Fréttablaðið - 10.12.2005, Blaðsíða 16
10. desember 2005 LAUGARDAGUR
Hreiðar Már Sig-
urðsson, forstjóri
KB banka, er meðal
þeirra sem stefna
hraðbyri að því að
komast í hóp 100
áhrifamestu manna
á evrópskum fjár-
málamarkaði. Tíma-
ritið Financial News
setti Hreiðar Má í
22. sætið yfir rísandi
stjórnur á fjármála-
markaði Evrópu.
Tímaritið heldur
lista yfir hundrað
áhrifamestu menn
í fjármálaheimin-
um í Evrópu, en listi
hinna rísandi stjarna
er listi yfir fólk undir
fertugu sem líklegt
er til að verma aðal-
listann í framtíðinni.
Hreiðar Már hefur
þrátt fyrir ungan
aldur verið lengi í
eldlínu viðskiptanna.
Hann byrjaði hjá
Kaupþingi meðan
hann var enn í námi.
Kaupþing þrosk-
aði hratt sitt fólk og
meðal þeirra sem
þar stigu sín fyrstu
skref hjá Kaupþingi
má nefna Bjarna
Ármannsson, for-
stjóra Íslandsbanka,
og Þórð Má Jóhann-
esson, forstjóra
Straums - Burðaráss
sem báðir eru á fer-
tugsaldri.
Hreiðar Már er
alinn upp í Stykk-
ishólmi og vann í
fiski eins og flest-
ir jafnaldrar hans
úti á landi. Hann er
ekki af efnafólki en
viðskiptaáhugi lét
snemma á sér kræla. Hann þótti
snemma sýna viðskiptavit og á
unlingsárum var hann lunkinn í
að kaupa og selja bíla, án efa með
einhverjum hagnaði.
Hann var vinsæll í hópi jafn-
aldra sinna og skar sig ekki
mikið úr. Hann átti létt með nám
en er frekar maður athafna en
að vera líklegur til þess að velja
akademíuna sem vettvang sinn.
Tveir skólabræðra hans í Stykk-
ishólmi gerðust hins vegar lang-
skólamenn á sviði hagvísinda,
doktorarnir Jón Þór Sturluson,
hagfræðingur hjá Rannsóknar-
setri verslunarinnar, og Ásgeir
Jónsson, hagfræðingur greining-
ardeildar KB banka.
Hreiðar Már þótti kunna sig
vel og hafa góða framkomu. Til er
saga af því þegar hann var ásamt
félögum hans í eðlisfræðitíma í
Stykkishólmi. Þá helltist niður
eldfimur vökvi svo að kviknaði í.
Þeir félagar hlupu niður á kenn-
arastofu, þar sem Hreiðar Már
stillti sér upp og spurði kurteis-
lega: „Gætum við fengið eins og
eitt slökkvitæki?“
Á háskólaárunum var Hreiðar
Már í Stúdentaráði fyrir Vöku.
Þar voru með honum núver-
andi kollegar hans, þeir Bjarni
Á r m a n n s s o n ,
forstjóri Íslands-
banka, og Sigurjón
Þ. Árnason, banka-
stjóri Landsbank-
ans. Hreiðar Már
hefur ákveðnar
skoðanir og fara
sjálfsagt fæstir í
grafgötur um að
hann er maður
einkaframtaksins.
Undir hans stjórn
hefur KB banki
farið fremstur í
samkeppni við
Íbúðalánasjóð og
ekki farið leynt að
KB banka mönn-
um þykir sá sjóð-
ur til óþurftar í
núverandi mynd.
Hreiðar Már er
léttur í framkomu
og stundum nokk-
uð strákslegur.
Bak við þennan
léttleika leynist
hins vegar harður
samningamaður
sem hvikar ekki
frá því að verja
hagsmuni bank-
ans. Hreiðar Már
og Sigurður Ein-
arsson, núverandi
stjórnarformað-
ur bankans, hafa
unnið náið saman
á undanförnum
árum. Þeir vinna
vel saman og einn
af lyklunum að
velgengni bankans
hefur verið hversu
samstíga þeir eru.
