Morgunblaðið - 07.11.1964, Blaðsíða 2
2
MORGUHV AÐID
1
Laugardagur 7. nóv. 1964
Hjálpið blindum!
MERKJASALA á íslandi er nú
orðin því sem næst fastur liður
á flestum sunnudögum ársins,
hversdagslegur vani. Því hættir
ýmsum til að gefa lítinn gaum
að því málefni, sem að baki
stendur hverju sinni. Þessvegna
vil ég vekja athygli ykkar les
enda á merkjasölu þeirri, sem
fram fer á morgun, en það er
merkjasala Blindrafélagsins.
Blindrafélagið, sem er tuttugu
og fimm ára um þessar mundir,
er eigin félagsskapur blindra á
Islandi.
Eitt af mörgum góðum mark-
miðum þess, er að vinna að því
að gera blindu fólki fært, að
framfæra sjálfu sér af eigin
rammleik. Félagið beitir sér fyr
ir, að byggja íbúðir fyrir blinda,
veita þeim aðstöðu til vinnu,
og gera þeim kleift að starfa og
verða sjálfbjarga um sem flest.
Ók undir
vörubílspall
Það er líka einlægur vilji þessa
fólks, að geta bjargað sér sjálft.
Er það ekki skylda okkar að
hjálpa til að það nái settu marki.
Hversu oft heyrum við ekki
heilbrigt fólk kvarta undan erf
iðleikum lífsins, — hvað þá um
þann, sem sjónina hefur misst,
eru honum ekki allar bjargir
bannaðar, er nokkuð að gera fyr
ir hann annað en gefast upp fyr
ir ofurþunga örlaga sinna? Senni
lega, væri hann einn og óstudi
ur. En sem betur fer er því ekki
svo varið á okkar landi. Blindra
félagið er hans bakhjarl, þjóðfé
lagið og við einstaklingar þess.
Það er vissulega stór og dýrmæt-
ur þáttur í eðli fslendinga, vilj-
inn til að aðstoða þá, sem aðstoð
ar þarfnast og miður mega sín í
lífsbaráttunni.
Því efa ég ekki að það munu
margir verða til, að rétta blind
um hjálparhönd á morgun, með
því að kaupa merki félags
þeirra, Blindrafélagsins, þegar
þau verða boðin ykkur.
K. J.
Hin nýgerða höfn á Rifi. Svftrtu strikin sýna það s em fullgert er, svo sem hafnargarðana tvo, eiti
fiskvinnsluhús og bil í bryggjuna. Rftndóttu striki n sýna fyrirhugaðar byggingar, og er byrjað þar á
einni fiskvinnslustftð, og slitnu strikin sýna síðari s tækkunarmftguleika.
SKÖMMU eftir hádegið í gær ók
kona litlum bil upp Fellsmúla.
Efst í brekkunni nam vörubifreið
sem var skammt undan, skyndi-
lega staðar. Varð konan of sein
að hemla og lenti undir palli
vörubílsins. Sslasaðist hún lítil-
lega og bifreiðin stórskemmdist.
Olympiu-
mótið
í ANNARRI umferð tefldu íslend
ingar við Ekvadormenn og töp-
uðu með 3-1. Önnur úrslit í riðl-
inum voru þessi:
Urugay 2 — Monaco 2.
Argentína 1% — A-Þýzkal. Vt
+ 2 bið.
Kanada átti frí.
Helztu úrslit í öðrum riðlum
voru:
Búlgaría 3% — Perú Vt
V-Þýzkal. 2 — Danmörk 2
Spánn 3Vz — Chile Vz
Svíþjóð 312 — Skotland V2
Ungverjal. 4 — Frakkl. 0
USA 4 — Tyrkland 0
Rúmenía 2Vk — Tékkósló-
vakía IV2
í næstu þremur umferðum eiga
íslendingar að tefla við Austur-
Þýzkaland, Kanada og Argentínu.
Eftir hið stóra tap gegn Ekvador
er varla hægt að búast við því
að íslendingar komist í riðil með
3. og 4. landi í hverjum riðli.
Sigurstranglegastir í hverjum
riðli verður að telja, í 1. riðli:
Sovétríkin og Spán. í 2. riðli:
Júgóslavíu, Holland og Austur-
ríki. í 3. riðli: Ungverjaland,
ísrael og Svíþjóð, þó að Svíar
hafi tapað fyrir Frakklandi. í 4.
riðli: Pólland, USA. í 5. riðli:
Rúmeníu og Tékkóslóvakíu. í 6.
riðli: Argentínu, A-Þýzkaland
og Kanada. í 7. riðli: Búlgaríu,
V-Þýzkaland og Danmörku.
