Morgunblaðið - 16.12.1970, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 16.12.1970, Blaðsíða 11
"Jl (MORiGUNBLABÍÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1370 11 Bækurnar, sem hinir vandlátu velja handa böraum og unglingum: URVALS BÆKUR eftir «nn« UTU Báóom STýf.u* f .. . ' 1*£ ARORAI BLOKK X Þetta er saga um litla stúlku, sem á heima í hinni sérstæðu og afmörkuðu veröld sambýlishússins. Faðir hennar er heima, sinnir um hinn átta vikna gamla son, vinnur heimilisstörfin og býr sig undir doktorspróf, en móðirin vinnur úti. Sagan er því mjög nútímaleg, og hún er gædd þeim barnslegu töfrum og heillandi þokka, sem einkennir bækur þessa höf- undar í svo ríkum mæli og skipar þeim í allra fremstu röð barnabóka samtíðar- innar. LITLI BRÓÐIR OG STÚFUR Þetta er fyrsta bökin um Litla bróður og Stúf, sem ungir lesendur munu áreiðan- lega hafa mikla ánægju af að kynnast. Litli bróðir er einmana, því að foreldrar hans.vinna bæði utan heimilis, og stóri bróðir er í skóla. En Litli bróðir hefur mikið hugmyndaflug og sigrast á ein- manakennd sinni með sínum eigin sér- stæða hætti. Sagan er einstaklega Ijúf og þokkafull og rituð af ríkum skilningi á eðli barna og djúpri innsýn í sálarlíf þeirra, svo sem vænta mátti af þessum höfundi. Beverly Gray Bækurnar um Beverly Gray í heimavist- arskólanum, stallsystur hennar og marg- visleg ævintýri þeirra, eru fjórar talsins. Hin fjórða og síðasta Beverly Gray í 4. bekk er komin út, og þrjár hinar fyrri fást allar enn. Bækumar um Beverly Gray hafa farið. mikla sigurför um fjölda landa og fáar hliðstæðar bækur staðið þeim á sporði hvað vinsældir og útbreiðslu snertir. Þær eru sannkallaðar óskabækur allra ungra stúlkna 11—15 ára. ? m r;i * \f\ íí^ Músaferöin Þessi bráðskemmtilega saga um ferða- lag músahjónanna og sonar þeirra er komin út að nýju. Freysteinn Gunnarsson ^þýddi. Anne-Cath. Vest/y Höfund bókanna, Anne-Cath. Vestly, þarf ekki að kynna íslenzkum börnum eða for- eldrum þeirra, svo kunn og vinsæi sem hún er hér á landi af b'ókunum um Óla Alexander Fílíbomm-bomm-bomm og bókunum um börnin átta, pabba, mömmu og ömmu. Hún er einn vlðkunnasti og ágætasti barnabókahöfundur, sem nú er uppi á Norðurlöndum og þótt víðar væri leitað. Bækur hennar eru þýddar á fjöl- mörg tungumál og víða fluttar í útvarp. Hún hefur hvað eftir annað hlotið verð- laun þau, er norska menntamálaráðu- neytið veitir fyrir úrvalsbarnabækur. Sllk verðlaun hafa einnig verið veitt eigin- manni hennar, Johan Vestiy, sem teiknar frábærar myndir í allar bækur hennar. Stefán Sjgurðsson kennari hefur þýtt all- ar bækurnar. BÆKUR ANNE-CATH. VESTLY ERU SÉR- STAKAR ÚRVALSBÆKUR HANDA ÖLL- UM 6—10 ÁRA BÖRNUM, PRÝDDAR FJÖLDA ÁGÆTRA MYNDA. Áður eru komnar út á fslenzku eftirtaldar bækur eftir Anne-Cath. Vestly: Óli Alexander Fílíbomm-bomm-bomm Óli Alexander á hlaupum Óli Alexander fær skyrtu Óli Atexander á flugi Óli Alexander flytur Pabbi, mamma, börn og bfll Átta börn og amma þeirra f skóginum Marta og a'mma og amma og Matti Kusa í stofunni Lystivegur ömmu i áTlk v m s> . VÍSNABÓKIN Gömlu, góðu íslenzku vfsurnar, sem raulaðar hafa verið við fslenzk börn kyn- slóð eftir kynslóð. Dr. Símon Jóhann Ág- ústsson valdi vísurnar. Halldór Pétursson teiknaði myndirnar. Ekkert fslenzkt barn má vera án þessarar þjóðlegu og af- bragðsgóðu bókar. JÓLAVÍSUR Hinar sigildu vísur um jólasvefnana og jólin, sem sungnar eru á hverjum jólum. Höfundur er Ragnar Jóhannesson, en Halldór