Fréttablaðið - 30.11.2007, Side 102

Fréttablaðið - 30.11.2007, Side 102
70 30. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 BESTI BITINN Í BÆNUM LÁRÉTT 2. pest 6. ógrynni 8. langar 9. hola 11. þurrka út 12. rót 14. slappi 16. býli 17. hópur 18. angan 20. fyrir hönd 21. stígur. LÓÐRÉTT 1. fuglsnef 3. tveir eins 4. gufuskip 5. hamfletta 7. heilladrjúgur 10. mál 13. mas 15. innyfla 16. strit 19. eldsneyti. LAUSN LÁRÉTT: 2. kvef, 6. of, 8. vil, 9. gat, 11. má, 12. grams, 14. slaki, 16. bæ, 17. lið, 18. ilm, 20. pr, 21. slóð. LÓÐRÉTT: 1. gogg, 3. vv, 4. eimskip, 5. flá, 7. farsæll, 10. tal, 13. mal, 15. iðra, 16. bis, 19. mó. „Það var annað hvort þeir eða Hairdoctor,“ segir Dr. Gunni, sem hefur fengið hljómsveit- ina Dr. Spock til að flytja fyrir sig lagið Hvar ertu nú? í næsta þætti Laugar- dagslaganna. „Mig langaði að gera eitthvað nýtt í minni Eurovision-ferð því það er greinilegt að fólk vill eitthvað gott flipp,“ segir Gunni, sem segir að lagið sé loðið á bakinu og með hár á pungnum. „Þetta er karlmann- legt sjómannarokk sem skipt- ist í tvo kafla. Annars vegar í brjálað óveður með stormi og slarki og hins vegar fellur allt í ljúfa löð þess á milli með spegilsléttum sjó. Það er verið að reyna að koma íslenska sjómanninum í Euro vision. Það er miklu meira Ísland að syngja sjipp og hoj heldur en hó hó og hey hey,“ segir Gunni, sem tapaði fyrir olíubornum Eurovison- slagara Barða Jóhannssonar í síðustu lotu. Hvar ertu nú? er þriðja og síð- asta lagið sem Dr. Gunni sendir í Laugardagslögin og hefur hann ekki haft erindi sem erfiði hingað til. Í þetta sinn etur hann kappi við Magnús Þór og Hafdísi Huld og vonar það besta. „Þetta er eina rokklagið síðan Botn- leðja var með sitt lag. Þetta er bara miklu þyngra og ljótara en samt er þetta ekkert óskiljan- legt villimannaöskur. Ég hef fulla trú á að það séu einhverjir rokkarar ennþá á meðal vor. Ég vona að það sé ekki alveg búið að raka punginn á öllum.“ - fb Doktorar með órakaða punga DR. SPOCK Hljóm sveitin Dr. Spock flytur sjómannarokk Dr. Gunna. Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrr á árinu kom framleiðslufyrir- tækið ITN Factual hingað til lands og fylgdist með Magnúsi Scheving, forstjóra Latabæjar, í leik og starfi. Í tilkynningu frá fyrirtæk- inu kom fram að þættirnir bæru nafnið The World‘s Most Success- ful og ekki væri hægt að komast hjá því að greina frá miklum upp- gangi Latabæjar og útrás þessarar alíslensku hugmyndar. Þátturinn verður frumsýndur í Ástralíu á allra næstu dögum og verður á dagskrá með reglulegu millibili en talið er að yfir fimmtíu milljónir manna muni sjá hann. En það hefur sem hefur vakið einna mestu athyglina er að þátt- urinn hefur nú fengið nýtt nafn og heitir í dag The World‘s Richest. Magnús hefur hingað til ekki gefið mikið fyrir þær vangaveltur að hann hafi hagnast fjárhagslega á þessari hugmynd sinni, síður en svo. Því kom nafngiftin óneitan- lega nokkuð spánskt fyrir sjónir enda gefur hún allt annað til kynna. Heimildir Fréttablaðsins herma að Magnús komist þó ágætlega að orði þegar hann útskýrir tilveru sína í þættinum. „Ég er ekki ein- göngu ríkasti maður í Evrópu heldur ríkasti maður í heimi. Ekki samt í bókstaflegum skilningi þess orðs, langt því frá. Ég nýt hins vegar þeirra forréttinda að fá að ferðast út um allan heim og gleðja börn með leik og söng,“ segir Magnús í þættinum. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá er Magnús nú á ferða- lagi um Suður-Ameríku og varð töluvert fjaðrafok í kringum komu hans. Magnús var eltur á röndum af fólki í Chile sem vildi fá álit hans á hinu og þessu og krakkar stoppuðu hann á götum úti til að fá eiginhandaáritanir og vildu fá að leika sínar eigin útfærslur af Lata- bæ, íklædd búningum hetjanna sinna. freyrgigja@frettabladid.is MAGNÚS SCHEVING: HEIMILDARÞÁTTUR SÝNDUR Á DISCOVERY Magnús segist vera ríkasti maður í heimi MAGNÚS Er í þættinum World‘s Richest People sem áður hét World‘s Most Successful People en ekki er þó allt sem sýnist. