Fréttablaðið - 30.11.2007, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 30.11.2007, Blaðsíða 16
16 30. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR Heilbrigði fólks sem býr á götunni er bágborið. Mikil neysla áfengis og vímuefna veldur skaða á heila- starfsemi og á líffærum. Margir eiga við geðræn vandamál að stríða, en fá ekki næga aðstoð. Flestir sem búa á götunni eiga við fíkn eða geðræna sjúkdóma að stríða. Fordómar eru fyrir slíkum sjúk- dómum og ósjaldan er ábyrgðinni velt yfir á sjúklinginn sjálfan. Fólk með þessa sjúkdóma fær ekki sömu meðferð frá heilbrigð- is- og félagsmálayfirvöldum og ef það greindist með aðra sjúkdóma. Úrræðaleysi er einkennandi fyrir svör fagfólks því skjólstæð- ingar þess eru heimilislausir innan kerfisins líka. Lögreglan er frábær „Það koma svona einstaklingar til okkar en þeir koma frekar þegar fer að kólna. Þeir eru oftast í óreglu, og eru blautir, kaldir og óhreinir,“ segir Ragna Gústafs- dóttir, hjúkrunardeildarstjóri á bráða- og slysadeild í Fossvogi. „Úrræðaleysið er mjög mikið og þeir þurfa oft að sofa hér á slysa- stofunni, sem tekur mannskap frá öðrum verkefnum og pláss á deild- inni. Lögreglan er frábær í þessu. Hún hýsir fólk sem á ekkert erindi til hennar, en það er náttúrlega algjört ófremdarástand að þurfa að vísa fólki í fangelsi,“ segir Ragna. Oft þarf að byrja á því að senda fólk í sturtu og gefa því ný föt. Oft amar ekkert að því en það leitar eftir húsaskjóli. „Fæstir þeirra sem eru langt leiddir þiggja meðferð og oft er erfitt að fá inni á Gistiskýlinu eða í Konukoti þegar fólk er ofurölvi. Það verður því að sofa úr sér hér hjá okkur eða hjá lögreglunni. Þegar fólkið stoppar svona stutt við er erfitt að hjálpa því. Ég man bara eftir einu tilviki þar sem við vorum í sambandi við félagsmála- yfirvöld um búsetuúrræði,“ segir Rakel. Eiga ekki fyrir lyfjum Margir heimilislausir hafa ekki efni á nauðsynlegum lyfjum. Rakel segir það slæmt því þeir séu oftast með einhvers konar sýkingar. „Við neyðumst þess vegna til þess að gefa þeim lyfja- skammta án þess að hafa sérstaka heimild til þess,“ segir Rakel. Vilborg Oddsdóttir hefur umsjón með innanlandsaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar og aðstoðar heimilislausa þegar þá vantar lyf eða læknisþjónustu. „Alvarlegust og verst eru heil- brigðismál heimilislausra. Þeir eru útskrifaðir af spítala, jafnvel af hjartadeild með lyfseðil sem þeir geta ekki leyst út,“ segir Vil- borg. „Við leysum út lyf fyrir fólk í meiri mæli en áður og veitum því meiri aðstoð við að greiða læknis- kostnað,“ segir Vilborg og kennir hún því um að vandi fólks sé meiri en áður og lækniskostnaður hafi vaxið. Þá séu sumir þeirra sem búa á götunni ekki öryrkjar og fái því ekki afslátt á lyfjum. „Heimilislausir eru rukkaðir um þjónustu sjúkrabíla og fyrir sjúkrahússkostnað, þótt menn viti vel að þeir eru ekki borgunar- menn. Krafan er jafnvel send til lögfræðings,“ segir Vilborg. Hjúkrun færð til fólksins Að mati margra sem aðstoða heimilislausa þarf að færa heilbrigðisþjón- ustu nær þeim. „Þeim þykir oft erfitt að sækja læknisþjónustu og láta því ýmis heilsu- farsvandamál óáreitt. Það ætti að vera til opin heilsugæsla fyrir þennan hóp, líkt og tíðkast ann- ars staðar á Norður- löndum,“ segir Vil- borg, en slík þjón- usta þekkist víða um heim. Eftir ára- langa neyslu lætur líkami fólks á sjá. Meðal þeirra heilsufarsvanda- mála sem flestir neytendur glíma við eru lifrarsjúkdómar og geð- ræn vandamál. Á heimasíðu SÁÁ segir að óhóf- leg áfengisdrykkja stórauki hættu á vannæringu og skemmdum á taugakerfinu, sérstaklega í heilan- um. Þar sem langflestir sem búa á götunni eru með langt leiddan fíknsjúkdóm er ljóst að flestir þeirra eru alvarlega veikir. Valgerð- ur Rún- arsdóttir læknir á Vogi segir áhrifin mikil. „Þessar bremsur sem við þróum venjulega með okkur, eins og að borða hollt, drekka lítið og vera kurteis, fara þegar heilinn skemm- ist, svo þetta er mikill og alvarlegur sjúkdómur.