Morgunblaðið - 29.07.1980, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 29.07.1980, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ1980 23 • Sigþór Skagamaður ómarsson umkringdur Víkingum. Ljósm. Emilía. Víkingar tóku ÍA í gegn Staðaní 1. deild. STAÐAN i 1. deild eftir elleftu umferð er þessi: ÍBV - Fram 0 -1 Þróttur — UBK 0 -1 Valur - KR 5 -0 ÍBK - FH - ÍA 2 -2 Vikingur - 3 -0 Valur 11 7 1 3 27:10 15 Fram 11 6 2 3 12:13 14 ÍA 11 5 3 3 17:13 13 Vikingur 11 4 5 2 14:10 13 UBK 11 6 0 5 19:14 12 ÍBV 11 4 2 5 17:19 10 KR 11 4 2 5 10:16 10 ÍBK 11 2 5 4 11:16 9 Þróttur 11 2 3 6 7:11 7 FH 11 2 3 6 16:29 7 Liö UBK varð íslands- meistari SÍKurganga ÍA i 1. deild ís- landsmótsins í knattspyrnu var formlega stöðvuð af frisku liði Vikings á Laugardalsvellinum í gærkvöldi. Lokatölur leiksins urðu 3—0 fyrir Viking. eftir að staðan i hálfleik hafði verið 2—0. Sigur Vikings var mjög sann- gjarn og alls ekki of stór miðað við gang leiksins. Framan af þótti mönnum reyndar munurinn vera of mikill. en Vikingur fékk slikan mýgrút tækifæra undir lokin. að úrslitin verða að teljast sanngjörn. Víkingar slógu Skagamenn út af laginu einmitt er þeir síðarnefndu léku hvað best. Fyrstu mínúturnar sóttu Skagamenn látlaust, en Vík- ingar skelltu á þá tveimur falleg- um sóknarlotum sem enduðu báð- ar með mörkum. Það fyrra kom á 4. mínútu, er Víkingur fékk auka- spyrnu skammt utan vítateigs vinstra megin. Helgi Helgason sendi vel fyrir markið og Hinrik Þórhallsson skallaði knöttinn lag- lega yfir úthlaupandi markvörð- inn. Aðeins sex mínútum síðar skoraði Víkingur enn. Hinrik lék þá laglega niður hægri kantinn, sendi fyrir rakleiðis til Helga Helgasonar sem var í dauðafæri. Helgi hitti knöttinn illa, en það kom ekki að sök, því varnarmenn og markvörður ÍA voru komnir úr jafnvægi og náðu ekki að koma í veg fyrir ósköpin. Allt til leikhlés var umtalsvert jafnræði með lið- Víkingur - ÍA unum, oft góð knattspyrna, en því miður ekki mikið um dauðafæri. Úr því rættist þó að nokkru í síðari hálfleik og hann var ekki nema mínútu gamall, er Víkingar skoruðu sitt þriðja mark og gerðu nánast út um leikinn. Og markið var glæsilegt. Hinrik sendi Lárus af stað niður hægri kantinn með góðri sendingu og hljóp sjálfur að vítateigslínunni. Lárus sendi fyrir markið og af Skagamanni hrökk knötturinn til Hinriks. Hann var ekkert að lúra á knettinum, heldur þrumaði honum viðstöðulaust i netið. Failegt mark, en maður hefði viljað sjá betri tilraun til varnar hjá Bjarna í markinu. Sigþór Ómarsson fékk eitthvert opnasta marktækifæri sem sést hefur i sumar á 63. mínútu. Kristján Olgeirsson sýndi þá snilldartilþrif er hann lék á tvo Víkinga og Sigþór þurfti varla annað en að pota í knöttinn. En dæmið gekk ekki upp. Siggi Donna brenndi illa af nokkru síðar og eru tækifæri Skagamanna þar með í raun upptalin þrátt fyrir þokka- legan leik úti á vellinum á köflum. Skagamenn reyndu þrátt fyrir allt að herða sóknina og kom það voðalega niður á vörninni, t.d. „Veðrið tók af mér „ÞAÐ VAR leitt að Kratchmer skyldi ekki vera hérna og keppa við mig. Þó held ég að ég hefði unnið engu að síður,“ sagði Daley Thompson, tugþrautarmaður frá Bretlandi, eftir að hafa sigrað Daley Thompson. metið“ örugglega i tugþrautarkeppn- inni i Moskvku. Thompson hafði forystuna frá upphafi til enda, en hann var engu