Pétursson teiknaði myndirnar. GOGGUR GLÆNEFUR Goggur' glænefur er uppáhaldssögu- hetja litlu barnanna, og bókarinnar um hann hefur verið sárt saknað mörg ár. Freysteinn Gunnarsson þýddi. HILDU BÆKURNAR Fyrsta bókin f þessum flokki, Hilda á Hóli, hlaut fyrstu verðlaun í samkeppni, sem stærsta bókaforlag á Norðurlöndum efndi til um bók handa telpum og unglingsstúlk- um. Bækur þessar urðu sfðan sjö talsins og hafa farið óslitna sigurför. Má fullkom- lega segja, að þær teljist nú í hópi sígildra barna- og unglingabóka á Norðurlöndum. Sjötta og næstsíðasta bókin í þessum flokki er nú komin út á íslenzku og nefnist Hilda á réttri. leitf Hilda á enn sem fyrr við ýmis vandamál að etja. Neyð og bágindi annarra hvíla henni þungt á hjarta. Og loks stendur hún andspænis þeim mikla vanda að taka örlagaríka ákvörðun um framtið sína. En hún skynjar fullkomlega hvaða leið hún á að velja, jafnvel þótt það kunni að kosta stríð við Sylvester óðalseiganda og Eme- líu frænku. Hildu-bækurnar eru einhverjar beztu og heilbrigðustu bækur sem völ er á handa telpum og unglingsstúlkum. Áður eru komnar út eftirtaldar bækur: Hilda á Hóli Hilda efnir heit sitt Hilda og fósturbörnin fimm Hilda f kvennaskóia Hilda f sumarfeyfi ANNA i Grænuhlið Bækurnar um litlu, rauðhærðu stúlkuna, •sem köm munaðarlaus til roskinn'a syst- kina í Grænuhlíð eru löngu komnar í tölu sfgildra barna- og unglingabóka, enda vandfundnar jafn hugþekkar og skemmti- legar bækur handa telpum og unglings- stúlkum. Bækurnar um Önnu I Grænuhlíð eru fjórar að tölu: ANNA I GRÆNUHLÍÐ I ANNA J GRÆNUHLJÐ II. Davíð kemur til sögunnar ANNA I GRÆNUHLÍÐ III. Anna trúlofast ANNA I GRÆNUHLlÐ IV. Anna giftist Bækurnar um Önnu f Grænuhlið fást nú allar á mjög hagstæðu verði. Sigildar sögur IÐUNNAR Undir þessu heiti gefur IÐUNN út flokk úrvalssagna, sem um áratuga skeið hafa verið vinsælt og eftirsótt lestrarefni fólks á öllum aldri, en þó einkum sérstakar eftirlætisbækur æskufólks. Er það samhljóða álit uppeldisfræðinga og sérfræðinga í lestrarefni barna og unglinga hvarvetna um heim, að þessar bækur beri að velja handa stálpuðum ungiingum. — Sextánda bókin f þessum flokki er eftir Carit Etlar, vfðkunnan og mjög vln- sælan danskan höfund, sem uppi var á öldinni sem keið. Sagan segir frá frelsis- baráttu Dana gegn sænskum Innrásarher á 17. öld og dregur nafn af aðalsöguhetj- unni. Þetta er önnur af tveimur frægustu og vinsælustu sögum Etlars, hörkuspenn- andi saga, sem aldrei sleppir töku'm á lesandanum. — Eftirtaldar sögur eru1 komnar út f þessum flokki: 1. Ben Húr, Lewis Wallace. 2. Kofi Tómasar frænda, H, Beecher Stowe. 3. ivar hlújám, Walter Scott. 4. Skytturnar I, Alexandre Dumas. 5. Skytturnar II, Alexandre Dumas. jMTJT 6. Skytturnar III, Alexandre Dumas. 7. Börnin f Nýskógum, Frederick Marryat. 8. Baskerville-hundurinn, A. Conan Doyle. 9. Grant skipstjóri og börn harts, Jules Verne.. 10. Kynjalyfið, Walter Scott. 11. Fanginn í Zenda, Anthony Hope. 12. Rúpert Hentzau, Anthony Hope. 13. Landnemamir f Kanada, Frederick Marryat. 14. Róbínson Krúsó, Daníel Defoe. 15. Hjartarbani, J. F. Cooper. 16. Sveínn skytta, Carit Etlar. Sígildar sögur Iðunnar ættu að ver til [ s'érhverju heimllisbókasafnf f landinu. Auk ofantaldra bóka eru á forlagi okkar fjölmargar góðar bækur handa börnum og unglingum og margar þeirra á miög hagstæðu verði. ___ .... . IÐUNN Skeggjagötu 1 símar 12923, 19156 ijoi5»6w/|Sn» sníj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.