“ Ekki vitað hversu lengi heimil- is lausir Íslendingar lifa en sé miðað við Bretland er meðalaldur heimilislausra við andlát um 42 ár. Geðsjúkir á götunni Stór hluti þeirra sem búa á göt- unni á við geðræn vandamál að stríða sem ýmist eru meðfædd eða áunnin vegna langvarandi neyslu. Kristófer Þorleifsson geðlæknir segir fátækustu skjólstæðinga sína oft ekki hafa efni á lyfjum, en það séu gjarnan þeir sem eigi við fíknivanda að stríða. „Lyf við alvar- legustu sjúkdómunum eru ókeypis en vafalaust eru einhverjir sem eiga ekki fyrir nauðsynlegum lyfjum,“ segir Kristófer. Hann segir geðfötluðum hættara við því að lenda á götunni en öðrum. Fólk ráfi úti allan daginn áður en það geti farið í gistiskýli og sé hættu- legt sjálfu sér og öðrum. Þá segir hann félagsmálayfirvöld ekki hafa sinnt þessum málum sem skyldi og tugir ef ekki hundruð manna bíði eftir réttum úrræð- um. Kristófer segir geðdeildir Land- spítalans finna fyrir úrræðaleys- inu. Deildirnar séu yfirfullar af fólki sem bíði þess að komast út í lífið en teppi þess í stað pláss sem hægt væri að nota til að endur- hæfa veika einstaklinga. „Það sem vantar fyrst og fremst er heimili, þjónusta og stuðningur svo fólk geti búið sjálfstætt og notið lífsins. Það vantar verndaða vinnustaði, líkt og þekkist fyrir þroskahefta. Það þarf að marka stefnu til framtíðar í þessum mála- flokki,“ segir Kristófer. Skortir ekkert nema samstarf Félagið Geðhjálp hefur undir höndum lista yfir 107 einstaklinga sem eiga í engin hús að venda, flestir geðsjúkir. „Það skortir hvorki þekkingu né fjármagn. Það sem vantar er sam- starf milli þeirra sem hafa putt- ann á púlsinum,“ segir Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri Geðhjálpar. Einstaklingar með geðraskanir og fíkn fá litla aðstoð frá kerfinu. Sveinn segir marga vera of geð- veika til að fara í meðferð eða í of mikilli neyslu til að fara á geð- deild. Hann segir vanta fleiri heimili með vakt allan sólarhring- inn líkt og Samhjálp og Reykjavíkur borg reka fyrir heim- ilislausa karla við Miklubraut 20. Náðst hefur góður árangur og segir Heiðar Guðnason, forstöðu- maður Samhjálpar, að íbúarnir séu farnir að lifa góðu lífi og njóti aðstoðar geðlækna og hjúkrunar- fræðinga þegar þörf þyki vera á því. eva@frettabladid.is Heimilislaus í kerfinu líka Alvarlegust eru heilbrigðismál heimilislausra að sögn starfsmanns Hjálparstarfs kirkjunnar. Eva Bjarnadóttir ræddi við fagfólk um heilbrigðisþjónustu fyrir heimilislausa. Í ljós kom að fólk er útskrifað af spítala án þess að önnur úrræði taki við. Heimilislausir teppa geðdeildir og eiga oft ekki heima í þeim áfengis- og vímuefnameðferðum sem boðið er upp á. Mikið ofbeldi einkennir lífið á götunni. FÓLK GÖTUNNAR II. HLUTI „Heimilislausir ein- staklingar eiga ófrá- víkjanlega sama rétt og aðrir á opinberri heilbrigðisþjónustu. Þetta er hópur sem býr við erfiðar aðstæður og því brýnt að hann hafi greiðan aðgang að heil- brigðisþjónustu,“ segir Guðlaugur Þór Þórðar- son heilbrigðisráð- herra. Spurður hvort hann vilji skoða það að færa heilbrigðisþjónustu nær heimilislausum segir ráð- herra heimilislausa, eins og aðra einstaklinga, geta sótt læknisþjón- ustu heilsugæslustöðva í því hverfi þar sem komið er á fót heimilum fyrir heimilislausa á vegum sveitarfélaganna. „Sérstök læknis- eða hjúkrunar- þjónusta fyrir heimilis- lausa á vegum stofn- ana sem undir ráðuneytið heyra hefur ekki