Lesbók Morgunblaðsins - 07.05.1961, Blaðsíða 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
255
Neckam með skýringuna. Hann
sagði að það kæmi fyrir, að mjög
gamlir hanar ættu egg, skráp-
tuðra ungaði því svo út og úr því
kæmi basiliki. Þess vegna mætti
basiliki ekki heyra hanagal, þá
dræpist hann. Á myndum er
basiliki sýndur sem hani með
skriðdýrshala.
í grískri goðafræði voru ýmsar
verur, sem að hálfu leyti voru
menn en að hálfu dýr. Satyrar
voru með kiðfætur, horn og rófu.
Kentárar voru menn niður að
mitti, en hestur þar fyrir neðan.
En Minotaur var maður með
nautshöfuð.
Þá má nefna slíkar furðuskepn
ur sem varðhundinn Cerberus hjá
Helju, sem hafði þrjú höfuð, en
hár hans voru snákar. Þá var
ófreskjan Chimaera, sem var ljón
að framan, geit að aftan og með
drekasporð. Bellerophon lagði
þessa ófreskju að velli, en naut
þess að hann var á fljúgadi hest-
inum Pegasus, sem var eitt furðu-
dýrið enn.
Auk þessa voru til alls konar
sjóskrímsli, svo sem Tritonar, sem
höfðu mannsmynd niður að mitti,
en sporð þaðan, og líktust þar
um hafmeyunum. Ófreskjan Scylla
sat fyrir sjómönnum í Messina-
sundi hjá Sikiley. Homer sagði að
hún væri með tólf fætur og sex
höfiíð á löngum hálsum og í hverj
-um haus þrjár raðir að vígtönn-
um. En Virgill sagði að hún
væri í kvenmannslíki með stökk-
ulshöfuð.
Hér í norðurhöfum var nóg af
sjóskrímslum, eins og sjá má á
Konungsskuggsjá. En merkilegasta
sjóskrímslið úr norrænni goða-
fræði er Jörmungandur, eða Mið-
garðsormur, sem hringar sig um
jörðina og bítur í sporð sér.
Björn Dúason;
„£ g vil elska mitt land"
Seinasta
myndin af
próf. séra
Bjarna Þor-
steinssyni. —
Hann var
heiðursborgari
Siglufjarðar-
kaupstaðar og
heiðursfélagi
Karlakórsins
„Vísis“.
FYRIR nokkrum mánuðum efndi
Sigurður Benediktsson frá Barna-
felli í Þingeyjarsýslu til bóka-
uppboðs í Reykjavík og seldist
allt, sem í boði var. Sigurður er
mesti afbragðsmaður að mér er
sagt. Meðal annars, sem hann
hefir unnið sér til ágætis — auk
þess að selja hæstbjóðanda list-
muni og fágætar bækur, er að
bjarga móður sinni og bróður úr
bráðri lífshættu, þá aðeins 13 ára
að aldri.
En það var ekki þetta afrek,
sem ég ætlaði um að skrifa, held-
ur hitt, að á einu af þessum bóka-
og listmunauppboðum, sem Sig-
urður heldur af og til í Reykja-