að siður nokkuð frá þvi að slá heimsmet Kratchm- ers, sem sat uppi i blaðamanna- stúkunni og horfði á. Heimsmet Vestur-Þjóðverjans Kratchmers er 8649 stig, en Thompson hlaut 8495 stig. „Þetta leiðindaveður hefur eyði- lagt fyrir mér, ég ætlaði að reyna við nýtt heimsmet, en það verður að bíða betri tíma,“ bætti Thomp- son við. Árangur Thompsons í einstökum greinum var sem hér segir: 100 metrar: 10,62 sekúndur. Langstökk: 8,00 metrar. Kúluvarp: 15,10 metrar. Hástökk: 2,08 metr- ar. 400 metra hlaup: 48,01 sekúnd- ur. 100 metra grind: 14,47 sekúnd- ur. Kringlukast: 42,24 metrar. Stangarstökk: 4,70 metrar. Spjótkast: 64,17 metrar. 1500 metra hlaup: 4:39,9 mínútur. I öðru sæti varð sovéski kappinn Yuri Kutsanko með 8331 stig. Þriðji varð Sergei Zhalanov, einn- ig Rússi, með 8135 stig. komst Lárus Guðmundsson tví- vegis á auðan sjó, en missti knöttinn of langt frá sér í báðum tilvikum. Lárus, Hinrik, Helgi og Heimir voru bestir Víkinga, en allir stóðu fyrir sínu. Hjá Skagan- um bar hins vegar Kristján 01- geirsson af og þeir Sigurður Halldórsson og Kristinn Björns- son áttu góða spretti. ÍA lék án Árna Sveinssonar og mátti það glöggt sjá á leik liðsins. í stuttu máli: íslandsmótið í knattspyrnu, 1. deild: Víkingur—ÍA 3—0 (2—0) Mörk Víkings: Hinrik Þórhallsson (4. og 46.) og Helgi Helgason (10.) Gui spjöld: Engin gg. Meistaraílokkur Breiða- bliks í kvennaflokki sigr- aði lið FII í gærkvöldi 4 — 1, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 1—0 fyrir FII. Með sigri þess- um tryggði lið UBK sér íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu í ár. Þrjú lið tóku þátt í keppninni og leikin var tvöföld umferð. - ÞR Knattspyrna I Jafnt í botnbaráttunni 2—2 ÍBK OG FH gerðu jafntefli i frekar slökum baráttuleik i Keflavik í gærkvöldi. Lyktaði leiknum með 2—2, jafntefli, eftir að staðan I hálfleik var jöfn. 1 — 1. Leikur liðanna einkenndist af langspyrnum og ónákvæmum sendingum manna á milli. Þá sköpuðust oft mjög tilviljunar- kennd marktækifæri sem ekki nýttust. Það var FH sem var fyrri til að skora. Helgi Ragnarsson náði góðu skoti rétt utan vítateigs- hornsins og skoraði laglega. Leik- urinn var lengst af mjög jafn 'og skiptust liðin á að sækja. í lok fyrri hálfleiksins jafnar IBK á 40. mínútu, brýst Steinar Jóhannsson upp kantinn, sendir fastan bolta fyrir markið og hrfflck boltinn af Hilmari Hjálmarssyni í FH-ing og þaðan í netið. Ekki voru liðnar nema fjórar minútur af síðari hálfleiknum þegar ÍBK nær forystu. Valþór gerir sig sekan um ljót varnar- mistök og Steinar brýst í gegn og skorar örugglega framhjá Friðrik markverði FH. Ekki leið löng stund þar til FH nær að jafna metin. Eftir hornspyrnu berst boltinn til Viðars Halldórssonar sem gefur vel fyrir markið á Val Vaisson sem skallar fast og örugg- lega í netið. Það sem eftir var af leiknum, var hart barist og skipt- ust liðin á að sækja. Ekki tókst þó leikmönnum að skora fleiri mörk. Jafntefli voru sanngjörn úrslit í leiknum. í STUTTU MÁLI: íslandsmótið 1. deild. Keflavíkurvöllur 21. júlí ÍBK—FH 2—2 (1—1). . MÖRK ÍBK: Hilmar Hjálmarsson á 40. mínútu og Steinar Jóhanns- son á 49. mínútu. MÖRK FH: Helgi Ragnarsson á 6. mínútu og Valur Valsson á 56. mínútu. GULT SPJALD: Pálmi Jónsson. ÁHORFENDUR: 662. HG/þr. Ólympíumet í 100 m gr VERA Komisova frá Sovétríkjun- um vann gullverðlaunin i 100 metra grindahlaupi kvenna á Moskvuleikunum í gærdag. Timi hennar var 12,56 sekúndur og er það nýtt ólympiumet, eitt metið enn. Eldra metið átti Annalie Erhardt frá Austur-Þýskalandi. Var það 12,59 sekúndur og sett 1972. Johanna Klier frá Austur- Þýskalandi varð önnur á 12,63 sekúndum og Lucyna Langer frá Póllandi varð þriðja á 12,65 sekúndum. Næstu keppendur náðu eftirtöldum árangri: sck. 4. Kerstin Klaus A-Þýskal. 