Morgunblaðið - 07.11.1964, Blaðsíða 28
M®1
iELEKTROLUX UMBOÐIÐ
J.AUGAVEGI 69 sfm! 21800
trijttnMafoiiír
252. tbl. — Laugardagur 7. nóvember 1964
Ákveöið aö byggja
íþróttahús á Akureyri
Akureyri, 6. nóv.
^/FY’RIRHUGAí) er að reisa
myndarlegt íþróttahús á Akur-
eyri, nánar tiltekið á stórri lóð
yzt við Þórunnarstræti vestan
nýju lögreglustöðvarinnar. —
Teikningar eða kostnaðaráætlun
liggja ekki fyrir hendi, en þó
haf.a forráðamenn íþróttamál-
anna í bænum gert sér ákveðn-
ar hugmyndir um húsið í stór-
um dráttum.
Ráögert er, að gólfflötiir
íþróttasalarins sjálfs verði 20
sinnum 40 metrar og auk þess
verði áhorfendasvæði fyrir þús-
und manns, búningsklefar og
húsnæði fyrir æskulýðsstarf-
semi. Stærð hússins yrði þá um
150000 rúmmetrar. Hægt yrði að
skipta hinum stóra íþróttasal
niður í allt að fjóra minni sali
til íþróttakennslu.
íþróttaráð, íþróttabandalag
Akureyrar og Fræðsluráð hafa
lýst samþykki við þessa hug-
naynd og bæjarstjórn Akureyrar
hefur þegar samþykkt, að húsið
skuli reist svo fljótt sem tækni-
legur undirbúningur og fjár-
hiagsástæður leyfa. Þá hefur
bæjarstjórn falið íþróttaráði, að
annast allar undirbúningsfram-
4,650 tunnur nf
tU Akrunes
kvæmdir, en síðar mun verða
skipuð sérstök byggingarnefnd.
Nú þegar vantar tvo til þrjá
sali til að fullnægja þörf skóla
og íþróttaféíaga í bænum. Um
langt skeið hefur orðið að skera
verulega niður leikfimikennslu
í skólum bæjarins, vegna hús-
næðisskorts og íþróttafélög hafa
einnig orðið að takmarka starf-
semi sína. Almenningur hefur
alls ekki komizt að til frjálsra
íþróttaiðkana. Aðeins eitt íþrótta
•hús er í ænum, þar sem eru 2
Framh. á bls. 27
í gær
AKRANEJSI, 6. nóv. — 4650
tunnur af síld bárust hingað í
dag af 7 bátum. Síldina veiddu
þeir 40-50 sjómílur vestur af
Jökli í Kolluál. Síldin er ágæt,
stór og falleg. Það er hraðfryst
eins og hægt er og saltað. Afla-
hæstur var Skírnir með 1200
lunnur, þá Sólfari 1000, Höfrung-
ur III 1000, Anna 400, Höfrungur
II 400 og Haraldur 350.
í gær fiskaði línubáturinn Haf-
örn 7.5 tonn. Ýsa var meirihluti
aflans. Andey fékk 3,5 tonn,
Kristleifun 1,5 og Frosti 1,2 tonn.
— Oddur.
Togurasölur
S E X togarar seldu afla sinn í
Þýzkalandi í vikunni. Geir seldi
á mánudag í Cuxhaven 93 lesfir
fyrir 88,396 mörk. Samdægurs
seldi Víkingur í Bremerhaven,
karfa frá Vestur-Grænlandi, 186
lestir fyrir 128.700 mörk. Á
þriðjudag seldi Svalbakur í Cux-
haven 112 lestir fyrir 93,129
mörk. f fyrradag seldi Hallveig
Fróðadóttir í Cuxhaven 98 lestir
fyrir 79.807 mörk og Jón Þor-
láksson seldi þá 83 lestir á sama
stað fyrir 64,741 mark. Loks
seldi Maí í gær í Bremerhaven
108 lestir fyrir 113 þúsund mörk.
f næstu viku selja 9 íslenzkir
togarar erlendis.
