Fréttablaðið - 30.11.2007, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 30.11.2007, Blaðsíða 12
 30. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR STYRKTARFÉLAG LAMAÐRA OG FATLAÐRA H R I N G U R Hobbyhúsið ehf • Dugguvogi 12 • s: 517 7040 Opnunartími: Mánudaga - föstudaga 10 - 18 Laugardaga og sunnudaga Lokað Hobby T 500, T 600, T 650. Bæklingarnir komnir fyrir húsbíla 2008. Pantanir óskast staðfestar. T 650 FLC Siesta LÖGREGLUMÁL Fíkniefni að götu- virði tæplega fimm milljarðar króna voru að sögn Ríkisendur- skoðunar gerð upptæk á Íslandi í fyrra. Það samsvarar sextán þús- und krónum á hvern Íslending. Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoð- unar kemur fram að þótt neysla fíkniefna hafi aukist á Íslandi gangi vel að koma í veg fyrir inn- flutning fíkniefna miðað við það sem gerist í nágrannalöndum okkar ef tekið sé tillit til fjölda íbúa. Kemur fram að árunum 2003 til 2006 hafi verið komið upp um 493 tilraunir til fíkniefnasmygls til Íslands. Þó megi nýta betur það fjármagn sem fer í baráttuna gegn fíkniefnum og auka eftirlit. „Mikilvægt er að lögregla og tollyfirvöld sameini krafta sína enn frekar svo að tryggt sé að upplýsingar og þekking nýtist sem best,“ er ein ábending Ríkis- endurskoðunar. Þá bendir Ríkiendurskoðun á þann möguleika að fara að dæmi Norðmanna og stofna gagnabanka um gjaldeyriskaup og peninga- flutninga milli landa. Herða þurfi reglur um það reiðufé sem fólki sé leyft að ferðast með landa á milli. „Lagt er til að sú hámarksupp- hæð í erlendri mynt sem hver far- þegi má taka með sér úr landi án þess að skýra flutninginn verði lækkuð,“ segir Ríkisendurskoðun sem kveður þessa upphæð í dag vera 15 þúsund evrur, sem svarar til um 1.360 þúsund króna. Í Evr- ópusambandslöndunum sé þessi upphæð mun minni eða 10 þúsund evrur, sem svarar til um 910 þús- und krónum. Ríkisendurskoðun segir dæmi um að starfsfólk flutningafyrir- tækja hafi tekið þátt í fíknefna- innflutningi og nefna sem dæmi það sem kallað var Stóra fíkni- efnamálið árið 1999. Þá tóku tveir starfsmenn Samskipa þátt í miklu smygli. Ríkisendurskoðun segir að minnka þurfi hættuna á því að starfsfólk á tollvöru- og hafnar- svæðum taki þátt í fíkniefna- smygli. „Einn liður í því gæti verið að löggæsluyfirvöld athug- uðu ávallt bakgrunn þeirra sem starfa á slíkum svæðum, til dæmis fastra starfsmanna tollvöru- geymslna og hafna, með tilliti til hugsanlegrar aðildar þeirra að fíkniefnabrotum,“ segir í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Að lokum má geta þess að Ríkis- endurskoðun segir að herða þurfi eftirlit með tilteknum flutnings- leiðum fíkniefna til landsins. Ábendingar um það séu hins vegar settar fram í sérstakri trún- aðarskýrslu til yfirvalda. - gar Bakgrunnur starfs- fólks verði kannaður Ríkisendurskoðun leggur til bætt öryggi á tollsvæðum og að flutningur pen- inga úr landi verði takmarkaður til að koma í veg fyrir fíkniefnainnflutning. Fíkniefni fyrir fimm milljarða króna voru gerð upptæk á Íslandi í fyrra. TOLLGÆSLAN Ríkisendurskoðun vill að tollyfirvöld og lögregla sameini krafta sína betur í baráttunni gegn fíkniefnasmyglurum. MENNTAMÁL Íslenskir nemendur í fjórða bekk eru rétt ofan við alþjóðlegt meðaltal þegar litið er til lestrar og lesskilnings. Þetta kemur fram í niðurstöðum alþjóð- legu lestrarrannsóknarinnar PIRLS. Á Íslandi ná aðeins þrjú pró- sent nemenda í fjórða bekk hæsta hæfnisþrepi, eða ná að lesa og skilja texta mjög vel, en þetta hlutfall var