12,66 5. Grazyna Rabzyn Póll. 12,74 6. Irina Litovchenko Rússl. 12,84 Ekki heimsmet ENN EINN Rússinn tryggði landi sinu og þjóð gullverðlaun á Moskvuleikunum i gærdag. Það var Viktor Rasshchupkin, sem þá sigraði i kringlukasti karla, kastaði lengst 66,64 metra. Keppnin var hörð, Imrich Bug- ar, sem varð annar, kastaði 66,38 metra og þriðji maður, sem var Luis Delis frá Kúbu, kastaði 66,32 metra. Röð annarra helstu keppenda var síðan þessi: metrar 4. Wolfgang Schmidt. A-Þýsk. 65,64 5. Yuri Dumchev, Rússl. 65.58 6. Igor Douguinets. Rússl. 64,04. Tveir verölauna- menn Svía í 100 metra skriðsundi SVlAR áttu tvo verðlauna- menn í 100 metra skriðsundi á Ol-leikunum. Per Holmert varð annar. synti á 50,91 og Johannsson varð þriðji á 51,29. Báðir hafa stundað æfingar í Bandaríkjunum um langt skeið. Fleiri heimsmet ENN eitt metið leit dagsins ljós á Moskvuleikunum, er keppt var i 200 metra bak- sundi. Austur-þýska stúlk- an. Rica Reinisch. var þar á ferðinni og synti á 2:11,77 minútum. Heimsmet. Banda- risk sundkona, Linda Jenz- ek, átti eldra metið og hljóð- aði það upp á 2:11,93. Austur-Þýskaland tók öll verðlaunin i sundinu að þessu sinni. þvi Cornelia Polit hafnaði i öðru sæti og Birgitte Treiber i þriðja sæti. Timi Polit var 2:13,75, en tími Treiber var 2:14.14. Röð og timi annarra helstu keppenda var þessi: mín 4. Carmen Bunaciu Rúm. 2:15.20 5. Yolande Stratum Belg. 2:15,58 6. Carrine Verbauen Belg. 2:16,66 Fyrirliöinn missir af fyrstu leikjunum KRISTINN Jörundsson, landsliðsfyrirliðinn i körfu- knattleik og leikmaður með bikarmeisturum Fram i knattspyrnu mun missa af fyrstu landsleikjum vetrar- ins i körfuknattleik. Þannig er nefnilega mál með vexti, að Kristinn er á förum vestur um haf á hanka- mannanámskeið i haust, og verður hann þar i heila tvo mánuði. Mun hann á þeim tima missa af öllum undir- búningi körfuknattleiks- landsliðsins og þeim lands- leikjum, sem þá verða á dagskrá. Kristinn gekk hins vegar svo frá hnútunum, að hann fer ekki fyrr en daginn eftir úrslitaleikinn í bikar- keppni KSÍ, ef Fram skyldi... Fjörugt Aust- fjarðarmót í handknattleik AUSTFJARÐAMÓT í hand knattleik fór fram um helg- ina á Fáskrúðsfirði. Úrslit urðu sem hér segir. í 3. flokki kvenna sigraði Þróttur N, Höttur í öðru sæti og Huginn i þriðja. Huginn sigraði i 2. fl. kvenna. Í mfl. sigraði Þrótt- ur N, Leiknir í öðru sæti og Huginn i þriðja. Hörð keppni v&r i mfl. karla. þar sigraði Leiknir. Þróttur N varð i öðru sæti og Austri i þriðja. Mótið fór i alla staði vel fram. Hreggviöur formaöur AUKAþlNG Skiðasambands íslands fór fram um helgina. Hreggviður Jónsson var kjörinn formaður samhands- ins. Aðrir í stjórn eru: Gunn- ar Pétursson, Haukur Vikt- orsson. Ilermann Sigtryggs- son. Ingvar Einarsson. Jón- as Blöndal. Skarphéðinn Guðmundsson, Stefán Bene- diktsson. og Trausti Rik- harðsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.