Morgunblaðið - 08.03.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.03.1980, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK 57. tbl. 67. árg. LAUGARDAGUR 8. MARZ 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Sprengjuárás á Rússa í Berlín Berlín, 7. marz. AP. SPRENGJA sprakk í aðal- ræðismannsskristofu Sov- étríkjanna í Vestur-Berlín í dag og olli miklu eignatjóni, en engin slys urðu á mönnum. Afgönsk and- spyrnusamtök sögðust eiga sök á sprengingunni. Sprengjunni var greini- SÞ-kona dæmd í Póllandi Vstrwió 7 mar7 AP PÓLSKUR herdómstóll dæmdi í dag 35 ára gamla stariskonu SÞ, Alicja Wesolowska, i sjö ára iangelsi og sekt að upphæð 10.000 zloty (um 140.000 kr.) íyrir njósnir i þágu NATO- ríkis. Konan var handtekin í fyrra- sumar þegar hún var á leið til starfa í Mongolíu og átti á hættu að fá dauðadóm. Ungfrú Wesolowska játaði sig seka af ákæru um njósnir í réttarhöld- unum sem fóru fram fyrir luktum dyrum og hófust á miðvikudag. Vestrænir fréttamenn fengu ekki að fylgjast með réttarhöld- unum. Starfsmenn SÞ í New York skoruðu í vikunni á Kurt Waldheim framkvæmdastjóra að leggja fast að Pólverjum að sleppa konunni. Fyrri óskum Waldheims um að starfsmenn SÞ fái að hitta konuna hefur verið synjað. Samkvæmt vestrænum heim- ildum getur verið að konan hafi játað gegn því að henni yrði vísað úr landi. lega smyglað inn í húsið á skrifstofutíma og henni komið fyrir á gestasalerni á efri hæð. Nokkrir veggir hrundu við sprenginguna, hurðir rifnuðu upp og rúð- ur í gluggum á framhlið hússins brotnuðu. Glerbrot þeyttust yfir götuna. Rétt fyrir og eftir sprenginguna var hringt í vestur-þýzku frétta- stofuna DPA og í útvarpsstöð og sagt að Mujahedin-samtök afg- önsku þjóðarinnar hefðu staðið fyrir sprengingunni. Ræðismannsskrifstofan er í Da- hlem-hverfi í bandaríska borgar- hlutanum og bandarísk herlög- regla aðstoðar lögreglu Vestur- Berlínar við rannsóknina. Sovézkir embættismenn leyfðu Vestur-Berlínar-lögreglunni að fara inn í bygginguna til að leita að sprengjubrotum, en Rússarnir neituðu að láta hafa nokkuð eftir sér. í Moskvu kallaði Tass spreng- inguna „stigamannaverk ... sem opinber yfirvöld hefðu augljóslega séð í gegnum fingur við.“ Lögreglumenn fyrir framan sovézku aðalræðismannsskrifstofuna í Vestur-Berlín þar sem skemmdir urðu í sprengjutilræði sem afgönsk samtök kváðust bera ábyrgð á. Námsmennirnir neita nú að af henda gíslana Þjóðnýting í Saívador San Salvador, 7. marz. AP. STJÓRNIN í E1 Salvador sendi hermenn í alla einkabanka í höfuðborginni í dag og talsmaður stjórnarinnar sagði að allir einkabankar hefðu verið þjóð- nýttir. Teheran, 7. marz. AP. NÁMSMENNIRNIR í bandariska sendiráðinu í Teheran sögðu i dag að þeir mundu ekki afhenda gísla sina íranska byltingarráðinu fyrr en þeir hefðu fengið að kynna irönsku þjóðinni skoðanir sínar. Talsmaður þeirra hafði áður sagt að þeir vildu koma fram i útvarpi og sjónvarpi „til að útskýra sannleikann fyrir þjóðinni“. Námsmennirnir eru andvígir því áformi byltingarráðsins að leyfa rannsóknar- nefnd SÞ að heimsækja gislana. Þar með virðast námsmennirnir hafa lagt stein í götu Sadegh Ghotbzadeh utanrikisráðherra sem tilkynnti fyrr í dag að gislarnir yrðu fluttir úr sendiráðinu, sennilega á morgun, laugardag, á ótiltekinn stað. Stuðningsmenn námsmannanna gengu fram hjá sendiráðinu í dag og hrópuðu vígorð með hvatningu um að framselja ekki gíslana byltingarráðinu. Einnig sló í brýnu á kosningafundi milli stuðningsmanna