Meirihluti þeirra
sem nú eru í for-
ystu KB banka eru
félagar sem hafa
unnið saman frá
þvi að Kaupþing
var lítið og djarft verðbréfafyr-
irtæki.
Þessi hópur þótti á sinni tíð
djarfur í ákvörðunum og var ekki
vel séður meðal hinna dannaðri
og eldri í árdaga markaðarins.
Kaupþing keypti á sínum tíma
hlut í Eimskipafélaginu af mikl-
um móð og ógnaði með því valda-
jafnvægi í viðskiptalífinu. Ráð-
andi aðilar þar vörðust með því
að láta félagið kaupa bréf til að
verjast. Hagnaðist Kaupþing vel
á gjörningnum, ýmsum til mik-
illar armæðu. Kaupþing reyndi
líka á sínum tíma að komast yfir
Fjárfestingarbanka atvinnulífs-
ins með því að safna kennitölum.
Sú ráðstöfun kom þeim í ónáð hjá
valdamiklum mönnum í stjórn-
mála- og viðskiptalífinu.
Enda þótt Kaupþing hafi
grætt peninga á slíkum leik-
fimiæfingum liggur velgengnin
fremur í skýrri stefnu bankans
og öflugum stuðningi við þau
fyrirtæki sem Kaupþing valdi
að styðja í uppbyggingu og útrás.
Stjórnendur bankans og Hreið-
ar Már meðtalinn hafa þroskast
með aukinni stærð bankans og
þeirri ábyrgð sem henni fylgir.
KB banki lýtur í dag stjórn hóps
undir forystu Hreiðars Más sem
er í senn ungur að árum og með
mikla reynslu.
Sem stjórnandi þykir Hreiðar
Már afar vinnusamur og fljótur
að átta sig. Hann er með yfir-
burðaþekkingu á reikningshaldi,
fljótur að greina ársreikninga og
ótrúlega minnugur á tölur. Hann
þykir góður í að deila ábyrgð og
hefur það einkennt bankann að
stjórnendum sviða bankans er
treyst fyrir ábyrgðinni og eru
bakkaðir upp af forystu bank-
ans. ■
MAÐUR VIKUNNAR
Strákslegur og
kurteis harðjaxl
HREIÐAR MÁR SIGURÐSSON, FORSTJÓRI KB BANKA
����������������������������
���������������������������
������������������
H blaelgar ›
Hefurflúsé›
DV í dag
Sonurinn skírður Hektor Bergmann
Bls. 28
Bls. 30-31
Friðrik Ómar
Var feitur
og lagður
í einelti
KATLA
MARGRÉT
STELPA
Í PANIK Á
NARÍUNUM
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 283. TBL. – 95. ÁRG. – VERÐ KR. 295
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2005
Helgarblað Elíza eyðirjólunum í
London
Gáfu jólagjafir
sínar í
þróunar-
hjálp
UNNUR STEINS
Ingvi Rafn er með
Garðar Gunnlaugs og Ásdís Rán
Neitar
að lifa í
lyginni
Bls. 37
Bls. 4
Bls. 32-33
Ólétt
að Unni
Birnu í
Miss World
alnæmi
Unnur Steinsson er ásamt eiginmanni sínum Ás-geiri Ásgeirssyni stödd í borginni Sanya í Kína, þarsem hún styður við bakið á Unni Birnu dóttursinni, sem stígur á svið í Miss World-keppninni.Unnur segir okkur allt af létta í Helgarblaði DV.
Bls58
Bls53
Stóð við bakið á dóttur sinni í Kína ásamt nýja eiginmanninum
?
UNNUR STEINS
ÓLÉTT AÐ UNNI
BIRNU Í MISS
WORLD
helgar augl 9.12.2005 21:00 Page 3