Morgunblaðið - 29.07.1980, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.07.1980, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ1980 A ferð um Skaqafiöró / Á Sauðárkróki hefur uppbygging orðið mjög mikil á siðustu árum og vekur það strax athygli aðkomumanna hversu blómleg byggð hefur þróast þar. Frá bæjarstjórnarkosning- unum 1978 hafa sjálfstæðismenn myndað meirihluta bæjarstjórnar, með þrjá menn, ásamt einum manni frá Samtökum frjáls- lyndra og vinstri manna og öðrum frá Álþýðuflokknum. Blaðamaður Morgun- blaðsins ræddi við Þorbjörn Árnason forseta bæjarstórnar og oddvita sjálfstæðismanna um bæjarmálefni á Sauðárkróki. Skólamálin hafa forgang Hvaða málaflokkur hefur ver- ið forgangsverkefni að undan- förnu? Við takmarkað fjármagn kemur alltaf til vals á milli margra kosta og við höfum hér í bæjarstjórninni, kosið að láta skólamálin hafa forgang, en það hefur orðið mikil uppbygging á því sviði. Fyrst ber þar að nefna Fjölbrautarskólann, sem tók til Bindum miklar vonir við smáiðnað Hvað er næsta forgangsverk- efni hjá ykkur? Eins og komið hefur fram hafa skólamálin verið númer eitt, en hugmyndin er sú, að næsta forgangsverkefni verði varanleg gatnagerð í bænum, og við vonumst til að geta hafist handa næsta sumar, ef okkur tekst að afla nægjanlegs fjár- magns. Þorbjörn Árnason forseti bæjarstjórnar: Sauðárkrók- ur er orðinn forystubyggð á Norðurlandi- Vestra starfa á sl. vetri, en hugmyndin er, að hann komi til með að þjóna öllu Norðurlandi-vestra. Verið er að byggja verknámshús við Fjölbrautaskólann, lokið er við byggingu nýrrar álmu við skólann og stækkun heimavist- arinnar og nýtt bóknámshús bíða þess að fjármagni verði veitt til þeirra bygginga. Fyrir utan uppbyggingu Fjöl- brautaskolans, er bygging íþróttahúss á dagskrá og við væntum þess að í framtíðinni verði hægt að líta á Sauðárkrók sem miðstöð skólahalds á Norð- urlandi-vestra. Aðrar bygg- ingaframkvæmdir eru einnig á döfinni á vegum bæjarins og má þar nefna nýtt félagsheimili, sem mun rísa hér rétt í bæjar- jaðrinum. Annað brýnt verkefni verður framkvæmt á þessu ári, en það er bygging nýs leikskóla, sem staðsettur verður í Hlíða- byggð, en þar hefur risið nýtt hverfi sem samkvæmt skipulagi átti að anna eftirspurn fram til 1985, en er nú fullbyggt. Þetta er gott dæmi um þá miklu uppbyggingu sem hér hefur átt sér stað, þar sem bæði fólksfjölgun hefur orðið örari en ráð var fyrir gert samfara mikilli aukningu atvinnutæki- færa, sem útgerðin á stærstan þátt í. Hvað með önnur atvinnu- tækifæri en tengdum sjávarút- vegi? Eins og komið hefur fram í fréttum, þá stöndum við í ströngu við að fá steinullarverk- smiðju hingað, en á þessari stundu er það alls óráðið hvort af því verður. Þetta hefur verið hitamál nokkuð lengi, við teljum okkur eiga rétt á, að fá þessa verksmiðju, bæði vegna þess að við teljum okkur hafa átt frum- kvæðið að þessari hugmynd og auk þess lagt mikla vinnu og fjármuni í rannsóknir á þessum möguleika. Mér fyndist það óneitanlega hart, ef við yrðum rændir þessari hugmynd og ég er þeirrar skoðunar að ef byggðastefna á að vera eitthvað annað en pappírsgagn, þá sé engin spurning um réttmæti þessa að við fáum verksmiðjuna. Það er einnig alveg ljóst, að sunnlendingar hafa miklu fleiri og fjölbreyttari möguleika á sviði jarðefnaiðnaðar, en við höfum, sem einnig hlýtur að vega þungt. Eg vil þó taka það fram, að þrátt fyrir að við yrðum af steinullarverksmiðju myndum við ekki leggjast með tærnar uppí loftið, hér eru ýmsir aðrir möguleikar á sviði milliiðnaðar og smáiðnaðar, en við höfum nú þegar nokkur fyrirtæki sem stunda smáiðnað. Texti og myndir: Friörik Friöriksson % s si i ' ' J: ...1' gjjh f i • 1 " Ár .i 1 * m* *r* 11 jJLi1 ggg * Þorbjörn Árnason Ég get t.d. nefnt einn mögu- leika, en hann er sá að menn setji hér upp gróðurhús og nýti sér heita vatnið, en borholan er í landi bæjarins og þannig eru margir möguleikar fyrir hendi. Þegar rætt er um atvinnu- uppbyggingu, má ekki gleyma því mikilvæga hlutverki sem samgöngur gegna, í að byggja upp atvinnulíf, en á því sviði eru við lánsamir. Samgöngur á landi eru mjög góðar en auk þess er hér einn besti flugvöllur lands- ins og hugmyndin er, að malbika hann næsta sumar. Þessi flug- völlur verður þá næst stærsti flugvöllur landsins og gefur möguleika á millilandaflugi t.d. með afurðir beint á markað. Þá er hér ört vaxandi flugfélag á staðnum, sem gæti gegnt miklu þjónustuhlutverki. Séö yfir gamla bæinn á Sauöárkróki. Ýmsir vaxtaverkir fylgja miklum uppvexti Hvaða mál eruð þið sjálfstæð- ismenn ánægðastir með í bæjar- stjórninni? Ég get fullyrt, að við erum ánægðastir með skólamálin, uppbygging Fjölbrautaskólans hefur tekist vel og við höfum náð því markmiði okkar, að veita fólki sambærilega mennt- un og annars staðar, í heima- byggðarlagi. Við teljum okkur einnig eiga stóran þátt í því að bygging íþróttahúss og félagsheimilis stendur nú fyrir dyrum. Þá má geta þess, að félagsmálastjóri hefur verið ráðinn til bæjarins, en hans meginverkefni eru á sviði æskulýðs- og öldrunar- mála. Hvaða fleiri verkefni eru á döfinni hjá bænum? Ég get nefnt byggingu heitra potta við sundlaugina, bygging nýs golfvallar stendur einnig fyrir dyrum og verið er að undirbua næsta byggingasvæði bæjarins, sem áætlað er að verði fyrir sunnan sjúkrahúsið. Hverjir eru að þínu mati fram- tíðarmöguleikar Sauðárkróks? Ég er fæddur hér og uppalinn og hef því fylgst með þessari þróun. Hingað hafa straumarnir legið, á sviði heilbrigðis-, mennta- og atvinnumála, þann- ig að Sauðárkrókur er orðin forystubyggð á Norðurlandi- vestra. Sú staða verður þó aldrei varanleg, ef við höldum ekki góðri samvinnu við sveitarfélög- in í kringum okkur. Þegar þessi atriði eru öll höfð í huga, getur maður ekki verið annað en bjartsýnn á framtíð staðarins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.