Morgunblaðið - 06.01.1973, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 06.01.1973, Blaðsíða 16
16 MORGU'NBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JANOAR 1973 Otg«fendí hf Árveikur, Reykjavfk Prffmfe/Bemda&tjóri Haraídur Svemsaon. Rft3:*i'5rar Mattihlas Johannsssart, Eyjoltfur Konráð Jónsson. SÆyimtr Gurmarsson. R'ft írtjófflerftrlHrúi Þiorbljönn Guðrmindsson. Fráttastjóri Björn Jóhannsson Augtýaingastjöri Árrw' Garöar Kríatinsson. RHðtjérn og aígreiðsla Aðafstræti 6, sfmi 10-100. Au05ý*íngar Aðalstreeti 6, sfmi 22-4-60. Áskriftergjafd 225,00 kr á rnénuði innanlands l fauaeedTu 15,00 ikr eintakið. jVTýlega birtist svofelld lýs- ’ ing á gerðum ríkisstjórn- ar Ólafs Jóhannessonar í blaði einu, sem gefið er út í höfuðborginni: „Skattabyrð- in á lágtekju- og miðlungs- tekjufólki er of þung og alltof margir smeygja sér undan því, að greiða eðiileg gjöld til almannaþarfa mið- að við tekjur. Á ég löngum bágt með að skiljaj hversu linlega er tekið á þessum málum. íslenzka þjóðfélagið er kröfugerðarþjóðfélag og á yaldhöfum hvílir sá mikli vandi, að gefa úrlausnarefn- um forgangsröðun. Því mið- ur hefur staðfestan og að- haldið í fjármálum hins op- inbera verið með lakara lagi. Það er eytt meira en afl- að er og af því spratt sá efna- hagsvandi, sem þjóðin á nú við að glíma og leiddi illu heilli til gengisfellingar. Fjárfestingar og útgjöld hins opinbera hafa farið langt úr hófi fram og skort hefur á sparsemi og ráðdeildarsemi. Þarf í rauninni ekki að minna á annað en að fjárlög tvö- földuðust á tveimur árum og eru nú um 22 milljarðir króna.“ Þegar þessi lýsing á gerð- um vinstri stjómarinnar er lesin, hugsa vafalaust flestir á þann veg, að hér sé vitnað til ummæla stjórnarandstæð- ings, en því er ekki að heilsa. Þetta er lýsing þingmanns, sem styður ríkisstjórnina og hefur fylgzt með gangi mála frá því að stjórnin var mynd- uð um IV2 árs skeið frá sjón- arhóli þess, sem innan dyra stendur og tók meira að segja þátt í viðræðum um myndun stjómarinnar. Höf- undur þessara orða er nefni- lega Bjarni Guðnason, al- þingismaður. Ekki fer á milli mála, að í öllum megjnatriðum hefur hann rétt fyrir sér. Það er staðreynd, að skattbyrðin á lágtekju- og miðlungstekju- fólki er alltof þung. Það er líka rétt, að staðfestan og að- haldið í fjármálum hins op- inbera hefur verið í lakara lagi. Það er ennfremur rétt, að sá efnahagsvandi, sem þjóðin hefur staðið frammi fyrir, er m.a. af því sprott- inn, að óhófleg eyðslusemi og almennt stjórnleysi hefur einkennt afstöðu ríkisstjóm- arinnar til efnahagsmála. Þess vegna neyddist hún til þess að fella gengið. Það er líka rétt hjá Bjarna Guðna- syni, að tvöföldun fjárlaga á tveimur árum upp í 22 millj- arða er sönnun þessa alls. Þannig hefur nú einn af þingmönnum stjórnarliðsins tekið mjög eindregið undir þá gagnrýni, sem stjórnar- andstæðingar hafa sett fram á efnahagsstjórn vinstri stjórnarinniar. Og ljóst má vera, að fleiri mönnum í stjórnarherbúðunum ofbýð- ur en Bjarna Guðnasyni ein- um saman, þótt fleiri hafi ekki tekið opinberlega til máls um þessi efni en hann. Þegar viðreisnarstjórnin sat við völd má segja, að allir þættir efniahagsstjórnar hennar hafi legið undir þungri gagnrýni núverandi stjómarflokka. Þegar erfið- leikar steðjuðu að, neyddist viðreisnarstjórnin til þess að lækka gengi krónunnar. Vinstri stjórnin hefur nú beitt sömu aðgerð í mesta góðæri. Viðreisnarstjórnin beitti verðstöðvun tvisvar sinnum á ferli sínum í barátt- unni gegn verðbólgunni. Nú- verandi stjórnairflokkar töldu verðatöðvun