Fréttablaðið - 30.11.2007, Page 8

Fréttablaðið - 30.11.2007, Page 8
 30. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tm.is / www.tm.is TM Ánægja ÍS L E N S K A S IA .I S / T M I 40 16 3 11 /0 7 Samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni eru viðskiptavinir TM þeir ánægðustu af viðskiptavinum tryggingafélaga, þriðja árið í röð. Ánægjuvog tryggingafélaga 2007 TM SJÓVÁ VÍS „Ekkert röfl og ekkert vesen. Ef svo illa vildi til að ég yrði fyrir tjóni aftur þá þyrfti ég greinilega engu að kvíða með það. Takk fyrir mjög góða þjónustu.“ Bestu kveðjur, Guðrún Jónsdóttir og Ludwig H. Gunnarsson „…sem sagt fljót og góð þjónusta!“ Ummæli fólks sem lent hefur í tjóni segja mest um þjónustu tryggingafélaga. SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580 Meindl Colorado GTX Jólatilboð 17.900 kr. verð áður 19.900 kr. ÍS L E N S K A /S IA .I S /U T I 35 20 0 11 /0 6 MENNTAMÁL Kunnátta íslenskra unglinga í náttúruvísindum er undir meðallagi, ef miðað er við niðurstöðu svokallaðrar PISA- könnunar OECD, sem lögð var fyrir í fyrra. Ísland lendir þar í 27. sæti af 57 löndum, og næstneðst Norðurlandanna. Aðeins Norð- menn stóðu sig verr. „Þetta eru mikil vonbrigði og í raun ekki viðunandi,“ segir Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir mennta málaráðherra um niður- stöðuna. „Við erum á svipuðum stað og við höfum verið í þessum prófum, en ég hefði viljað sjá okkur ofar, meðal annars í ljósi þess að grunnskólakerfið hér er það dýr- asta sem rekið er innan OECD.“ Þorgerður segir að í ljósi þessa hafi fyrirhugaðar breytingar á skólakerfinu litið dagsins ljós á hárréttum tíma, og ekki síst sá hluti nýs frumvarps til laga um leik- og grunnskóla sem lýtur að kennaramenntun. Könnuð var kunnátta fimmtán ára nemenda í eðlis-, efna-, líf- og jarðfræði. Löndin 57 mynda saman um 90 prósent af efnahagi í heim- inum. Finnskir unglingar eru efstir og á eftir þeim koma unglingar frá Hong Kong og Kanada. Árið 2003 var stærðfræðikunnátta unglinga könnuð, og voru Íslendingar þá í 21. sæti. OECD lét listann frá sér í kjölfar þess að hluti niðurstaðnanna lak til spænsks dagblaðs. Ítarniðurstöður verða opinberaðar 4. desember. Þorgerður hefur séð þær niður- stöður og hyggst tjá sig frekar um málið þá. Hún gefur þó upp að jákvætt sé að minni munur sé á frammistöðu kynja í þessu prófi en í stærðfræðiprófinu 2003, auk þess að landshlutar skeri sig ekki ýkja mikið hver frá öðrum. stigur@frettabladid.is Menntakerfið bregst íslenskum unglingum Lítil kunnátta íslenskra unglinga í náttúrufræðum veldur menntamálaráðherra vonbrigðum. Hún er undir meðallagi samkvæmt alþjóðlegri könnun OECD. Þetta eru mikil von- brigði og í raun ekki viðunandi ... ég hefði viljað sjá okkur ofar, meðal annars í ljósi þess að grunnskóla- kerfið hér er það dýrasta sem rekið er innan OECD. ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR MENNTA MÁLARÁÐHERRA SLÓVAKÍA, AP Lögregla í Slóvakíu greindi frá því í gær að þrír menn sem handteknir voru af landa- mæravörðum hefðu verið með hálft kíló af úrani í fórum sínum. Mennirnir væru grunaðir um að hafa ætlað að selja hið geisla- virka efni fyrir eina milljón Bandaríkjadala, andvirði 62 millj- óna króna. Michal Kopcik lögreglustjóri sagði að hinir handteknu, sem voru gómaðir síðla miðvikudags austast í Slóvakíu og Ungverjalandi, hefðu verið með um hálft kíló af úrani í duftformi, sem grunur léki á að væri upprunnið einhvers staðar í Sovétríkjunum fyrrverandi. „Það hefði verið mögulegt að nota þetta með margvíslegum hætti til hryðjuverkaárása,“ tjáði Kopcik fréttamönnum. Kopcik sagði að rannsakendur væru enn að reyna að komast að því hverjum hinir handteknu, tveir Ungverjar og einn Úkraínu- maður, hefðu ætlað sér að selja efnið. Handtökurnar juku á ótta um að það kynni að færast í aukana að geislavirku efni, sem hægt væri að nota í svonefnda „skítuga sprengju“, yrði smyglað frá Austur-Evrópu vestur á bóginn. Með „skítugri sprengju“ er átt við sprengju sem dreifir geisla- virku efni um allt er hún springur. - aa HÆTTULEGT SMYGL Þessa mynd af hinu haldlagða efni birti slóvakíska lögreglan. NORDICPHOTOS/AFP Þrír menn handteknir fyrir að smygla geislavirku efni inn í Evrópusambandið: Voru með hálft kíló af úrani
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.