og andstæðinga trúarleiðtogans Mahdavi Kani, eftirlitsmanns innanríkisráðu- neytisins, og tugir manna munu hafa slasazt. Síðustu atburðir gætu haft í för með sér nýtt uppgjör milli náms- mannanna og Abolhassan Bani- Sadr forseta. Námsmennirnir segja það ekki í samræmi við stefnu Khomeinis trúarleiðtoga að nefnd SÞ fái að heimsækja gíslana. Bani-Sadr segir Khomeini hafa leyft byltingarráðinu að ákveða hvort nefndin heimsækti gíslana. Teheran-útvarpið sagði í dag að islamskt þing mundi fljótlega ákveða örlög gíslanna. Það er í samræmi við tveggja vikna yfir- lýsingu Khomeinis um að þingið mundi ákveða hvort gíslunum yrði sleppt er það kæmi saman eftir kosningarnar í næsta mánuði. Útvarpið bætti því aðeins við að ástandið mundi skýrast á næstu tveimur eða þremur dögum. 31 bjargað þegar olíuskip brotnaði Brest, Frakklandi, 7. marz. AP. 28.000 LESTA olíuflutn- ingaskip „The Tanio“ Deila um ráðherrastólana milli Mugabes og Nkomos Salisbury, 7. marz. AP VÆNTANLEGUR forsætisráð- herra Rhódesíu, Robert Mugabe, tilkynnir myndun samsteypu- stjórnar sinnar og Joshua Nkomos á þriðjudag að því er tilkynnt var í Salisbury í dag. Brezki landstjórinn, Soames lávarður, skýrði frá því í dag að liklegt væri að landið fengi sjálfstæði í marzlok eða april- byrjun og hét víðtækum stuðn- ingi við viðreisn i landinu. Talsmaður Mugabes vísaði á bug fréttum um að Mugabe og Nkomo væru komnir í hár sam- an um skiptingu ráðherraemb- ætta og kvað slikt „hreinan orðróm“. Talsmaðurinn sagði að dráttur- inn stafaði af því að leiðtogar flokkanna væru að vega og meta hvaða ráðuneyti hvaða flokkur þyrfti og hvaða menn væru bezt hæfir til að stjórna þeim. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum hefur Nkomo hafnað boði um 5 af um 20 stjórnardeild- um og neitað að gegna embætti valdalítils forseta. í staðinn hef- ur Nkomo krafizt að flokkur hans fari með utanríkis- og varnarmál. „Auðvitað viljum við Nkomo í stjórnina en ekki hvað sem það kostar," sagði aðstoðarmaður Mugabes. Ian Smith, leiðtogi hvíta minnihlutans, hvatti hvíta menn í dag í fyrstu opinberu yfirlýsing- unni eftir kosningarnar að flýja ekki land vegna sigurs Mugabes. „Vandamál verða aldrei leyst með því að hlaupa frá þeim,“ sagði Smith og bætti við að Mugabe, yfirlýstur Marxisti, væri „hreinn og beinn og ábyrgur". Hann benti á að Mugabe hefði heitið að svipta hvíta menn ekki eignum sínum og atvinnu og sagði að ef hann og flokkur hans stæðu við þessi loforð „væri augljóslega von“. Hvíta minni- hlutanum hafa verið boðin tvö ráðherraembætti. Smith kveðst vilja setjast í helgan stein, en segir að hann muni taka sæti í ríkisstjórn ef um verði beðið. brotnaði í tvennt í fárviðri undan strönd Bretagne- skaga í dag, en 31 af áhöfninni var bjargað um borð í þyrlur franska flot- ans. Fjögur lík fundust en f jögurra er saknað. Menn sem unnu við björgunina sögðu að þeir hefðu séð rúmlega 3,5 km langa og um 20 metra breiða olíubrák nálægt skipsflak- inu. Embættismenn sögðu að lítil hætta væri á mengun þar sem brákin barst frá landi. Hins vegar er ekki vitað hve mikil olía var í geymum skipsins. Skipið sigldi undir fána Ma- dagaskar og var á leið frá höfn í Vestur-Þýzkalandi til Italíu með olíufarm þegar það lenti í mikl- um sjógangi norðan við frönsku eyna Batz. Vindhraðinn mældist 50 mílur á klukkustund. Þetta er sjötta olíuflutninga- skipið sem hefur hlekkzt á síðastliðin 13 ár á þessum slóð- um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.