Nýbyggingin við stöðvarhús Toppstöðvarinnar.
Viðbótinni við Toppstöðina
brátt lokið
Þó verður að grípa til annarra ráðstafana
til að brúa bilið fram að Búrfellsvirkjun
UNNIÐ er nú að því að stækka
varastöðina við Elliðaár, Topp-
stöðina, til að brúa bilið þar til
næsta stórvirkjun, Búrfells-
virkjun, verður komin í notkun.
Nýja vélasamstæðan í Toppstöð-
ina, sem framleiða mun 11,500
kílóvött, er væntanleg til lands-
ins í næsta mánuði. Verið er að
byggja við stöðvarhúsið til norð-
urs og er áætlað að viðbótar-
stöðin muni taka til starfa fyrri
Verðtryggð og skattfrjáEs
ríkisskuldabréf fyrir 7 5 millj
f GÆR var lagt fram stjórnar-
frumvarp á Alþingi um að fjár-
málaráðherra skuli heimilt fyrir
hönd ríkissjóðs að gefa út til sölu
inanlands ríkisskuldabréf eða
spariskírteini að upphæð allt að
75 millj. kr. og er í frumvarpinu
heimild til að verðtryggja skulda
bréfin. I>á eiga þau að vera und-
anþegin framtalsskyldu og skatt-
lagningu á sama hátt og sparifé.
Einnig eiga þau að vera undan-
þegin erfðafjárskatti.
í athugasemdum, sem frum-
varpinu fylgja, segir:
Ríkisstjórnin hefur um mörg
Stórauknar framkvæmdir viö mal-
bikun akbrauta og gangbrauta
— borgarstjóri skýrði írá mál-
inu á borgarstjórnarfundi
GEIR Hallgrímsson, borgar-
stjóri, skýrði frá því á borgar-
stjórnarfundi sl. fimmtudag,
að það sem af er þessu ári sé
búið að helluleggja og steypa
12,7 kílómetra af gangstéttum
eða um 34 þúsund fermetra.
Til samanburðar við sl. ár, þá
hefði verið hellulagt og steypt
ir 6,6 kílómetrar eða 17 þús.
fermetrar. Fullnaðarfrágang-
ur gangstétta hefði því aukizt
á þessu ári um 100 prósent
miðað við sl. ár.
Malbikun akbrauta sé, það
sem af er þessu árl, 145 þús-
nnd fermetrar akbrautar, en
hefði verið um 72 þúsund sl.
ár. Fullnaðarfrágangur ak-
brauta hefði því einnig aukizt
um 100 prósent miðað við árið
í fyrra.
Geir borgarstjóri tók það
fram, að i árslok 1963 hefðu
gangstéttarframkvæmdir ver-
ið 46 prósent af þvi, sem á-
ætlað er að lokið skyldi í árs-
lokin samkvæmt 10 ára
gatnagerðaráætlun borgarinn-
ar og um síðustu áramót
hefði malbikun akbrauta ver-
ið 80 prósent af því, sem gert
var ráð fyrir skv. sömu áætl-
un.
Miðað við næstu áramót
mundi hinsvegar lokið 55 til
60 prósent framkvæmda skv.
áætluninni varðandi gangstétt
ir og malbikun akbrauta
mundi nema 122 prósent af
því, sem áætlað var að Ijúka
á þessu ári.
Borgarstjóri bar fram sér-
stakar þakkir til borgarverk-
fræðings, verkfræðinga hans,
verkstjóra og verkamanna við
þessar framkvæmdir, en þeir
hefðu með stakri samstillingu
gert hin miklu afköst mögu-
leg og væru allir borgarbúar
í þakkarskuld við þá vegna
þessa. Hefði ekki svo góður ár
angur náðst, þegar um mikinn
vinnuaflsskort var að ræða,
Framhald á bls. 27
undanfarin ár aflað fjár til ým-
issa framkvæmda ríkisins og
ríkisstofnana með lántökum.