Ný Rifshöfn bíður tilbúin eftir
20 bátum í vetur
200 bátar rúmast í framtíðinni
innan garðanna
RIFSHÖFN á Snæfellsnesi er nú
svo langt komin að í vetur verð-
ur þar orðin aðstaða fyrir 20
báta í höfninni og hægt að
geyma fleiri, en verulegur skrið-
ur komst á framkvæmdir við
hftfnina á sl. ári er rikisstjórnin
ákvað að verja verulegum hluta
af brezka framkvæmdaláninu til
hennar. Hafa verið gerðir tveir
hafnargarðar, annar um 500 m
langur og hinn 450 m og hafnar-
bryggjubil, en innan garðanna er
rúm fyrir 200 báta og má grafa
þar eftir því sem fjármagn og
þörf er fyrir og yrði það því
hugsanlega í framtíðinni stærsta
bátahöfn á landinu. Er varið á
þessu ári 30 millj. kr. til fram-
kvæmdanna.
Nú á næstu vikum verða grafn
ir 10—20 þús. teningsm. úr höfn-
inni og verður þá 1000—1500
tonna skipum fært inn í hana, en
síðar meir á hún að verða fær
öllum skipum sem íslendingar
eiga nú í 7—8 vindstigum. Getur
höfnin því í vetur tekið 20 bóta,
miðað við að þriðji hver hafi
rúm við hafnargarð og fleiri til
geymslu. Verður dýpi við við-
legukant ekki undir 3 m, víða
4—5 metrar og hafnargarðarnir
lokaðir að mestu fyrir sandi og
öldu, þannig að bátar og skip
ættu að vera óhult í höfninni.
Siglingarrásin verður það djúp
LÆGÐIN suður af landinu var
að naga sig norður á bóginn
í gær og veitti röku og hlý-
andi lofti yfir landið, enda
var dimmt í lofti oæ allmikil
rigning vestan lands og snjó-
koma fyrir norðan upp úr há-
degi. Kl. 14 var 3 stiga forst
á Akureyri og snjór, 7 stiga
hiti í Reykjavík og regn, en 9
stiig á Hellissandi.
að öruggt 3 m dýpi fáist þar mið-
að við mestu fjörur. Þarna hafa
hingað til verið gerðir út 6 bátar
við erfiða aðstöðu, en nú mun
þessi ágæta höfn í haust bíða
eftir bátum og vinnslustöðvum í
landi.
Aðalsteinn Júlíusson, hafnar-
og vitamálastjóri og Pétur Péturs
son, formaður hafnarnefndar,
skýrðu blaðamönnum frá þessu
í gær. Sögðu þeir gert væri ráð
fyrir að frágangi hafnarinnar
verði lokið á næsta ári, svo sem
að ganga frá endum beggja hafn-
argarðanna, en síðan væri
dýpkun hafnarinnar og bygging
bátakvía framtíðarverkefni, eftlr
því sem á þyrfti að halda og
fjárhagur leyfði.
Lög um byggingu landshafnar
á Rifi á Snæfellsnesi voru sam-
þykkt á Alþingi árið 1951 og
ríkisstjórninni þá heimilað að
afla lánsfjár til byggingar hafn-
arinnar. Var það einkum gert af
þeim ástæðum að byggð var að
leggjast niður á Hellissandi
vegna atvinnuörðugleika, aukið
öryggi þótti að því fyrir sjófar-
endur að hafa þarna örugga höfn
og hin góðu fiskimið út af Snæ-
fellsnesi voru talin nýtast mun
betur frá Rifshöfn en frá öðrum
höfnum. En frá Rifi hafa fiski-
veiðar verið stundaðar öldum
saman og af mörgum talin þarhin
bezta hafnaraðstaða á utanverðu
Snæfellsnesi. Var höfn orðin
nothæf fyrir fiskibáta 1955, en
þar eð ekki tókst að vinna nema
fyrsta áfanga verksins, var við
stöðuga erfiðleika að etja sökum
sandburðar og lítils fjármagns.
Komst loks verulegur skriður á
málið á sl. ári, sem fyrr er sagt.
Áætlanir og framkvæmdarann-
sóknir á gerð hafnar á Rifi höfðu
áður verið gerðar. Rannsóknir
voru gerðar á rannsóknarstofum
Tækniháskólans danska, undir
leiðsögn prófessors H. Lundgren,
en rannsóknir og áætlanir hér
heima gerðu verkfræðingar Vita-
málaskrifstofunnar, þeir Guð-
mundur Gunnarsson og Jóhann
Már Jónasson. Stjórn Rifshafnar-
nefndar skipa nú auk Péturs
Péturssonar, sem er formaður,
alþingismennirnir Sigurður
Ágústsson, og Halldór E. Sigurðs
son, Gísli Jónsson, fyrrv. alþingis
maður og Skúli Alexandersson,
oddviti. Vitamálastjórnin hefur
annazt allar byggingarfram-
kvæmdir, að öðru en þvi, að
dæling hefur verið framkvæmd
af Björgun hf með skipi þeirra
Sandey, en yfirverkstjóri er Berg
sveinn Breiðfjörð.
