Fréttablaðið - 30.11.2007, Síða 60

Fréttablaðið - 30.11.2007, Síða 60
BLS. 12 | sirkus | 30. NÓVEMBER 2007 Glamúrleg glimmerdress og klæðileg skvísuföt Það var mikið um dýrðir þegar nýja Company‘s-verslunin var opnuð í Kringlunni í vikunni og var blásið til dýrindis tískusýningar. Þar sýndu fyrirsæturnar það nýjasta í vetrar- tískunni 2007-8 en þar var svarti litur inn áberandi ásamt fjólubláum og gráum og metal-litum. Í verslun- inni má finna fatnað frá In Wear, Malene Birger, Part Two, Designers Remix og Soak í sátt og samlyndi. - MMJ FJÓLUBLÁTT, SATÍN OG LEGGINGS Er hægt að biðja um eitthvað smartara? 100% SKVÍSA Leður er eitt af því sem enginn má missa af í vetur en töluvert er um leðurkjóla í vetrartísk- unni. DALLASFÍLINGUR Pamela Ewing hefði getað átt þennan kjól í fataskápnum sínum en hann er frá Designers Remix sem er eitt vinsælasta merkið í Skandinavíu um þessar mundir. HNÉBUXUR ERU EKKI DOTTNAR ÚR TÍSKU COMPANYS COMPANYS COMPANYS KYNNTI SÉR HELSTU TRIXIN Dagur B. Eggertsson borgarstjóri ætti að geta fengið mörg góð ráð í bók þeirra Einars og Arnars Eggerts. Þess má geta að sá síðar- nefndi er frá sama bæjarhluta og borgarstjóri, stórborginni í úthverfinu, sjálfu Árbæjarhverfinu. Einar Bárðarson og Arnar Eggert Thoroddsen héldu magnað útgáfuteiti á Apótekinu í tilefni af útgáfu bókar þeirra, Öll trixin í bókinni. Bókin hefur fallið í góðan jarðveg enda stútfull af skemmti- legum sögum af ferli og störfum Einars Bárðarsonar. Margt var um manninn í teitinu og það var rokk- að feitt að sið Bárðarsonar. Með allt á hreinu SAMHENT HJÓN Ragnhildur Eiríksdóttir og Þorgrímur Þráinsson létu sjá sig í boðinu. Ragnhildur hefur sterka brynju enda standa mörg spjót á henni þessa dagana. Hún tekur því með stóískri ró enda heldur hún með sínum manni og er stolt af honum. TÓNLISTARMAÐURINN SEM SKEMMTIR BANKAFÓLKINU Jónsi og Rósa eiginkona hans ásamt sonum sínum, Trausta og Ara. Gott að Jónsi er kominn í bankann, samstarfsmönnum hans veitir ekki af smá skemmtun þegar hlutabréfa- markaðurinn er á stöðugri niðurleið og umhverfið skelfur vegna úrvalsvísitölunnar. Sirkusstjórinn tók á móti helginni í fyrra fallinu og virtust barflugur bæjarins hafa ákveðið að gera hið sama. Það var margt um manninn á Ölstofu Kormáks og Skjaldar á fimmtudagskvöldinu. Þar voru þau Silja Hauksdóttir leikstýra og Eggert Ketilsson leikmyndahönnuð- ur hress að vanda ásamt góðu gengi kvikmynda- gerðarfólks. Samfylkingarkon- an Bryndís Ísfold og eiginmaður hennar, Torfi Frans Ólafsson, létu sig ekki vanta og ræddu mál líðandi stundar við gesti og gangandi. Arkitektinn og sjarmatröllið Halldór Geirharðsson, bróðir sjálfs Kormáks, átti Ölið þetta kvöld og var umkringdur fögrum fljóðum, Á meðan þeir Helgi Seljan, verðandi faðir og Kastljósstjarna, og Karl Th. Birgisson, ritstjóri tímaritsins Herðubreiðar, réðu ráðum sínum ábúðarfullir í reykskýli Ölsins. En reykskýlið góða virðist vera að festa sig í sessi sem eitt helsta gáfumannaþing höfuðborgarinnar. Föstudagskvöldinu var eytt í hugguleg- heitum á B5. Þar var Sverrir Þór Sverris- son, leikari og skemmtikraftur, sem naut sín í góðum félagsskap æskuvina sinna. Á laugar- dagskvöldinu lét Sirkusstjórinn hafa sig út í einn drykk fyrir svefninn og í þetta skiptið var ferðinni heitið á Vínbarinn. Hagfræðingurinn Sigurður Snævarr og Ólafur Harðarson prófessor höfðu gefið sér tíma til að líta upp úr bókunum og léku á als oddi með samstarfsfélögum sínum úr háskólanum. Hinrik Ólafsson leikari gerði sér sömuleiðis glaðan dag og var hinn hressasti á Vínbarnum en það var Sirkusstjórinn ekki og hélt því heim á leið óvenju snemma þetta laugardagskvöld. Hann datt þó í lukkupottinn því Séð og Heyrt ritstjórinn, Loftur Atli Eiríksson, var á bíl og keyrði Sirkusstjórann heim að dyrum. Annars hefði hann líklega dáið úr kulda enda teljast pallíettuskreytt jakkaföt ekki til vetrarklæðnað- ar. ■ Hverjir voru hvar?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.