komið til umræðu að öðru leyti en að fulltrúi frá heilsugæslunni er í stýrihóp um rekstur heimilis fyrir þennan hóp, Njálsgötuheimil- inu,“ segir Guðlaugur. „Það kæmi hins vegar vel til greina, þegar niðurstöður liggja fyrir úr könnun teymis um málefni heimilislausra á vegum félagsmálaráðuneytisins og ef ástæða þykir til, að tryggja heim- ilislausum heilbrigðisþjónustu sérstaklega. Þetta mætti til dæmis hugsa sér í tengslum við aðgerðir í þágu heimilislausra á vegum vel- ferðarsviðs Reykjavíkurborgar, sem bera ábyrgð á heimilis lausum. Í þessu sambandi verður hins vegar að hafa í huga að ekki er hægt að skikka heimilislausa ein- staklinga til að leita eftir heil- brigðisþjónustu nema með því að grípa til flókinna lagalegra aðgerða sem menn forðast í lengstu lög.“ Þá telur ráðherrann að sér- stakar aðgerðir af hálfu sveitar- félaga til að koma til móts við heimilislausa ættu af hálfu ráðu- neytisins að tryggja að heimilis- lausir gætu leyst út lífsnauðsyn- leg lyf. HEIMILISLAUSIR EIGA ÓFRÁVÍKJANLEGAN RÉTT Á ÞJÓNUSTU GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON FORDÓMAR Í HEILBRIGÐISKERFINU „Í Konukoti er bara hugsað fyrir líkamlegum þörfum en við höfðum séð fyrir okkur að þær fengju and- lega hjálp líkt og karlarnir fá á Njáls- götu 74,“ segir Eva Lind. Hún bjó eitt sinn á götunni en hefur undanfarin fimm ár barist fyrir betri þjónustu við heimilislausar konur. „Við vildum að þar yrðu læknir, sálfræðingur, prestur, hjúkrunarfræðingur og félagsráðgjafi. Að konum yrði boðið upp á pilluna. Konukot átti að vera þjónustumiðstöð þeirra sem gætu ekki varið rétt sinn sjálfar.“ Eva Lind segir ekki ástæðu til þess að hafa opið neyðarskýli þar sem aðeins brýnustu þörfum sé mætt. Konur geti alltaf fundið sér stað til að gista á og frían mat en þær leiti eftir andlegri aðstoð þegar þær gisti í Konukoti. „Sumar konur ná sér aldrei. Þarna úti er mjög mikið um barsmíðar, nauðganir og slagsmál og konur eru notaðar sem gjaldmiðill. Eftir tvö áföll á dag í kannski tuttugu ár þarf að gefa konum tíma til að leysa úr vandamálum sínum.“ Eva Lind segir mikla fordóma í samfélaginu gagnvart heimilis- lausum og þar sé heilbrigðiskerfið engin undantekning. „Samfélagið lítur þannig á að fólk hafi valið sér þetta. En enginn ætlar sér það hlutskipti að vera vændiskona og deyja úr neyslu. Heilbrigðisgeirinn er með mestu fordómana. Þegar ég átti barnið mitt fékk ég yfir mig skítaskúr ef ég brá mér frá að reykja. Starfsfólkið á fæðingardeildinni spurði mig hvort það væri svona sem ég ætlaði að hugsa um barnið. Heilbrigðisgeirinn á að vera með mestu upplýsingar en þar eru mestu fordómarnir. Fólkið fær mestan skilning hjá sálfræðingum og fagfólki sem hefur kynnt sér alkóhólisma, en það hafa fáir læknar gert.“ Eftir langa dvöl á götunni er félagsleg hæfni fólks mjög skert. Eva Lind segir mikla þörf á starfsendur- hæfingu fyrir fólk sem vill koma undir sig fótunum á ný. Þá segir hún dagsetur Hjálpræðishersins fyrir heimilislausa, sem var opnað nýlega, vera mjög gott og óskar eftir að koma á framfæri þökkum fyrir það. KONUKOT Um 80 konur hafa gist í Konukoti frá upphafi. FÍKNSJÚKDÓMAR Flestir heimilis- lausir glíma við fíknsjúkdóma og sögðu margir viðmælendur Fréttablaðsins að ekki væri hægt að lifa af á götunni nema vera í neyslu. Á Bretlandi er meðalaldur við andlát þeirra sem eru á göt- unni 42 ár, en ekki er vitað hver meðal aldurinn er á Íslandi. Heimilislausir eru rukkaðir um þjónustu sjúkrabíla og fyrir sjúkrahúskostnað, þótt menn viti að þeir eru ekki borgunarmenn. VILBORG ODDSDÓTTIR HJÁLPARSTARFI KIRKJUNNAR Á morgun: Heimilisleysi er ástand en ekki lífsstíll
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.