Fréttablaðið - 30.11.2007, Page 32

Fréttablaðið - 30.11.2007, Page 32
32 30. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 586 6.896 +1,24% Velta: 4.667 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 10,26 +0,39% ... Bakkavör 58,70 +1,21% ... Eimskipafélagið 36,80 +0,00% ... Exista 25,00 1,01% ... FL Group 20,70 +3,76% ... Glitnir 24,70 +1,02% ... Icelandair 27,80 +2,77% ... Kaupþing 925,00 +1,31% ... Landsbankinn 37,20 +0,54% ... Straumur-Burðarás 16,20 +1,25% ... Össur 99,50 +0,61% ... Teymi 6,37 +1,92% MESTA HÆKKUN FL GROUP 3,76% SPRON 3,62% ICELANDAIR 2,77% MESTA LÆKKUN FÖROYA BANKI 2,91% 365 2,82% EIK BANKI 2,49% Fyrirhuguðum hluthafafundi í finnska farsímafyrirtækinu Elisa hefur verið frestað fram yfir áramót. Novator, sem er langstærsti einstaki hluthafinn, krafðist fundarins til að breyta skipu- lagi félagsins og fá mann í stjórn. Halda átti fundinn 18. desember en hann verður 21. janúar. Novator býðst til að kynna hluthöfum tillögur sínar fyrir fundinn. - ikh Fundi frestað BJÖRGÓLFUR THOR BJÖRGÓLFSSON Hitaveita Suðurnesja hefur veitt félaginu Carbon Re cycling International vilyrði fyrir lóð til uppbygg- ingar á tilraunaverksmiðju sem draga mun úr útblæstri hitaveitunnar á Svartsengi. „Við teljum þetta geta orðið mjög merkilegt framlag inn í umræð- una um nýtingu koltvísýrings,“ segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar og stjórnarfor- maður Hitaveitu Suðurnesja. Sprotafyrirtækið Carbon Re cycl- ing International, sem er í eigu bandarískra og íslenskra aðila, hefur náð samkomulagi við Hita- veituna um uppbyggingu fimm megavatta tilraunaverksmiðju í Svartsengi. Verksmiðjan verður smíðuð á Indlandi en stefnt er að því að framleiðsla verði komin á fullt skrið að ári og verksmiðjan geti framleitt þrettán þúsund lítra af metanóli á dag. Verksmiðjan framleiðir metanól úr mengandi útblæstri. Það má svo vinna frekar í bensín sem nota má á bíla og önnur ökutæki. Meðal þeirra sem að verkefninu standa eru George Olah, bandarískur Nób- elsverðlaunahafi í efnafræði og Jonathan E. Whitlow, sem unnið hefur að Mars-verkefni NASA. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja stefnt að því að nýta tækn- ina til að minnka mengandi útblást- ur álvera og kolaverksmiðja. „Það er margt jákvætt í forat- hugun,“ segir Árni og bætir við að full ástæða sé að fylgja verkefn- inu eftir. Hann útilokar ekki að hitaveitan styðji frekar við upp- byggingu Carbon Recycling Inter- national. Það verði þó að gerast í samstarfi við aðra fjárfesta. Að sögn Andra Ottesen, fram- kvæmdastjóra Carbon Recycling International, er búið að tryggja fjármögnun fyrir rekstur tilrauna- verksmiðjunnar en reiknað er með að bandaríski fjárfestingabankinn Goldman Sachs og fleiri aðilar bætist í hópinn á seinni stigum. Bankinn kom inn í hluthafahóp Geysi Green Energy ásamt Ólafi Jóhanni Ólafssyni í sumar. jonab@frettabladid.is Vinna bensín úr útblæstri HS ÁRNI SIGFÚSSON „Við teljum þetta geta orðið mjög merkilegt framlag inn í umræðuna um nýtingu koltvísýrings.“ FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Bandaríska flugrekstrarsam- stæðan AMR, móðurfélag Ameri- can Airlines, ákvað á miðvikudag að selja eitt af dótturfélögum sínum, American Eagle, og allan rekstur þess á næsta ári. AMR segir að allir aðilar muni hagnast á sölunni og geti bæði félögin einbeitt sér frekar að kjarnastarfsemi sinni. Þetta er í samræmi við óskir FL Group, sem á um níu prósenta hlut í flug- rekstrarsamstæðunni. Greining Glitnis hefur eftir markaðsaðilum að ákvörðunin sé afleiðing af þrýstingi FL Group sem hafi farið fram á við AMR bæði bréfleiðis og opinberlega í september að það losi sig við undir- liggjandi eignir, svo sem vildar- klúbb félagsins. Reiknað er með að slíkt geri rekstur félagsins gegnsærri og hugsanlega auki markaðsvirði þess. Gengi hlutabréfa í AMR hækk- aði nokkuð vestanhafs í talsverðri uppsveiflubylgju á miðvikudag en lækkaði um fimm prósent þegar verst lét í gær. Reikna má með að þar spili inn í hækkun á hráolíu- verði í gær en það eykur rekstrar- kostnað samstæðunnar. - jab Fóru að ráðum FL STARFSMAÐUR AMERICAN EAGLE AMR er sagt hafa látið undan þrýstingi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Fljótlega eftir áramót er stefnt að hlutafjárútboði Marel Food Syst- ems þar sem hlutafé félagsins verður aukið um 29,8 milljónir hluta, að sögn Árna Odds Þórðar- sonar, stjórnarformanns Marels. Útboðið er hluti af fjármögnun kaupa félagsins á Stork Food Syst- ems (SFS), en þau voru kynnt fyrir fjárfestum í gærmorgun. Auk hlutafjárútgáfunnar eftir áramót, þar sem safna á 147 millj- ónum evra hjá völdum fjárfest- um, eru kaupin á SFS fjármögnuð með 53 milljóna evra afrakstri fyrra útboðs og með langtímalánum upp á 235 milljónir evra. Hörður Arnarson, forstjóri Marels, segir áherslu félagsins nú á samþætt- ingu og innri vöxt. Á kynningar- fundinum kom fram að ekki væru enn um sinn uppi ráðagerðir um að skrá félagið víðar í kauphöll en hér á landi. Árni Oddur segir félagið taka upp evruskráningu bréfa þegar það verði hægt. Theo Hoen, forstjóri SFS, kynnti starfsemi félagsins og fór yfir sögu þess, en það var stofnað árið 1963. Þá störfuðu hjá SFS fimm manns, en félagið hefur nú 1.875 starfsmenn. SFS er með höfuðstöðvar og verksmiðjur í Hollandi, auk starfsemi í Frakklandi, Spáni, Bandaríkjunum og Bras- ilíu. - óká Útboð eftir áramót Áhersla Marels verður á samþættingu og innri vöxt. ÁRNI ODDUR ÞÓRÐARSON
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.