Morgunblaðið - 06.01.1973, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 06.01.1973, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGU'R 6. JANÚAR 1973 19 Sambandsskyn og sambandsmagnan ÁNÆGJULEGT þótti mér hvort tveggja að sjá og heyra hinn kunna miðil, Hafstein Björnsson í sjónvarpinu þann 8. des. sl. og mátti af hvoru tveggja ráða, út- liti hans og þvi sem hann sagði, að hann sé heiðarlegur maður og fari ekki með vísvitandi ó- sannindi. Sýndi það rríeðal ann- ars heiðarleika hans, að hann skyldi segja það alveg eins og var, að hann kynni litt að gera grein fyrir sínum sérhæfileikum þó að hann hins vegar segði all- greinilega frá þeim mun, sem væri á þvi að sofna til fulls mið ilssvefni og hinu, sem tii þess þarf að skyggnilýsingar fari fram. En því er ég hér að minn- ast á þetta, að mér virtist að þessum fræga miðli muni vera ámóta ókunnugt um það og spyrjandanum, að einmitt varð- andi sérhæfileika Hafsteins og annarra slíkra hefir fyrir löngu verið gerð uppgötvun af islenzk- um vísindamanni, en sú uppgötv un eða niðurstaða var á þá leið, að ekki einungis miðilssvefninn, heldur einnig hinn vanalegi svefn sé sambandsástand. Það, sem hinn islenzki visindamaður komst að, var með öðrym orð- um á þá leið, að draumur sof- andi manns væri ævinlega að und irrót vökulíf annars, og að draum Athuga- semd sýnirnar væru því í aðalatrið- um hið sama og tilorðnar á sams konar hátt og ófreski eða skyggni sýnir miðils. Hinn ófreska mann jafnt sem hinn sofandi, taldi hann ekki sjá með eigin aug- um, og að það samband, sem þarna kæmi tii greina, taamark- aðist ekki við þessa einu jörð eða miantnkyn hennar, hetdur væri þar um að ræða heimssamband, samband við lifendur óteljandi annarra jarða í hinum þrotlausa geimi sólhverfa og vetrarbrauta. Og það, að ég horfði út frá þessu, var ástæðan til þess, að mér þótti svo fróðlegt og skemmtilegt það, sem Hafsteinn sagði af álfa- og ljúflinga skyggni sinni. Það ætti naum- ast að geta vérið neitt efamál, að mannkyn hinna ýmsu jarða muni vera með mörgu móti, og oð það megi því verða mikil uppspretta raunverulegra ævin- týrasagna að hafa skynjanasam- bönd við þau, Eitt af því, sem mér þykir sem ekki verði skýrt öðruvísi en út frá hinni íslenzku sambands- fræði, eru hinir furðulegu kraft- ar Reynis Leóssonar, og hafa ráðamenn sjónvarpsins átt þakk arverðan þátt í að kynna það og gefa mönnum kost á að sjá, að þar sé um raunveruleik að ræða. Hið eina skiljanlega virðist mér, pð þar muni vera um magnan að ræða fyrir samband, eins og reyndar ævinlega á sér stað, þeg ar sofið er. Með svefnsamband- inu veitist endurnæring lifmagns, þótt venjulega sé þar ekki um ofurmögnun að ræða. Og að hin furðulega magnan verði fyrir samband hjá Reyni, þótti mér líka koma svo skemmtilega fram í einu dæmi, sem ég hefi séð eða heyrt haft eftir honum. Var dæmið á þá leið, að hann bjargaði eitt sinn félaga sínum undan ofurþungum steini, serrí þessi félagi hans hefði klemmzt undir án þess þó að meiriháttar meiðsl hlytust af. Var það fyrst, að Reynir gat með engu móti hi eyft stein þennan, sem var vist nokkurra smálesta þungur. En þá bar allt í einu sýn fyrir Reyni, stúlku, sem honum þótti vera i lífsháska stödd, og hefir það að sjálfsögðu verið fjarskynj uð sambandssýn. En með komu þoirrar sýnar varð honum steinn- inn þegar viðráðanlegur. Þorsteinn Jónsson, á Úlfsstöðum. Húsbyggjendur Tökum að okkur allskonar uppsetningar og breytingarvinnu. Upplýsingar í símum 51780 og 50016. Hr. ritstjóri. Undirriitaðir leyfa sér að biðja yður að birta eftirfarandi at- hugasemd vegna fréttar í blaðd yðar 19.12. 