sex prósent árið 2001. Íslendingar ná svipuðum árangri í að kenna slökustu náms- mönnunum að lesa og næst að meðaltali á alþjóðavísu. Sjö pró- sent íslenskra fjórðubekkinga ná ekki lágmarksleikni í lestri. Þessi hópur er tvö prósent hjá Svíum, þrjú prósent hjá Dönum og átta prósent hjá Norðmönnum. Sigurgrímur Skúlason, sviðs- stjóri hjá Námsmatsstofnun, segir að þetta þýði að fleiri börn nái ekki lág- markshæfni í lesleikni hér á landi en í Danmörku og Svíþjóð. „Okkur gengur síður með slökustu nemendurna en Dönum og Svíum. Það skiptir rosa- lega miklu máli í okkar þjóðfélagi að ná einhverju valdi á lestri og þessi hópur les ekki sér til gagns,“ segir hann. Stúlkur mælast að meðaltali hærri í lesleikni en drengir í þátt- tökulöndunum fjörutíu. Norður- löndin eiga það sameiginlegt að nemendur þeirra eru sterkari í beinni textaúrvinnslu en túlkun eða rökvinnslu. - ghs STEINGRÍMUR SKÚLASON Illa læsum börnum hefur fjölgað hér á landi: Fjórtánda hvert barn les sér ekki til gagns DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið dæmdur til sektargreiðslu og sviptingar ökuleyfis eftir að hann ók drukkinn á bíl sínum út í Hólsá við Siglufjörð. Félagi bíleigandans ók bifreið- inni í fyrstu í ökuferð þeirra tveggja um Siglufjarðarbæ. Báðir voru þeir undir áhrifum áfengis. Síðan tók bíleigandinn við akstrinum, sem endaði úti í á. Félaginn hefur verið dæmdur fyrir sinn þátt í málinu, en bíleigandanum var gert í Héraðs- dómi Norðurlands vestra að greiða 70.000 króna sekt til ríkissjóðs. Hann var sviptur ökuréttindum í tvo mánuði. - jss Sekt og ökuleyfissvipting: Ók fullur út í Hólsá og festist Varnargarður réði úrslitum Bæjaryfirvöld í Árborg segjast ekki vilja leyfa uppbyggingu nýs hverfis við Búðarstíg á Eyrarbakka þar sem Sigl- ingastofnun neiti að taka þátt í gerð sjóvarnargarðs framan við byggðina. EYRARBAKKI LÍFEYRISMÁL Jóhanna Sigurðar- dóttir félagsmálaráðherra segir að það séu vonbrigði að lífeyris- sjóðirnir níu sem hyggja á skerð- ingar á lífeyrisgreiðslum til öryrkja nú um mánaðamótin hafi ekki viljað taka tilboði hennar um 100 milljónir króna upp í útgjöld lífeyrissjóðanna meðan verið væri að finna framtíðarlausn í málinu. Lífeyrissjóðirnir sendu öryrkj- um bréf í sumar þar sem þeir til- kynntu um skerðingar á greiðslum til þeirra 1. desember. Skerðing- arnar byggjast nú á útreikningum launa á grundvelli launavísitölu, ekki neysluverðsvísitölu eins og áður hefur verið. Jóhanna segist hafa boðið líf- eyrissjóðunum 100 milljónir á einu ári upp í 240 milljóna útgjöld þannig að skerðing- arnar þyrftu ekki að skella á öryrkjum. Ráðherrann segir að hug- myndin hafi verið sú að forða einstakl- ingum frá skerðingum meðan verið væri að finna framtíðar- lausn. Nefnd eigi að skoða fram- tíðarlausn og einföldun á kerfinu og koma með tillögur því að staðan nú sé óviðunandi þegar öryrkjar lendi undir skerðingarhnífnum hjá bæði lífeyrissjóðum og almannatryggingum. Því sé sú niðurstaða sem kynnt var í bréfi lífeyrissjóðanna mikil vonbrigði fyrir sig. Félagsmálaráðherra sendi í lok síðustu viku bréf til allra lífeyris- sjóðanna þar sem hann bauð þeim 100 milljónir króna gegn því að þeir myndu falla frá skerðingunni. Lífeyrissjóðirnir tóku sér umhugs- unarfrest og fjölluðu um bréfið á stjórnarfundi áður en erindinu var svarað. - ghs Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra um viðbrögð lífeyrissjóðanna: Bréfið er mikil vonbrigði JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.