Vantar báta og athafnamenn
í fiskiðnaði
Á Hellissandi er nokkur að-
staða til vinnslu fiskafurða en sd
aðstaða er þó engan veginn nógu
góð, til þess að geta tekið við
þessum bátafjölda, hvað þá þeg-
ar höfnin hefur verið stækkuð
enn meira, en það er tiltölulega
auðvelt vevk, að því er vitamála-
stjóri og formaður hafnarnefnd-
ar upplýstu. Sögðu þeir að leggja
þyrfti áherzlu á það nú að fá
vinnslutæki til staðarins, bæði
báta og stöðvar í landi. Svæði
hafnarinnar er mjög stórt og gott,
en gert er ráð fyrir að fisk-
vinnslustöðvar séu byggðar
frammi á sjálfri hafnarbryggj-
unni, svo sem meðfylgjandi
mynd sýnir. Verður því hægt að
taka fiskinn beint inn i fisk-
vinnslustöðina öðrum megin, en
afskipun færi fram hinum meg-
in. Óskar stjórn hafnarinnar eftir
því að athafnamenn á sviði fisk-
iðnaðar kynni sér aðstöðuna á
Rifi og kveðst fúslega mundi
veita alla þá aðstoð, sem í henn-
ar valdi stendur þeim, sem vilji
byggja fiskiðjuver þar.
Fjölskyldufargjöld Fl
FLUGFÉLAG íslands hefir
ákveðið að taka upp sérstök fjöl-
skyldufargjöld á flugleiðum fé-
lagsins innanlands, er gildi frá
og með 1. nóvember.
Fjölskyldufargjöldin, eru þann
ig, að forsvarsmaðUr fjölskyldu
í ferðinni (eiginmáður eða eigin
kona) greiðir fullt gjald, en aðr-
ir fjölskyldumeðlimir aðeins hálft
gjald.
Fjölskylda telst í þessu tilfelli
foreldrar með börn sín að 21 árs
aldri.
Skilyrði fyrir fjölskyldufar-
gjaldi er, að keyptir séu tvímiðar
og notaðir báðar leiðir og að
fjölskyldan hefji ferðina saman.
ferð er hafin, en hamli veikindi
ferð til baka, framlengist gildisi
tíminn. Einnig ef ferð sem við-
komandi hefir ætlað með til baka
er fullbókuð, þá framlengist gild
istími farmiðanna til næstu á-
ætlunanferöar.
Fjöilsky.ldufargjöldin gilda i
öll.um flugleiðum Fluigfélags ís-
ands innanlands.
Sem dæmi um hve miklu af-
slátturinn nemur má taka fjög-
urra manna fjölskyldu sem ferð-
ast frá Akureyri til Reykjavíkur
og aftur til baka. Samkvæmt
hinum nýju fjölskyldufargjöld-
um kostar ferðin aðeins kr. 3.39S
Miðarnir gilda í 14 daga frá því 1 í stað kr. 5.432. — áður.
Nýtt sýningarhúsnæði, Gallery 16
LAUGARDAGINN 31. október
var opnað nýtt húnæði fyrir mál-
verkasýningar á Klapparstíg 16
og hlaut það nafnið Gallery 16.
Eru þar nú sýnd 34 málverk eftir
21 málara.
Það eru tveir ungir menn,
Kristján Guðmundsson og Ey-
steinn Jónsson, sem eiga upp-
tökin að þessu oig reka þeir jafn-
farmt innrömmunarverkstæði í
sama húnæði. Hafa þeir stillt
upp málverkum í þremur her-
bergjum en nota hið fjórða undir
verkstæði sitt. Segjast þeir hafa
50-60 málverk undir höndum en
aðeins eru 34 til
stendur. Mun
skipta oft um myndir á veggjun-
um. ÖU málverk, sem eru þarna
til sýnis eru tii sölu. Einnig mun
syms sem
ætlunin vera að
ætlunin vera að halda þarna
einkasýningar.
Síðan Gallery 16 var opnað
hefur talsverður reytingur af
fólki komið og skoðað þau mál-
verk, sem þarna eru til sýnis.
Gallery 16 verður opið frá
9-18 alia daga nema mánudaga,
íimmtudaga og sunnudaga, en þá
verður opið til kl. 22.