Morgunblaðið - 08.03.1980, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.03.1980, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MARZ 1980 Á Norður-Atlantsh- afsleiðinni fluttu Flug- leiðir liðlega 260 þúsund farþega á árinu 1979 og árið 1978 var farþega- fjöldinn um 275 þúsund. Við brugðum okkur í áætlunarflug Flugleiða frá íslandi til Chicagó, ræddum við farþega á leiðinni, stönzuðum í eina klukkustund í Chicagó og flugum síðan með sömu vél aftur heim til íslands. Það var lagt upp kl. 5 síðdegis og lent í Keflavík aftur kl. 7 að morgni. Við tókum 19 faf- þega tali á báðum leið- um, spurðum þá hvaðan þeir væru að koma, hvert að fara og af hverju þeir flygju með Flugleiðum eða Iceland- air eins og félagið er kynnt erlendis. Af 19 farþegum á báðum leið- um höfðu 12 flogið áður með Flugleiðum og þeir litu á Icelandair sem sitt flugfélag og höfðu flestir notið þjónustu þess um langt árabil. Margir hafa talið að farþegar Flugleiða væru hippar eða fólk sem gripi tækifærið vegna hagstæðra fargjalda en viðtölin við farþeg- ana komu heim og saman við það sem sölumenn Flugleiða segja sjálfir, að fólk úr öllum stéttum fljúgi reglulega með fé- laginu þótt sérstaklega sé um að ræða milli- stéttarfólk, menn í viðskiptum og náms- menn. Flest allir nefndu hagstæð fargjöld sem ástæðu fyrir því að þeir flygju með Flugleiðum, en þeir rómuðu einnig þjónustuna um borð og fannst félagið traust flugfélag. Allir, sem voru að fljúga með félaginu í fyrsta skipti í þessari ferð og rætt var við, kváðust ætla að fljúga aftur með Flugleiðum. Þá kom það einnig fram hjá flestum við- mælendum okkar, að þeim fannst ekki nægi- leg áherzla lögð á ísland í kynningu möguleika á flugleiðinni og sumir höfðu aldrei heyrt um hagstæð kjör á svokölluðum stop-over ferðum á íslandi. Þá virt- ist verzlunin á Kefla- víkurflugvelli vera þekkt víða og menn jafnvel tóku þessa flug- leið til þess að geta komið þar við. Sumir, sem höfðu flogið oft með Flugleiðum, höfðu lent í seinkunum en höfðu jákvæðan skilning á þeim tilvikum gagn- vart flugfélaginu. Sú gagnrýni, sem fram kom, var smávægileg, en þess má geta að öll tímaáætlun stóðst ná- kvæmlega á báðum leið- um. Flunfrcyjurnar Svala ok Stvinunn voru frammí Fyrri grein og Árni Johnsen Maíjos Mania „Með því að fljúga með Flugleið- um gat ég farið stystu leið milli tveggja punkta og að auki var veðrið mjög sanngjarnt og reynd- ar það hagstæðasta sem ég átti völ á,“ sagði Elson Nowell lögmaður, sem býr í Þýskalandi en er frá Bandaríkjunum og var á leið þangað til þess að heimsækja ættingja sína í Saint Louis. Eg flaug fyrst með Flugleiðum í ágúst sl. og líkaði það vel. Það skiptir ákaflega miklu máli finnst mér að hafa þennan möguleika á opnum miða eins og flugfélagið býður upp á. Ég get hringt og látið bóka mig þegar það hentar og það er því í alla staði gott að nota þessa þjónustu. Þá finnst mér þjónustan um borð í flugvélunum vera mjög góð. Mér líkaði vel að stoppa í Keflavík og kaupa þar í hinu fjölbreytta vöruúrvali. Ég keypti bæði bindi, vettlinga og fleira úr íslenzkri ull og ég er viss um að það væri sterkt fyrir Flugleiðir að auglýsa ísland meira á þessari flugleið. Ég vissi ekki áður en við lögðum af stað að við áttum að millilenda á íslandi. Það ætti að leggja meiri áherzlu á það. Fólki á mínum aldri líkar að stoppa og kanna málið, jafnvel þótt um stutt stopp sé að ræða eins og í Keflavík. Ég kynntist Flugleiðum í gegn- um blaðaauglýsingu sem ég sá þegar ég vann á lögfræðiskrifstofu í St. Louis. Þetta var auglýsing um fargjöld fyrir almenning og stúd- enta. Margir vinir mínir í Þýzka- landi hafa spurt mig með hverjum ég fljúgi yfir hafið, ég hef sagt þeim það og Icelandair hafa vakið forvitni þeirra vegna þeirra mögu- leika sem boðið er upp á. Margir vita ekki af Icelandair og ég held að það væri ráð að auglýsa meira leiðina Þýskaland, Luxemburg, ísland, Bandaríkin. Þegar ég flaug til Evrópu í ágúst sl. var seinkun á fluginu, en félagið bauð