Morgunblaðið - 29.07.1980, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 29.07.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1980 3 bau heita f.v. Reynir, Svava, bórhallur, Álfur ok Ásrún. Við hittum þau á strætisvasínastoppistóð. þar sem þau voru á leið heim úr Vesturbæjarlauginni. Ásrún var talsvert bjartsýnni en þeir á veðurstofunni ok spáði hiklaust Kóðviðri fram á haust, — krakkarnir voru henni hjartanloxa sammála. Ljúsm. R.W. Nú eru tjóð ráð dýr því önKuliinn hefur festst í botni. Árni neytir allra bra>?ða til að „losa“ en SveinbjörK heldur á stönginni á meðan. — Annars var aflinn orðinn dásóður. — 6 sandkolar. tuska or poki utan af saltstöngum — en ekkert stígvél enn sem komið var. Ljúsm. Kristján. Sólskinið á förum — en vonandi bara í bili VEÐURGUÐIRNIR hafa verið ósínkir á sólskinið við landsmenn yfir helgina og hafa sólbaðsdýrkendur væntanlega átt náðuga daga. Morgunblaðið hafði samband við Markús Einarsson veður- fræðing og var hann spurður hvort búast mætti við áframhaldandi sólskini. „Nei, það verður að teljast heldur ólíklegt", sagði Markús, „það er þegar byrjað að þykkna upp á Austurlandi og byrjað að rigna við austurströndina. Við reiknum með að þetta regnsvæði þokist vesturyfir landið og á morgun verði úrkoma um allt Austurland. bað mun svo þykkna upp vestanlands og varla verða mikið um sólskin". bá var Markús spurður hvort þeir á Veðurstofunni hefðu einhverja sérstaka skýringu á góðviðrinu sem verið hefur í sumar eða hvort eitthvað væri hægt að spá um síðsumarið útfrá veðráttunni undanfarið. „Við höfum ekki neina sérstaka skýringu — svona staðviðri koma bara öðru hvoru. bað er afstaðan innan lægðakerfisins sem ræður þessu, — þegar viðrar svona hjá okkur verða aðrir að gjalda þess, t.d. hefur veðrið verið með eindæmum slæmt í Evrópu. Önnur sumur getur þetta svo snúizt við. — Um síðsumarið er ekkert hægt að spá út frá veðráttunni undanfarið — við verðum bara að vona að góðviðrið haldist", sagði Markús að lokum. Morgunblaðsmenn fóru á flakk í góða veðrinu í gær og spjölluðu við suma af þeim fjölmörgu, sem nutu útiverunnar og sólskinsins. „bað er fremur lítið um að vera hérna núna — þorskveiðibannið lamar allt“, sagði Garðar Jónsson fiskmatsmaður er blaðamaður | Morgunblaðsins innti hann eftir hvaö væri að gerast við höfnina. t „flestir stóru bátarnir Iiggja siðan hætt var á netum og biöa eftir loðnu og haustsild. bað hefur verið reitingur hjá smábátunum, — helzt ýsa. Grásleppuvertiðinni lauk þann 17. og hún var fremur léleg.“ Ljúsm. Kristján. F.v. Eyjólfur (upp við húsið), Guðbrandur, Eggert, Kristján og Jón. beir vinna hjá Togaraafgreiðsl- unni og voru langt komnir með að landa úr Ingólfi Arnarsyni þegar Morgunblaðsmenn bar að. beir notuðu kaffitimann til að sleikja sólskinið þvi all kuldalegt er i lestinni og þaðan sér ekki til sólar. Ljósm. Kristján. „Nei, nei, — ekki taka af okkur fleiri myndir“, sögðu þær Karen og Dóra meðan ljósm. Morgunbl. skaut á þær trekk i trekk. Við hittum þessar fegurðardisir i Vesturbæjarlauginni og gátum ekki stillt okkur um að taka þær tali. bær sögðust stundum koma þarna i sund og yfirleitt nota hverja stund til sólbaða. Ekki vildu þær spá neitt i veðráttuna en vonuðu að góðviðrið héldist. Ljúsm. rax. p ■ m '

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.