þá blekkingu eina, en þeir gripu sjálfir til þessa ráðs síðastliðið sumar. í sambandi við verðstöðvun- araðgerðir lét viðreisnair- stjórnin fresta greiðslu tveggja kaupgjaldsvísitölu- stiga í tæpt ár. Núveraedi stjórnarflokkar kölluðu það þá vísitölurán en gerðu ná- kvæmlega það sama sjálfir sl. sumar. í sambandi við gengisbreytinguna 1968 greiddu frystihúsin heint til útgerðarinraar 10% ofan á fiskverðið, sem ekki kom til hlutaskipta. Þá var að mati núverandi stjórnarflokka ver- ið að ræna sjómenn eðlilegri hlutdeild í tekjum útgerðar- innar. Nú hefur Lúðvík Jós- epsson haft forgöngu um, að ríkissjóður leggur fram tug- milljóna framlag til útgerðar- innar án þess að sjómenn fái hlutdeild í því. Þannig mætti halda áfram að telja upp hinar ýmsu að- gerðir viðreisnarstj órnarinn- ar, sem mjög voru gagnrýnd- ar af hálfu núverandi stjórn- arflokka, en þeir hafa á IV2 árs ferli beitt nákvæmlega sömu aðgerðum. Munurimi er hins vegar sá, að viðreisn- arstjórndn fylgdi markvissri efnahagsstefnu og fram- kvæmdi aðgerðir af þessu tagi af festu og stjórnsemi og á þann veg, að tekið var til- lit til allra þátta efna- hags- og atvinnulífsins. En þessi grundvallaratriði hefur vinstri stj'órnin vamrækt. LÝSING INNANBÚÐARMANNS S ! /-----A. iT \\ /"S j \ /V------- forum world features Hvað verður Sadat lengi við völd ? Eftir Dr. Bowyer Bell, M.I.T. Óeirðir stúdenta í Kaíró að und- anförnu eru síðasta vísbendingin um vaxandi erfiðleika sem Anwar Sadat Egyptalandsforseti á við að stríða. Þessir erfiðleikar koma ekki fiatt upp á þá menn, sem kölluðu hann Bikbachi Sah — „Já herra ofursti“ — þegar hann tók við völdunum að Nasser látnum og gerðu aldrei ráð fyrir öðru en hann sæti aðeins til bráðabirgða í valdastóli. En Sadat kom mörgum á óvart því hann sýndi töluverðan myndugleik og losaði sig við hættulega keppinauta. Hann nýt ur vinsælda sveitafólks, hefur sýnt áhuga á því að bæta úr aldagömlum misfellum í stjórnarfarinu og ýmis- legt gert í þá átt, og hann hefur að minnsta kosti verið talinn skárri en keppinautarnir. Þrátt fyrir allt þetta ríkir megn óánægja í Egyptalandi um þessar mundir eins og uppþot stúdenta bera vott um. Erfiðleikar Sadats hófust i lok árs ins 1971 þegar ljóst varð að engar breytingar höfðu orðið þótt hann hefði lýst því yfir að úrslit yrðu knúin fram fyrir áramót í deilunum við ísraelsmenn. Sadat gaf skýring- ar á því í frámunalega klaufalegri útvarpsræðu 13. janúar 1972 hvern- ig á þvi stóð að hann lét ekki til skarar skríða eins og hann hafði lofað, og herskáir Egyptar, ekki sízt stúdentar sem þá höfðu einnig efnt til uppþota, urðu öskureiðir. En Sadat var í gildru. Egyptar gátu hvorki ráðizt fram gegn Israelsmönn Kadat. um á opnum vígvelli né þrevtt þá til uppgjafar með öðrum hernaðarlegum ráðum af því ísraelsmenn voru ein- faldlega öflugri en Egyptar. Engar líkur voru heldur á þvi að aðstaða Egypta mundi batna. Arabar voru ekki einhuga i baráttu sinni, Rússar vildu ekki afhenda árásarvopn og Bandaríkjamenn gátu engin afskipti haft af deilumálunum Egyptum í vil. Egyptar gátu ekki sætt sig við óbreytt ástand, en þeir gátu ekki breytt því og verst var að þetta gat enginn játað í Kaíró, sízt af öllu Sadat. í júlí breytti Sadat ennþá einu sinni stefnu sinni og rak rússneska ráðunauta úr landi af því þeir höfðu ekki af'nent MIG23-þotur og árásar- eldfiaugar með þeim árangri að Egyptar gátu ekki breytt ástandinu. Rússar vildu ekki afhenda þeim vopn, sem gætu komið af stað nýju stríði, og flestir Egyptar fögnuðu brottför þeirra. Ennþá einu sinni hafði Sadat unnið sér vinsæld- ir, en raunhæfur árangur ákvörðun- arinnar var rýr: Bandaríkjamenn breyttu ekki afstööú sinni, Vestur- Evrópurxki afhentu ekki vopn, sem gerðu hernaðarmátt Egypta trúverð- ugan, og fúi gerði vart við sig í egypzka hernum þar sem hann hafði ekki lengur Rússa að bakhjalli. Sad- at breytti aftur til. Aziz Sidky for- sætisráðherra fór til Moskvu 16. októ ber til að blíðka Rússa. 