okkur í morgunmat og fría drykki og það var mjög vel gert. „Það eina sem mér hefur ekki Hkað er sala flugfreyjanna um borð á ilmvötnum." „Hef sannreynt að Icelandair er eitt af þeim beztu“ Sherry Page heitir sveitastúlka frá Visconsin. Hún var á heimleið með Flugleiðum frá Evrópu úr leyfi, en hlakkaði mikið til þess að taka aftur til við mjaltir á 120 kúm. „Ég flýg með Icelandair vegna þess að þetta er ódýrasti mögu- leikinn. Ég verð að hugsa um það. Þetta er hagstæðara en hjá öllum öðrum flugfélögum sem ég kann- aði. Ég hafði einnig heyrt mikið um Icelandair hjá vinum mínum í Visconsin. Nú er ég reynslunni ríkari og líkar þetta flug vel, þjónustari og starfsfólkið er mjög vingjarnlegt og þægilegt. Ég get ekki sagt alveg það sama um síðasta flug, þá var 6 tíma seinkun og aðeins ein flugfreyjan um borð brosti svo ég sá, en þessar eru stórkostlegar." „Býrðu stórbúi?" „Ég vinn fyrir föður minn, við höfum þrjá bóndabæi á 800 ekra jörð. Auk kúnna höfum við um 200 svín og allmikið af nautgripum. Mér líkar starfið mjög vel,“ sagði hún og brosti. „í nóvember," hélt hún áfram," ætla ég aftur til Evrópu með Icelandair og þá langar mig að stoppa á íslandi og dveljast eitt- hvað. Ég vildi bara að þeir flygju til Stuttgart, þá væri þetta full- komnað. Annars getur maður verið ánægður, því það er frábært að hafa þá möguleika sem farmiðinn býður upp á og ég hef sannreynt að það er rétt sem þeir sögðu á ferðaskrifstofunni sem er nálægt heimili mínu, að Icelandair væri eitt af þeim beztu. Mér fannst mjög skemmtilegt að millilenda í Keflavík og þar keypti ég mér íslenzka peysu. Ég átti eina fyrir sem var keypt í Englandi, en ég hlakka til að fara í nýju peysuna. Þegar maður gengur í íslenzkri peysu er maður talinn ríkur, en það bezta er þó hvað manni er hlýtt í henni á skíðum og þegar kalt er úti.“ „Þjónustan um borð oftast mjög góð“ Mary Ann Johnson heitir Norð- urríkjakona ein sem kemur árlega til íslands á leið til Evrópu og flýgur ávallt með Icelandair. „Ég kem árlega til íslands vegna þess að ég verzla með handunnar vörur og ullarfatnað frá íslandi og sel þangað silfur og fleira," sagði Mary Ann. „Ég á einnig viðskipti við Þýzkaland, Portúgal, Austurríki, Svíþjóð og Danmörku og á ferðum til þessara landa stoppa ég alltaf á Islandi. Aðalviðskipti mín eru við SÍS og einnig ýmis önnur fyrirtæki svo sem Ingu og Rammaprjón. Chicagó—Lux með millilend- ingu í Keflavík er mín flugleið og ég vona að þeir haldi áfram fluginu um ísland. Ég veit að mörgum finnst akkur í því. Þjónustan um borð í dag er oftast mjög góð en þegar ég fór síðast frá Chicagó var þetta ekki alveg eins gott. Það var þriggja tíma seinkun þaðan og ég fékk enga tilkynningu um það heim til mín. Við vorum komin um borð kl. 10 um kvöldið og fórum þá til New York til þess að ná í fleiri farþega. Á leiðinni þangað fengum við snarl. Þar fórum við inn í flug- stöðina og þegar við vorum komin út aftur urðum við að fara aftur inn og bíða þar í eina klukkustund. Jesús, hvílík vandræði. Klukkan þrjú um nóttina fór vélin í loftið til íslands og klukkan 4 um nóttina fengum við kvöldverð. Það voru allir orðnir mjög þreyttir þegar við komum til Keflavíkur, en þeir sem ætluðu áfram til Luxemborgar, og það voru flestir, urðu enn einu sinni að bíða og þá í þrjá klukkutíma vegna þess að þeir áttu að fara í aðra vél sem var ekki tilbúin. Ég lenti einnig í því í þessum túr að stór draslpoki sem hafði verið settur inn á salerni, var ekki tekinn úr í New York. Ég kvartaði undan þessu, en flug- freyjan sagði að það væri ekki til fólk til þess að vinna verkið. Ég spurði hana þá hvers vegna hún gerði það ekki, en hún kvað það ekki vera í sínum verkahring. Þetta eru vondu dæmin, yfirleitt er þjónustan mjög góð og auðvitað geta komið upp seinkanir, en það þarf þá að leggja áherzlu á að gera gott úr þeim. Eg held líka að þetta sé erfitt tímabil sem félagið er að ganga í gegnum þar sem búið er að J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.