Morgunblaðið - 07.11.1964, Page 1
61. ár^angur
28 s’íður
Brezka þingið var sett sl. þriðjudag, og var mynd þessi tekin við það tækifæri. Sést Elisabet II.,
Bretadrottning, flytja hásætisræðu sína.
Kínverjar og Rússar friömælast
Nýtt
| fúkalyf
j Merkasta upp-
) götvun siðan
penisillin kom
til sögunnar
BREZKIR vísinda.menn hafa
fundið upp nýtt fúkalyf, og
er talið að hér sé um að ræða
merkustu uppgötvun á sviði
lyfj&fræðinnar frá því penisil-
línið kom til sögunnar.
Þessu nýja lyfi hefur verið
gefið nafnið „ceporin". Það
hefur sömu verkanir og
penisillín, verkar jafnvel
fljótar, er ódýrara í fram-
leiðslu, og lyfið má nota með
góðum árangri til lækninga á
sjúklingum, sem hafa ofnæmi'
'fyrir penisillíni, að því er
vísindamenn sögðu á fundi
með fréttamönnum í London
í dag.
Rannsóknir á þessu nýja'
lyfi hafa tekið átta ár, og,
Uli.
Brezhnev hvetur til einingar
liommijnistafiokkanna. Peking-
stjórnin segir ágreininginn
stundarfyrirbrigði
Moskvu, Tokíó og París,
6. nóv. (AP-NTB)
LEIÐTOGAR frá öllum
kommúnistaríkjunum nema
Aibaníu eru nú komnir til
Moskvu til að taka þátt í há-
tiðahöldum þar á morgun í
tilefni 47 ára afmælis rúss-
nesku byltingarinnar.
í dag var byltingarinnar
minnzt í Þinghöllinni í
Kreml, sem tekur 6.000 manns
í sæti, og var hvert sæti skip-
»ð. Þar flutti Leonid Brezh-
nev, aðalritari rússneska
flokksins, fyrstu meiriháttar
ræðu sína eftir að hann tók
við embætti af Nikita Krús-
jeff, og sagði að það væri
heilög skylda flokksins og
ríkisstjórnarinnar að efla ein-
ingu alþjóða-kommúnismans.
Var Brezhnev hylltur með
langvarandi lófataki eftir
þessi orð hans.
Kínverjar tóku í sama
etreng í dag. Birtist grein í
málgagni Pekingst jórnarinn-
•r, „Dagblaði þjóðarinnar“,
þar sem segir að brottvikning
Krúsjeffs hafi verið þarfa-
verk, og að skoðanaágreining-
ur Kínverja og Rússa væri
aðeins stundarfyrirbrigði.
Chou En-lai, forsætisráð-
herra Kína, er formaður kín-
versku sendinefndarinnar í
Moskvu. Fór hann í dag til
grafhýsis Lenins og Iagði
blómsveig að líkpallinum. —
Eftir það gekk ráðherrann
aftur fyrir grafhýsið að gröf
Stalíns við Kreml-múrana. —
Var fréttamönnum meinað að
fylgjast með ferðum hans,
svo ekki er vitað hvort hann
lagði einnig blómsveig á gröf-
ina. —
í ræðu sinni sagði Leonid
Brezhnev að Sovétríkin héldu
fast við stefnu sína um friðsam-
lega sambúð í heiminum. En aðal
áherzluna lagði hann á samstarf-
ið milli kommúnistaríkjanna. —
Sagði hann að Sovétstjórnin og
miðstjórn flokksins litu á það
sem heilaga skyldu að efla þetta
samstarf. Lýsti Brezhnev því
jafnframt yfir að mismunandi til
brigði kommúnismans ættu ekki
að vera nein hindrun fyrir sam-
starfi flokkanna. Hann tók undir
áskorun Krúsjeffs-stjórnarinnar
um að boðað verði til alþjóðaráð-
stefnu kommúnista til að ræða
ágreiningsmálin, og lagði áherzlu
á frelsi og jafnrétti flokkanna. I
Moskvu er litið svo á þessa yfir-
lýsingu Brezhnevs að hún muni
auðvelda Kínverjum að ganga til
móts við stefnu Sovétríkjanna.
Að öðru leyti vék Brezhnev ekki
i að deilu Kínverja og Rússa í
Geimskotið mistókst
Kennedyhöfða, Florida, 6. nóv.
(AP-INTB)
TILRAUN bandarískra vísinda-
manna til að senda gcimfariö
Mariner 3 til Mars hefur mis-
tekizt. Vonast vísindamennirnir
til að geta gert næstu tilraun til
rannsókna á plánetunni Mars
innan tvegigja vikna.
Ekki er unnt að segja nákvæm-
lega hvenær næsta tilraun verð-
ur gerð, og fei það eftir því
hvað rannsóknir sýna að hafi
verið orsök þess að tilraunin með
Mariner 3 mistókst. En margt
bendir tii þess að geimfarið hafi
ekki losað sig við hlif úr trefja-
gleri, sem átti að verja það gegn
þrýstingi á leiðinni út úr gufu-
hvolfinu.
Mariner 3 átti að fara um
565 milljón kílómetra leið á
átta og hálfum mánuði, og taka
myndir af Mars úr tæplega 14
þúsund km. fjarlægð. . Afstaða
Mars til jarðar er mjög heppi-
itg um þeSsar mundir, og verður
það til næstu mánaðamóta. Ef
ekki tekst að skjóta Mariner 4
loft fyrir þann tíma, verður að
tiða með tilraunina í tvö ár.
ræðu sinni, og ekki nefndi hann
Krúsjeff á nafn.
Brezhnev vék nokkrum orðum
að sambúðinni yið Bandaríkin og
fagnaði ósigri Barry Goldwaters
í forsetakosningunum þar í
landi. Lýsti hann því yfir að
Sovétríkin hefðu fullan hug á
auknu samstarfi við Bandaríkin
á því að treysta friðinn í heim-
inum. Vöktu þessi orð mikinn
Framh. á bls. 3
(hafa þær kostað um 1.5 millj
jónir punda (um 180 millj. kr.)
. Sagði dr. F. J. Wilkins, for-
Jstöðumaður Glaxo rannsókn-
Jarstöðvarinnar. að lyfið hafi.
verið reynt á 200 sjúklingum
ímeð ótrúlega góðum árangri.
'Sagði hann meðal annars frái
leinu tilfelli þar sem sjúkl-
|ingurinn þjáðist af heilabólgu
koig öll önnur lyf höfðu reynzt
í árangurslaus. Var sjúklingn-
'um þá gefið Ceporin, sem
)leiddi til undrunarverðs bata
ieftir aðeins _tvo sólarhringa.
[Lagði dr. Wilkins áherzlu á
Jað ekki hafi orðið vart við
Jneina eftirkvilla vegna not-
)kunar lyfsins nýja.
Lyndon B. Johnson, Bandaríkjaforseti, fylgdist með talningu
atkvæða eftir forsetakosningarnar sl. þriðjudag í hóteli einu í
Austin, Texas. Var mynd þessi tekin er forsetahjónin komu til
Austin frá búgarði sinum að kvöldi kosningadagsins.