26. októ- ber sagði Mohammed Sadiq hers- höfðingi, aðalhvatamaður brottvísun ar Rússa, af sér öllum opinberum embættum, þar á meðal starfi her- málaráðherra. GAMLIR ANDSTÆÐINGAE Árið var Egyptum dýrkeypt og ófrjótt. Bryddað hafði á óánægju síð an í maí. Tanawi nokkur ofursti var sagður hafa ráðizt á heimili forset- ans með 1.000 víkingahermönnum í þyrlum. Stúdentar fóru að ókyrrast. Gamlir andstæðingar -— Bræðralag Múhameðstrúarmanna og kommúnist- ar — voru sagðir önnum kafnir. 12. október hélt óþekktur höfuðsmaður þrumuræðu yfir mannfjölda í bæna- húsi í Kaíró. Orðrómur var uppi um misheppnaða byltingu. Embættis- menn staðhæfðu að hann væri bara geðveikur. 22. nóvember játuðu Egyptar að einhver vandræði hefðu orðið og 12 foringjar í flughernum væru viðriðnir þau. Aftur var uppi orðrómur um misheppnaða byltingu. Embættismenn sögðu „nei“, en yfir- menn í heraflanum voru í flýti skip- aðir í ný embætti, settir af eða látn- ir hætta. Margir kunnugir gangi mála töldu að Sadat væri í vanda. Andstæðingar Sadats vilja annað hvort herskárri utanríkisstefnu eða árangursríkar umbætur innanlands. Margir hafa misst trísB* á forseta, sem sagðist mundu fórna einni millj- ón egypzkra mannslífa í maí 1972 og leysti þúsundir nýliða frá herþjón- ustu í september. Mörgum innan hers og utan finnst nóg um ráðleysi og hik valdamanna, hæfileikaskort í stórum stíl og svifaseina og tröll- aukna skriffinnsku, stefnuleysi og hringlandahátt. Eftirmaður Sadiqs, Ahmed Ismail hershöfðingi, sem ver- ið hefur yfirmaður leyniþjónustunn- ar síðan í maí 1971, hefur nánar gæt- ur á öllum óánægjuöflum. Breyting- arnar í heraflanum hafa gert tor- tryggilega menn valdalausa. Því fer þó f jarri að völd Sadats séu trygg, því fyrir fyrri byltingum hafa staðið menn, sem voru almennt taldir traustir stuðningsmenn rlkj- andi stjórnar, bæði Sabry og félag- ar hans 1971 og þeir sern efndu til samsærisins 1967. En Sadat hefur sýnt klókindi og flestir keppinaut- arnir eru í fangelsi. Menn, sem hann hefur sjálfur skipað, eru oft reknir fyrst: Fawzi forsætisráðherra, utan- ríkisráðherrarnir Ghalib og Riad og Sadiq hershöfðingi. Sérfræðingar stjórna að miklu leyti stjórnarkerf- inu. Andstaðan gegn stjórninni er einkar lágvær. Vonleysið og óróleikinn hverfa þó ekki við það. Sidky forsætisráðherra segir að „eini valkosturinn sé að berjast til að endurheimta land okk- ar og sjálfsvirðingu“, en Egyptar geta ekki háð annað stríð án þess að bíða annan hroðalegan ósigur. Á meðan gleypir herinn megnið af öll- um fjárveitingum, knýjandi fram- kvæmdir sitja á hakanum, fólksfjölg unarvandamálið verður sífellt erfið- ara viðfangs og hvergi er að finna dugnað og forystu, aðeins undan- brögð og vonleysi. Og engar breyt- ingar eru sjáanlegar. Á hverjum degi hlýtur Sadat að hugsa með sér, hvaða samstarfsmaður hafi dug ! sér og metnað til að yfirstíga hik og gætni og reyna að koma á breyting- um með byltingu. Takist Sadat ekki á þessu ári að finna ennþá einu sinni upp á einhverju tiltæki, sem vekur fögnuð og undrun, hlýtur árið að verða mönnum langt og erfitt í Kaíró.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.