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Vefþulan Ragga var tekin í notkun á netinu fyrir hálfum mánuði en nafn hennar er til komið af því að fyrrverandi sjónvarpsþulan Ragn- heiður Elín Clausen ljáði verkefn- inu rödd sína. Ragga er þula sem les hvaða texta sem er á íslensku á netinu og er fyrst og fremst ætluð íslensku námsmönnum sem eiga við lestrarörðugleika að stríða. En fleiri nýta sér hæfileika vefþul- unnar. „Við fáum allt að tvær beiðnir á sekúndu á álagstímum og Ragga les að jafnaði um sex þús- und lestra á dag,“ segir Þórarinn Stefánsson, framkvæmdastjóri Hexia.net, sem á og rekur vefþul- una. „Við erum alveg gáttuð enda héldum við að við værum að búa til lítið og sætt tól fyrir fólk með lestrar örðugleika. Lauslega ágisk- að er sá hópur um þriðjungur not- enda, Þriðjungur er fólk að grínast og býr til gervifréttir en loks eru það strákpjakkar sem láta Röggu klæmast við sig,“ segir hann. Þórarinn segist ekki líta svo á að þetta sé neikvæð þróun. „Ekki ef fólki finnst þetta skemmtilegt og einhver brosir að þessu. Okkur finnst óskaplega gaman að hafa búið Röggu til og fylgjast með þró- uninni. Fólki dettur ýmislegt í hug. Sumir hafa til dæmis búið til hringitóna fyrir síma sem eru mis- jafnir eftir því hver hringir, til dæmis: „Guðmundur, mamma þín!“ og „Guðmundur, konan þín er að hringja“. Kerfið rétt svo annar notkuninni. Við megum varla líta af því og þurfum að fara að bæta við búnaði. En auðvitað er þetta skemmtilegt, að færri komist að en vilji. Við áttum ekki von á því og brosum þess vegna breitt þessa dagana.“ - sók Vefþula klæmist við notendur SEX ÞÚSUND LESTRAR Á DAG Vefþulan Ragga annar varla eftirspurn og sinnir sex þúsund beiðnum á dag að jafnaði. GUNNAR HJÁLMARSSON Tónlistarmaður, betur þekktur sem Dr.Gunni „Besti bitinn er hjá Sollu frænku minni. Hún er góður kokkur og góður gestgjafi.“ Bergur Ebbi Benediktsson, meðlimur í Sprengjuhöllinni. Íslendingar virðast vera sólgnir í stórtónleika og þá sérstaklega yfir jólin þegar verslunaræðið rennur á þjóðina. Og það virðist þegar vera hafið ef marka má fréttir af nýárstón- leikum Bubba Morthens. Slík var eftirspurnin eftir miðum að færri komust að en vildu og er þegar að verða uppselt. Ísleifur B. Þórhalls- son og félagar hjá Concert eru hins vegar þaulvanir þessum vinsældum og voru ekki lengi að bæta við aukatónleikum þannig að aðdáend- ur kóngsins þurfa engu að kvíða. DVD-diskur Auðuns Blöndal þar sem hann hrekkir fólk í fyrsta Tekinn-þættinum er komin út. Þættirnir vöktu gríðar lega athygli og nutu mikilla vinsælda enda þykir fátt jafn fyndið og að sjá fræga fólkið gera sig að fíflum fyrir framan myndavél arnar. Hins vegar er það útlitið á disknum sem hefur vakið hvað mestu athyglina núna en óprúttnir aðilar hafa þóst greina að myndin á forsíðunni hafi verið tekin fyrir þáttaröð númer tvö og að grínistinn sé með tvo putta á lofti því til staðfestingar. Og það eru fleiri á lofti um þessar mundir. Samkvæmt heimildum Mannlífsvefjarins skemmtilega hefur Ásgeir Davíðsson, betur þekktur sem Geiri á Goldfinger, nefnilega bryddað upp á því að lána fínum frúm Kópavogsbæjar súlurnar sínar á skemmtistaðnum. Svokallað súlu-fitness nýtur mikilla vinsælda og hefur Geiri komið til móts við skort á súluskorti með því að opna staðinn sinn. Heimildir Mannlífs herma þó að fötum sé hins vegar ekki fækkað. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI Gnoðarvogi 44, s. 588 8686. Opið 10-18:15 laugardaga 11-14. Þú færð aðeins það besta hjá okkur STÓR HUMAR, HÖRPUSKEL, LÚÐA RISARÆKJUR, SKÖTUSELUR, LAX NÝLÖGUÐ SJÁVARRÉTTASÚPA.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.