Verulegur hluti þessarar fjáröfl-
unar, einkum til stórfram-
kvæmda, hefur farið fram með
erlendum lántökum. Að öðru leyti
hefur fjárins verið aflað hér inn-
anlands með samningum við láns
stofnanir. Þannig hefur ríkis-
stjórnin sl. tvö ár gert heildar-
samninga við viðskiptabankana
og stærstu sparisjóðina um þátt-
töku þeirra í fjáröflunaráætlun
ríkisstjórnarinnar. Aftur á móti
hefur fjáröflun með útgáfu ríkis-
skuldabréfa ekki verið reynd svo
heitið geti hér á landi um
margra ára skeið. Ástæðurnar
eru að sjálfsögðu þær, að eðli-
legur verðbréfamarkaður hefur
lagzt niður að mestu síðustu tvo
áratugina vegna þrálátrar verð-
bólgulþróunar.
Tilgangur þessa frumvarps er
Framhald á bls. 8
hluta næsta árs. Orkuframleiðsla
Toppstöðvarinnar er nú 7,500
kílóvött.
Jakob Guðjohnsen, rafmanigs-
stjóri, skýrði Morgunblaðinu svo
frá í gær, að þessi stækkun
mundi ekki nægja til að brúa
bilið, svo að óhjákvæmilegt væri
að leita á fleiri mið. Ekki kvað
hann ákveðið ennþá, hvar borið
yrði niður, en í athugun mun að
að stækka varastöðina enn um
20,000 kílóvött og Ljösafossstöð-
ina um 7,000. Yrði Sogið þá full-
virkjað.
Áætlaður kostnaður við stækk-
un Toppstöðvarinnar er 64 millj-
ónir króna og kveður Jakob
hana munu standast.
Barnasomkomui
Démkirkjunnar
EARNASAMKOMUR Dómkirkj-
unnar hefjast á morgun, sunnu-
daginn 8. nóv. kl. 11 f.h. í húsi
Æskulýðsráðs Reykjavíkur, að
Fríkirkjuvegi 11.
Prestar Dómkirkjunnar munu,
eins og áður annast samkomur
þessar.
Auk hins venjulega samtals
við börnin verða sýndar skugga-
myndir (biblíulegar) til fræðslu
og biblíumyndir afhentar börn-
unum.
Það er eindregin ósk presta
Dómkirkjunnar að foreldrar
minni börn sín á samkomur þess-
ar, sem verða framvegis hvern
sunnudagsmorgun kl. 11.
Fyrsta síldin og upp-
grip rækiu í IsaiirÖi
ísafirði, 6. nóv.
VÉLBÁTURINN Guðrún Jóns-
dóttir kom hingað í gær með 600
tunnur síldar, sem veiddust úti
af Jökli. Er þetta fyrsta sildin,
sem kemur hingað á þessu
hausti og fóru um 530 tunnur til
frystingar hjá íshúsfélagi ísfirð-
inga. Var unnið við frystingu
síldarinnar í alla nótt.
Uppgripaafli er hjá rækjuibát-
unum, 15 til 16 bátum, sem
stunda veiðar í ísafjarðardjúpi.
Hver bátur má veiða ákveðinn
skammt, 600 kíló á dag. Fara bát-
arnir vanalega út um sjöleytið
að morigni og eru oftast komnir
að með fullan skammt milli 11 og
12 fyrir hádegi. Mikil vinna er
við niðursuðu rækjunnar á ísa-
firði, í Hnífsdal og á Langeyri 1
Álftafirði.
Línuvertíð er nú almennt hafin
bér vestra, en afli hefur verið
Iremur tregur það sem aí er og
fiskurinn smár. H.T.