn Kiseliov eigi eftir að koma á óvart, hann náði bestum árangri i undan- keppninni, kastaði 20,72 metra. Sjá viðtal við Óskar á bls. 27. ÞR. Hreppa Valsmenn Guðstein? ÓHÆTT er að segja að það gangi fjöllunum hærra, að Guðsteinn Ingimarsson gangi til liðs við Val á næstunni. Myndi körfu- knattleiksliði Vals þar með bætast stórkostlegur liðs- auki, þar sem Guðsteinn, sem leikið hefur með UMFN siðustu árin, er taiinn einn besti bakvörður íslensks körfuknattleiks. Guðsteinn hefur fest kaup á íbúð á höfuðborgarsvæð- inu og virðist ljóst þar með að hann leiki ekki með Njarðvík næsta vetur. Bend- ir sem fyrr segir margt til þess að Valsmenn hreppi hnossið. — gg. Mennea sekúndubroti á undan Alan Wells HLAUPARINN kunni Pi- etro Mennea frá ttaliu sigr- aði i 200 metra hlaupi á Moskvuleikunum, eítir stór- brotna keppni við skoska hlauparann Alan Wells. Það var á síðasta sentimctranum sem Mennea tókst að pota sér fram fyrir Skotann og tryggja sér sigur. Tími Mennea var 20,19 sekúndur. en timi Wells var 20,20 sekúndur. Don Quarrie frá Jamaica varð þriðji á 20,29 sekúndum. Næstu keppend- ur voru eftirtaldir: sek. 4. Silvio Leonard Kúbu20.30 5. Bernard Hoff A-Þýsk. 20.50 6. Leszek Dunecki Póll. 20,68 7. Marian Woronin Póll. 20,81 Enn sigrar Ballesteros SPÆNSKI golfsnillingurinn Sevroiano Ballsteros sigraði á opna hollenska golfmótinu sem fram fór um helgina. Lék kappinn á 280 höggum, sem var þremur höggum minna heldur en hjá helsta keppinautnum Sandy Lyle frá Bretlandi. Þriðji varð siðan Ástraliumaðurinn Stewart Linn á 285 höggum. Rúmenar sterkir ! GÆRDAG fóru fram sex leikir i handknattleiksk- eppni ól-leikanna og fara úrslit þeirra hér á eftir. Ungverjal.— Kúba 26—22 Rúmenia — Sviss 18—16 Spánn — Pólland 24—22 Alsír — Kuwait 30—17 Sovétr. — Júgósl. 22—17 A-Þýskal. — Danm. 24—20 Brady til Juventus ARSENAL leikmaðurinn Li- am Brady hefur afþakkað tilboð það sem M-Utd gcrði honum og lýst því yfir að hann ætli sér ekki að lcika með liði í Engiandi næsta keppnistimabil. Allt bendir nú til þess að Brady fari til Juventus á Ítalíu, en þcir hafa gert honum tiiboð, sem erfitt er að hafna, svo miklir peningar eru i spilinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.