1972 um sigiingu ofur ölvaðra manna á m.b. Gylli. Hafi verið um ofurölvun að ræða, var það vélstjóri sá, er eftir varð og leitaði aðstoðar lög reglu og landhelgis'gæzlu til að færa okkur í höfn. í>ér segið, að hann hafi farið í land að sækja vatn, en er ekki ótrúlegt, að nokkur sæki vatn án íláts, enda er vatnstankur í vélarrúmi með vatni i. Að varðskip hafi rekið okkur inn í Reykjavíkurhöfn er algjör- lega ósönn staðhæfing. Við sner- um við til Reykjavikur vegna veðurs og vorum komnir lang- leiðis að Engey, er mjög sterk- um kastljósum var beint að ofck- uir og báturinn upplýstur. Ef umrætt varðskip hefði vilj að hafa samband við oikkur, er það siður að nota morslampa, hitt telst til að trufla skip á siglingu. Þar sem við erum báð- ir eigendur umravdds báts, annar skipstjóri, og báðir með vélstjóra róttindi töldum við okkur hafa fullkomina heimild að siigla bátn- um, hvert sem okkur hentaði, þó skráður vélstjóri færi í land án leyfis og teljum okkur ekki hafa brotið neinar siglingaregl- ur. Þöfclk fyrir birtingu. Reýkjavílk, 19.12. 1972. Kristján Jakobsson, skip- stjóri (sig-n.) Jón Finns Jónsson, (sign.) Stykkishólmi. Jarðir til sölu Til sölu eru tvær samliggjandi jarðir, Lækur og Bíldu- hóll á Skógarströnd. Jarðirnar eiga land að Svína- fossá frá upptökum til sjávar, sem er talin falleg á til lax- og silungsræktar. Sömuleiðis eiga þær land að Leitisá og Þverá. Lítið íbúðarhús og gamall bær eru á jörðunum sem báðar eru í eyði. Tilboðum sé skilað fyrir 1. febrúar 1973 til Guð- mundar Daðasonar Barðavogi 38, sem gefur nánari upplýsingar, sími 83993. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Auglýsing frá iðnaðarráðuneytinu. Samkvæmt lögum nr. 107 31. des. 1972 hefir verið ákveðið að stofna hlutafélag til að vinna að undir- búningi þörungavinnslu að Reykhólum í Austur- Barðastrandasýslu. Þeir sem áhuga hafa á að gerast hluthafar í hluta- félagi þessu láti skrá sig hjá iðnaðarráðuneytinu í Reykjavík fyrir 1. febr. n.k. Við skráningu þarf að tilkynna væntanlegt hlutfjárframlag. Hótel- og veitingoskóli íslonds Kvöldnámskeið í matreiðslu fyrir matsveina á fiski- og flutningaskipum verður haldið á vegum skólans í vetur. Innritun verður 8. og 9. janúar kl. 17—19 í skrifstofu skólans að Suðurlandsbraut 2 (Hótel Esju). SKÓLASTJÓRI. BLAÐBURÐARFOLK: Sími 16801. VESTURBÆR Nesvegur II - Lynghagi. AUSTURBÆR Hátún - Miðtún - Háteigsvegur - Lauga- vegur 1-33 - Miðbær - Freyjugata 1-27. Laufásvegur frá 2-57 - Þingholtsstræti - Skipholt frá 54-70 - Rauðilækur frá 1-30 ÚTHVERFI Hjallavegur - Suðurlandsbraut - Langholts- vegur frá 71-108 - Nökkvavogur - Gnoðar- vogur frá 48-88 - Laugarásvegur. ÍSAFJÖRÐUR Nýr umboðsmaður tók við afgreiðslu fyrir Morgunblaðið frá 1. janúar, Úlfar Agústs- son, í Verzl. Hamraborg, sími 3166. ÍSAFJÖRÐUR Blaðburðarfólk óskast strax. Upplýsingar í síma 3166. SAUÐÁRKRÓKUR Umboðsmaður óskast til að annast dreif- ingu og innheimtu fyrir Morgunblaðið. Upplýsingar hjá umboðsmanni og af- greiðslustjóra Mbl., sími 10100. HAFNARFJÖRÐUR Blaðbera vantar í Suðurbæ. Upplýsingar í síma 50374. SENDLAR ÓSKAST á afgreiðsluna, bæði fyrir og eftir hádegi. Þurfa að hafa hjól. Upplýsingar í afgreiðslunni, sími 10100. Morgunblaðið, sími 10100. r.VXlKT Nokkrir smiðir Háseti Verkamenn og nemar í skipasmíði óskast nú þegar. Daníel Þorsteinsson & Co. h/f., skipasmíðastöð v/Bakkastíg Reykjavík, sími 12879 og 25988. Vanan háseta vantar á mb. Dalaröst til neta- veiða. Upplýsingar gefur skipstjóri Hákon Magnús- son um borð í bátnum við Grandagarð eða í síma 81711. Viljum ráða verkstjórn málmgluggadeild vora. Góð vinnuaðstaða, góð laun. Mötuneytr á staðnum. Upplýsingar hjá yfirverkstjóra. HF. RAFTÆKJAVERKSMIÐJAN Hafnarfirði. i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.