Fréttablaðið - 30.11.2007, Side 46

Fréttablaðið - 30.11.2007, Side 46
BLS. 6 | sirkus | 30. NÓVEMBER 2007 „Ég hef ekki náð fyrra formi eftir barnsburðinn og reyni því að ganga í fötum sem sýna ekki hverja einustu fellingu,“ segir Ellý Ármanns. Hún vill þó meina að hún gangi alltaf í sömu föt- unum eftir að hún átti dóttur sína, Ellýju yngri, fyrr á árinu. „Ég er mjög hjátrúarfull að eðlisfari og ef mér gengur vel í ein- hverjum ákveðnum fötum á ég til að nota þau óspart,“ upplýsir Ellý um hjá- trú sína sem teygir anga sína víða. Ellý hefur verið áberandi í íslensku fjöl- miðlalífi um árabil og er hvað þekkt- ust fyrir þulustörf sín á Ríkissjónvarp- inu þar sem hún heillaði landsmenn með hlýlegri framkomu og sendi heita strauma inn á íslensk heimili. Eftir að Ellý yfirgaf hinn eftirsótta þulustól hefur hún haft í mörgu að snúast en Ellý skrifar daglega fyrir 24 stundir og sér um Sviðsljós- ið á mbl.is og svo sinnir hún móðurhlutverk- inu. „Fatastíll minn er ein- faldur, þægi- legur og svart- ur. Ég er eiginlega undan- tekningarlaust í gallabuxum og reyni að brjóta upp klæðnaðinn með mismunandi yfir- höfnum,“ segir Ellý um fatastíl sinn. „Kápur, jakkar og úlpur verða að telj- ast minn helsti veik- leiki þegar kemur að fatakaupum og ég virðist alltaf geta bætt yfirhöfnum í safnið.“ Henni finnst að allar konur ættu að eiga eina hlýja yfirhöfn fyrir hinn íslenska vetur. „Svarta Northface- úlpan mín er í miklu upp- áhaldi hjá mér þessa dagana og ég fer varla úr henni. Úlpan gengur næstum því við allt og ekki spillir fyrir hversu hlý hún er, það liggur við að ég gæti verið allsber undir henni,“ segir Ellý sem gæti eflaust staðið af sér kulda og gadd Norðurpólsins í úlpunni góðu. „Vinkonur mínar eru mjög ánægðar með mig í úlpunni. Ég hef það þó á tilfinningunni að það hafi meira með Northface-merkið að gera en ásýnd úlpunnar, en vinkonum mínum finnst ég oft geta verið smekklegri í klæða- burði. Það benti meira að segja einhver á það á mbl.is að mér veitti ekki af stílista,“ segir Ellý hlæjandi að lokum en eins og alþjóð veit þá er sama í hverju Ellý klæðist hún er alltaf jafn flott. Fer ekki út úr húsi án Northface- úlpunnar DÝRMÆTASTA Í FATASKÁPNUM: Gráa Kate-Moss kápan mín úr Topshop. UPPÁHALDSBÚÐIN: Topshop. BESTA GEYMDA FEGRUNARRÁÐIÐ: Brosa og hlægja nógu mikið.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.